„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jón safnar fyrir Sigurgeir: „Brunasárin þekja því miður stóran hluta líkama hans“

Jón safnar fyrir Sigurgeir: „Brunasárin þekja því miður stóran hluta líkama hans“
Jón Ármann Gíslason

Jón Ármann Gíslason, sókn­ar­prestur og pró­fastur á Skinna­stað í Öxar­firði, hefur komið á fót söfnun fyrir ungan mann sem er mikið slas­aður af völdum  bruna. Pilt­ur­inn, Sig­ur­geir Sankla Ísaksson, er nú á sér­hæfðri deild í Svíþjóð ásamt for­eldrum sínum. For­eldrar hans, Ísak Sig­ur­geirs­son og Senee Sankla, starf­rækja versl­un­ina Ásbyrgi en þurfa loka næstu vik­urnar til að hlúa að Sig­ur­geiri.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Jóns Ármanns og einnig ban­ka­upp­lýs­ingar fyrir þá sem vilja leggja þeim lið.

Góðu vinir, nær og fjær !

Nú nýverið gerð­ist það hörmu­lega atvik, að ungur piltur, Sig­ur­geir Sankla Ísaksson, Ásbyrgi, Keldu­hverfi, meidd­ist mikið af völdum bruna. Hann er mikið slas­aður, og  bruna­sárin þekja því miður stóran hluta lík­ama hans. Þakka má skjót við­brögð réttra aðila, sem komu drengnum undir lækn­is­hendur eins fljótt og verða mátti. Sig­ur­geir var fluttur með sjúkra­flugi til Reykja­víkur og þaðan á sér­hæfða deild í Uppsölum í Svíþjóð, þar sem mjög góð þekk­ing, reynsla og tækni er til staðar að með­höndla sár af þessu tagi.

For­eldrar drengs­ins, Ísak Sig­ur­geirs­son og Senee Sankla, Noi, fylgdu syni sínum til Sví­þjóðar þar sem þau dvelja nú. Bata­horfur eru taldar góðar, en ljóst er að mikið lang­hlaup er framundan. Fyr­ir­hugað er að þau dvelji í Svíþjóð í kringum fimm vikur, og eftir það mun  löng end­ur­hæf­ing taka við. Þessu fylgir eðli­lega gríð­ar­mik­ill kostn­aður fyrir fjöl­skyld­una, sem og tekju­tap, en þau hjónin Ísak og Noi starf­rækja Versl­un­ina Ásbyrgi, eins og mörgum er kunn­ugt. Þeim rekstri, sem þau byggja lífs­af­komu sína á,  geta þau eðli­lega ekki sinnt með hefð­bundnum hætti næstu vikur og mán­uði. Þess vegna vil ég að höfðu  sam­ráði við vini og vel­unn­ara fjöl­skyld­unnar minna á styrkt­ar­reikn­ing presta­kalls­ins. Hann er á kenni­tölu Skinna­stað­ar­kirkju. Hvet ég þau sem eru aflögu­fær að láta eitt­hvert smá­ræði af hendi rakna, fjöl­skyld­unni til hjálpar á þessum erf­iðum tímum í lífi hennar.  Allt sem verður lagt inn á reikn­ing­inn næstu vik­urnar mun renna óskert til þeirra Ísaks og Noi. Munum að margt smátt gerir eitt stórt.

Umfram allt er það von okkar og bæn, að Sig­ur­geir megi ná heilsu og kröftum á ný.

Kennitala: 590269-6119

Banki: 0192-26-30411

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins