„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þór sakar Egil um spillingu: „Með ólíkindum að Egill skuli hafa gengið fram með þessum hætti“

Þór sakar Egil um spillingu: „Með ólíkindum að Egill skuli hafa gengið fram með þessum hætti“
Egill Helgason.

Þór Saari, fyrr­ver­andi þing­maður, segir að við­tal Egils Helga­sonar við Hannes Hólm­stein Giss­ur­ar­son í Silfrinu í gær hafi verið fyrir neðan allar hellur. Þór seg­ist ekk­ert botna í Agli og grunar helst að spill­ing hafi ráðið för. Egill og Hannes ræddu það þegar Geir H. Haarde var dæmdur í Lands­dómi en Þór segir þetta vera enn eina til­raun til að hvít­þvo Geir.

„Það var alveg með ólík­indum að sjá enn eina hvít­þvotta­til­raun­ina á Geir H. Haarde fyrr­ver­andi for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins á RÚV í gær. Sann­leik­ur­inn í mál­inu er að Geir var dæmdur í Lands­dómi af meiri­hluta dóms­ins með vel rök­studdu áliti. Það nákvæm­lega sama átti við um dóm Mann­drétt­inda­dóm­stóls Evrópu í mál­inu. Það nákvæm­lega sama á við um nið­ur­stöðu þing­nefnd­ar­innar sem ákvað að höfða ætti mál gegn Geir,“ skrifar Þór innan Facebook-hóps Sós­í­alista.

„Það er því alveg með ólík­indum að Egill Helgason annar stjórn­enda Silf­urs­ins á RÚV, þáttar sem er helsti umræðu­þáttur um stjórn­mál hér á landi, skuli hafa gengið fram með þessum hætti og fengið í lið með sér dæmdan fræði­mann sem hefur verið helsti áróð­ur­spési hægri öfga­afla hér á landi í ára­tugi, til að hjálpa sér við þennan hvít­þvott.“

Þór segir að við­talið hafi ein­fald­lega verið áróður frá upp­hafi til enda. „Hvað Agli Helga­syni, mann­inum sem svo sann­ar­lega stóð vakt­ina með prýði í Hruninu og eft­ir­málum þess, gengur til er ekki gott að segja. Það er þó varla hægt að draga aðra ályktum af þessum gjörn­ingi hans en að hann sé að „leggja inn“ eins og sagt er, hjá Sjálf­stæð­is­flokknum, og eigi í staðin von á ein­hverjum brauð­molum í eigin faðm.

Slíkt þvaður við­mæl­anda og mær­ing spyrj­anda sem þarna átti sér stað hefur sjaldan sést og þetta spjall var bein­línis skil­grein­ing á þvi hvernig á að dreifa fals­fréttum á sem trú­verð­ugastan hátt. Það er svo að sjálf­söðgu grafal­var­legt ef þátta­stjórn­endur hjá RÚV kom­ast upp með slíkt á þessum tímum þar sem sann­reyn­ing upp­lýs­inga hefur sjaldan skipt meira máli.“

Að lokum segir Þór að Sjálf­stæð­is­menn ættu að líta sér nær hvað þetta mál varðar. „Það fyndna, en samt sorg­lega við þetta mál er, að það voru Sjálf­stæð­is­menn á þingi sem sjálfir með atkvæðum sínum tryggðu það að Geir H. Haarde fór einn fyrir Landsdóm, í stað þess að fá þrjá aðra með sér. Einmitt, þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins sjálfir.

Þegar þetta varð ljóst í lok atkvæða­greiðsl­urnar urðu svo Sjálf­stæð­is­menn alveg brjál­aðir, „taktíkin“ hafði snú­ist upp í klúður og þeirra eigin aðför að for­mann­inum sínum fyrr­ver­andi. Ég benti HHG á þetta þegar hann gerði liðs­könn­un­ina um hvort ég væri enn í „óvina­lið­inu“ fyrir þessa blessuðu „bók“ og hann humm­aði bara. Þeim tókst þó að kaupa Magnús Orra Scram til að skipta um skoðun með ein­hverju bygg­inga­leyfi fyrir heita potta í Þjórs­ár­dal, og lík­lega ein­hverja fleiri líka. Iss“

Viðtalið má sjá hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins