„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Birtir ósvífið bréf leigufélags – Hækkuðu leigu Brynju um 75 þúsund: „Hlökkum til að heyra frá þér“

Birtir ósvífið bréf leigufélags – Hækkuðu leigu Brynju um 75 þúsund: „Hlökkum til að heyra frá þér“
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður VR

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, birtir á Facebook bréf sem Brynjar nokkur, 65 ára, fékk á dög­unum frá leigu­sala sínum, leigu­fé­lag­inu Ölmu. Þar er henni kynnt að leiga hennar hafi hækkað um 75 þús­und krónur á mán­uði og sé nú 325 þús­und krónur. Ragnar segir bréfið slá­andi enda sýni það vel miskun­ar­leysi og græðgi leigu­fé­laga.

Hér fyrir neðan má lesa færslu Ragnars í heild sinni.  

Ég fékk póst frá leigu­taka hjá Ölmu leigu­fé­lagi sem er væg­ast sagt slá­andi.

Hún heitir Brynja og er 65 ára. Alma býður henni nýjan 12 mán­aða leigu­samn­ing sem mun taka gildi frá byrjun febr­úar á næsta ári með hækkun upp á 75.247kr. á mán­uði miðað við vísi­tölu í nóv­em­ber, sem var 555,6 en er komin 560,9. Það þýðir að hækk­unin sem henni stendur til boða verður 78.347kr. á mán­uði frá og með febr­úar næst­kom­andi en fer að öllum lík­indum hækk­andi fram að þeim tíma.

Ég ræddi við Brynju seinni­part­inn í dag og var sam­talið og saga hennar slá­andi en því miður ekki eins­dæmi. Ég fékk góð­fús­legt leyfi hennar til að birta þetta þar sem hún er nauð­beygð til að flytja út þar sem úti­lokað er fyrir hana að standa undir þess­ari hækkun.

Brynja er sjúk­lingur en hefur ávalt staðið í skilum við leigu­fé­lagið eins og flestir gera með því að borga leig­una fyrst og lifa á hafra­graut megin hluta mán­að­ar­ins.

Til að setja þetta í sam­hengi þyrftum við í verka­lýðs­hreyf­ing­unni að hækka laun um 133.000kr. á mán­uði til að hún gæti staðið undir þessum kostn­að­ar­auka. Og þá er allt annað eftir sem hækkað hefur langt úr hófi fram.

Það ætti ekki að koma neinum á óvart að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur unnið hvað harð­ast gegn því að leigu­bremsu verði komið á til að sporna við gengd­ar­lausri græðgi og því mis­kunn­ar­leysi sem við­gengst á leigu­mark­aði.

Sjá sam­skipti leigu­fé­lags­ins við Brynju sem fékk heldur dap­ur­lega jóla­gjöf frá leigu­fé­lag­inu eins og hún orðar það sjálf:

Sæl Brynja,

Nú líður að end­ur­nýjun leigu­samn­ings þíns vegna Hverf­is­götu 59, íbúð 102. Núver­andi leigu­samn­ingur rennur út 31.01.2023 næst kom­andi. Við viljum endi­lega heyra frá þér hvort þú hafir hug á því að end­ur­nýja leigu­samn­ing­inn þinn frá 01.02.2023.

Við getum boðið þér end­ur­nýjun á leigu­samn­ingi með grunn­leigu­verð kr. 325.000.- og upp­hafs­vísi­tölu 555,6. Athugaðu að upp­hafs­vísi­tala samn­ings mið­ast við nóv­em­ber mánuð 2022.

Greiðsla skv. núver­andi leigu­samn­ingi í nóv­em­ber er kr. 249.753,-

Við bjóðum upp á tíma­bundna leigu­samn­inga til 12 mán­aða eða lang­tíma­samn­inga til allt að 60 mán­aða. Innheimt er álag ofan á grunn­leigu­verð lang­tíma­samn­inga sem ákvarð­ast af lengd samn­ings. Með­fylgj­andi er skjal með frek­ari útskýr­ingum.

Við biðjum þig að láta okkur vita sem fyrst eða í síð­asta lagi 01.01.2023 hvort þú komir til með að end­ur­nýja samn­ing­inn þinn.

Vertu endi­lega í sam­bandi við okkur ef þú hefur frek­ari spurn­ingar eða ef eitt­hvað er óljóst.

Hlökkum til að heyra frá þér.

Með kveðju,

Starfs­fólk Ölmu

Ég velti því stundum fyrir mér hvert í fjand­anum við erum komin sem sam­fé­lag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins