Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá hjálparstarfi kirkjunnar, segir sífelldar hækkanir á leiguverði hrekja fólk af heimilum sínum. Alltof algengt sér að mikla hækkanir á leigu verði til þess að fólk missi húsnæði sitt.
Steininn tók úr að mati Vilborgar þegar leigufélagið Alma tilkynnti nýverið um 30 prósenta hækkun á húsaleigu og þannig dæmi um 75 þúsund króna hækkun á leiguverði. „Ég verð ekki oft orðlaus, en ég var það þarna,“ sagði Vilborg í Silfrinu í gær
Það fór allt á annan endan vegna frétta af því að húsaleiga Brynju Bjarnadóttur, sem er öryrki, hafi hækkað úr 250 þúsund krónum á mánuði og upp í 325 þúsund krónur með einu pennastriki. Hún leigir hjá Ölmu íbúðafélagi sem hagnaðist um rúma 12 milljarða í fyrra. Leigufélagið hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem húsaleiguhækkanirnar eru harmaðar en félagið ætlar ekki að tjá sig um mál Brynju.
Vilborg er afar ósátt með hækkanir Ölmu og telur lífsnauðsynlegt að auka öryggi og bæta aðstæður á íslenskum leigumarkaði.„Það er verið að leigja fólki hreysi. Eitthvað sem við myndum aldrei vilja búa í. Það er ekkert húsnæði á leigumarkaðinum, þannig fólk segir já takk við hverju sem er og býr í mygluðu húsnæði og kjallaraholum og öllu mögulegu. Þetta er bara frumskógur,“ segir Vilborg.




















Athugasemdir