Í Garðabænum eru núna þrettán snjómokstursvélar að störfum þar sem búið er að fara eina mokstursumferð um allar götur bæjarfélagsins. Sigurður Hafliðason, áhaldahússtjóri Garðabæjar, segir að framundan séu aðeins „snyrtingar“ á götunum bæjarins og vel hafi gengið að ryðja stíga og gönguleiðir.
Sjá einnig: 16 ára sendir Degi bréf: „Ég er komin með nóg af því að minn eigin borgarstjóri pælir ekkert í mér“
„Það þarf fara í snyrtingar og gera fólki auðveldara að komast um. Þetta leystist rólega og við náðum að halda öllum aðalgötum opnum,“ segir Sigurður í samtali við mbl.is.Það virðist ekki eins rólegt á vaktinni hjá Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra Reykjavíkur, og liggur hann undir ámæli fyrir að sinna illa snjómokstri, einkum í efri byggðum borgarinnar. 16 ára íbúi í Grafarholtinu hefur fengið nóg af aðgerðarleysi Dags þegar kemur að þjónustu við úthverfi borgarinnar, einkum nú þegar allt er á kafi í snjó. „Þú ert hluti af ástæðunni af hverju margir eru að flytja úr Reykjavík,“ segir hinn ungi íbúi meðal annars
í bréfi sínu
.
Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, vill að Reykjavíkurborg fjárfesti í snjóruðningstækjum því efla þurfi viðbragð borgarinnar til muna þegar kemur að snjómokstri. Snjóruðningstæki og verktakar á vegum borgarinnar hafa haft í nægu að snúast við að hreinsa stofnæðar undanfarna daga og margir íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa verið innlyksa í húsum sínum vegna ófærðar.





















Athugasemdir