„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gunnar hraunar yfir starfsfólk borgarinnar: „Getur ekki verið svona heimskt, latt eða ótillitssamt“

Gunnar hraunar yfir starfsfólk borgarinnar: „Getur ekki verið svona heimskt, latt eða ótillitssamt“
Gunnnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson

Gunnar Smári Egilsson, for­sprakki Sós­í­alista­flokks­ins, gagn­rýnir harð­lega starfs­fólk Reykja­vík­ur­borgar og seg­ist hann ekk­ert skilja í því hvers vegna mið­borgin hafi ekki verið gerð aðgengi­leg göngu­fólki í vetr­ar­tíð und­an­far­inna daga. „Það er með öllu óskilj­an­legt. Fólkið getur ekki verið svona heimskt, latt eða ótillits­samt,“ segir Gunnar Smári ákveð­inn.

Gagnrýni sína á borg­ar­starfs­fólk setur sósílaista­for­ing­inn fram í nýjum pistli á Facebook. Þann rit­aði Gunnar Smári eftir að hafa reynt sjálfur að ganga um mið­bæ­inn í dag en við illan leik.

„Ég labb­aði eftir Lauga­veg­inum út í bak­arí, í eina búð að kaupa gjöf og svo neðst á Skóla­vörðu­stíg­inn að kaupa linsu­baunir hjá frökk­unum í Hyalin. Allt voru þetta fal­legar búðir með góða vöru, kaup­menn glaðir og ræðnir. Færðin á gang­stéttum og götum var hins vegar til stór­kost­legrar skammar fyrir fólkið sem hefur boðið sig fram til þjón­ustu við borg­ar­búa og verið til þess kjörið.

Fyrir mörgum árum kom ég til Pét­urs­borgar í ríki Pútín. Þar hafði kyngt niður snjó og frost var hart. Sums staðar mátti sjá hrauka af snjó sem hafði verið ýtt eða mokað svo hann væri ekki fyrir fólki. Að öðru leyti voru allar götur og gang­stéttir auðar. Ég spurði hvernig borg­inni væri haldið snjó­lausri. Við mokum snjónum burt og sturtum honum ofan í Nevu, var mér sagt.

Auðvitað er annað lofts­lag í Pét­urs­borg en í Reykja­vík. Þegar vet­ur­inn kemur þar austur frá heldur hann tökum sínum fram til vors. Í Reykja­vík eru oft umhleyp­ingar, snjór­inn frá helg­inni getur rignt niður á morgun. En það á ekki við um snjó­inn sem féll á föstu­dag­inn. Þá var vitað að fram undan væri langur frostakafli, eig­in­lega eins langt og hægt væri að spá. Og snjó­kom­unni var spáð með viku fyr­ir­vara eða svo.

Það er með ólík­indum að fólkið sem mært hefur göngu­göt­urnar niður í bæ og hinn líf­lega túrista-miðbæ hafi ekk­ert gert til að halda göt­unum göngu­færum á mestu versl­un­ar­dögum árs­ins og yfir ferða­mannakúf­inn kringum hátíð­irnar. Það er með öllu óskilj­an­legt. Fólkið getur ekki verið svona heimskt, latt eða ótillits­samt. Helst má ætla að það sé ein­hver húsa­sótt í Ráð­hús­inu, sem veldur því að allt fólk sem þar starfar sér á eftir krón­unum sem fara í að moka snjó og salta, snjó sem myndi hvort sem er rigna niður á morgun. Eða í næstu viku. Eða í næsta mán­uði, sem er á næsta ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins