„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hrefnu-Konni fór á fund með móðguðum Davíð Oddssyni: „Hann tók í einn köggul á löngutöng á mér“

Hrefnu-Konni fór á fund með móðguðum Davíð Oddssyni: „Hann tók í einn köggul á löngutöng á mér“

Konráð Egg­erts­son eða Hrefnu-Konni eins og hann er oft kall­aður, var nýlega í við­tali við Reyni Trausta­son. Hér er brot úr því en Konráð er með ein­dæmum skemmti­legur sagna­maður.

Enginn Davíð

„Það var þannig að Davíð Oddsson var for­sæt­is­ráð­herra og við báðum um fund með honum. Ég var for­maður í félag­inu í tutt­ugu ár, í Félagi hrefnu­veiði­manna. Og jújú, við mætum á fund­inn allir, bæði að norðan og austan og héðan og þaðan. Við mætum sem sagt upp í stjórn­ar­ráð og setj­umst þar niður. Og tím­inn líður og ekki kemur Davíð og svo er klukkan komin langt yfir tím­ann og aldrei kemur Davíð. Við spyrjum hvernig standi á þessu og þá segir síma­stúlkan, voða almenni­lega stúlka bless­unin, hún segir „Ég bara veit ekki, skil þetta ekki, þetta hefur aldrei gerst áður.“. Og tím­inn líður og svo kallar maður ofan af lofti, aðstoð­ar­maður Davíðs. Við spjöllum við hann en ákveðum að sitja bara þangað til Davíð kemur en það var ekki sam­þykkt. Þannig að við förum út í bíl og kveikjum á útvarp­inu og þá var Davíð á Stöð 2 eða ein­hvern and­skot­ann að tippa á eitt­hvað, þetta var áður en hann fór í fýlu við Jón Ólafsson. Þannig að við fórum allir heim, Davíð kom aldrei.“

En þar með líkur ekki frá­sögn Hrefnu-Konna af Davíð Oddssyni því dag­inn eftir fékk hann sím­tal.

Ástæðan

„Daginn eftir fæ ég sím­tal frá aðstoða­manni Davíðs. Hann segir mér af hverju hann hafi ekki mætt. Það var vegna þess að ég hafði sagt í útvarp­inu nokkrum dögum áður, það var nú ósköp mein­laust, ég sagði „Ég trúi því ekki að for­sæt­is­ráð­herr­ann viti ekki um hvað hann er að tala.“. Það var ekk­ert annað. Svo ég segi Matta frá þessu, Matta Bjarna, hann var ráð­herra á þessum tíma. Og hann segir „Svona gera ekki menn! Ég kem á öðrum fundi.“. Svo er ég lát­inn vita hvenær við eigum að mæta. Þegar ég kem inn í stjórn­ar­ráðið sitja þar þrír eða fjórir menn, svaka­lega vel klæddir, mér er svo minnistætt hvað þeir voru vel klæddir. Þeir voru í svörtum fötum í hvítri skyrtu með bindi. Þá eru þetta menn að bíða eftir Davíð. Svo opn­ast hurðin. Okkur er bent á að koma inn. Með okkur var lög­fræð­ingur okkar sem hafði verið lög­fræð­ingur hjá okkur í mörg ár. Mér fannst að hann ætti að hafa orðið fyrir okkur. Svo labba ég síð­astur inn. Hann tók í einn köggul á löngu­töng á mér en heils­aði öllum hinum með handa­bandi.“

Og þá hófst fund­ur­inn.

Fundurinn

„Og svo förum við inn og hann segir „Jæja, hver er í for­svari fyrir ykkur og hvað vantar ykkur? Það bíða hér fjórir menn hér frammi og ég hef engan tíma til að tala við ykkur.“. Og við horfum hver á annan og vitum bara ekki hvar við erum staddir. Og ég hélt að lög­fræð­ing­ur­inn okkar ætli að byrja en svo var ekki. Þá segi ég „Davíð, hvar er kon­íakskaraflan?“. Nú héldu strák­arnir að ég væri orð­inn end­an­lega vit­laus, það fatt­aði þetta eng­inn. Þá brosir Davíð. Djöfull var hann fljótur að fatta þetta. Ég var nýbú­inn að lesa bók­ina Nokkrir dagar án Guðnýjar sem hann skrif­aði. Og hló mikið og las hana meira að segja upp­hátt fyrir kon­una. Mikil og skemmi­leg bók.“

Konni sagði Reyni frá einni frá­sögn úr bók Davíðs þar sem kon­íakskaraflan kemur við sögu. Og hélt svo áfram með sög­una af fund­inum með for­sæt­is­ráð­herr­anum móðg­aða.

„Og þetta var nóg. Þarna vorum við allt í einu komnir með allt ann­ann mann í fangið. Hann fór að segja brand­ara og skellti sér á læri og hló. Við hlóum líka, enda þorðum við ekki öðru. En hann var skemmti­legur hel­vítis karl­inn. Og hann segir okkur sem sagt brand­ara og svona og þá skiptu menn­irnir sem biðu fram engu máli! Ég man nú ekki hvað við vorum að biðja um á fund­inum en hann tók vel í það en svo segir ég við hann „En Davíð, ert þú sjálfur, per­sónu­lega á móti hval­veiðum?“. Þá segir hann „Já“ og ég spyr af hverju það sé. „Það skal ég segja þér. Sko, Helmut Kohl, hann er vinur minn og hann er á móti hval­veiðum. Og svo er hann eins og búr­hvalur í útliti.“. Og svo hló hann og hló og við allir líka, alveg eins og hálf­vitar. Þegar ég fór út þá tók hann svona fast í hönd­ina á mér og hristi.“

Hægt er að hlusta á þetta bráð­skemmti­lega við­tal í heild sinni hér og hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

VefTV

Diddi keypti 80 hesta á fylleríi: „Það var agalegt þegar ég vaknaði eftir það“
Innlent

Diddi keypti 80 hesta á fyll­eríi: „Það var aga­legt þegar ég vakn­aði eftir það“

Gestur Sjóarans er Sigurður Frið­riks­son, betur þekktur sem Diddi Frissa, var til sjós í að verða hálfa öld. Hann gaf nýverið út bók­ina Lífssaga Didda Frissa – Kröft­ugur til sjós og lands þar sem farið er yfir lífs­hlaup hans. Diddi rifj­aði upp vand­ræði sem hann kom sér í þegar hann drakk en hann sagð­ist hafa ánetj­ast áfeng­inu snemma. Í byrjun...
Leyndarmálið á bakvið æskuljóma Svanhildar: „Ég er náttúrulega í sífelldri baráttu við þetta“
Innlent

Leynd­ar­málið á bak­við æsku­ljóma Svan­hildar: „Ég er nátt­úru­lega í sífelldri bar­áttu við þetta“

Gestur Mann­lífs­ins er söng­konan, útvarps­konan, feg­urð­ar­drottn­ingin og þjóð­ar­ger­semin Svan­hildur Jak­obs­dóttir. Í byrjun við­tals­ins spurði Reynir Trausta­son Svan­hildi hver leynd­ar­dóm­ur­inn á bak­við æsku­ljóma hennar væri og ekki stóð á svörum. „Ég er nátt­úru­lega í sífelldri bar­áttu við þetta,“ sagði Svan­hildur og skellti upp úr. „Nei, nei, ég veit ekk­ert um það, bara takk fyrir!“ Reynir spurði hana þá hvort hún væri...
Elísabet Gunnars: „Ég er þakklát fyrir að hafa ekki verið á social media þegar ég var að finna mig“
InnlentVefTV

Elísabet Gunnars: „Ég er þakk­lát fyrir að hafa ekki verið á social media þegar ég var að finna mig“

Fyrsti þáttur Tölum Um fór í loftið í gær. Þar ræðir Gummi Kíró við hina glæsi­legu Elísa­betu Gunn­ars­dóttur, eig­anda Trendnet.is. Elísabet segir frá því hvernig fata­stíll hennar þró­að­ist en hún byrj­aði ung að starfa í tísku­vöru­verslun. „Ég tróð mér inn í Centrum sem var í Kringl­unni. Ég vann mjög mikið með mennta­skóla, hef alltaf verið þar að ég vil eiga...
Alfreð Steinar skipstjóri varð kennari í Namibíu: – Maður með skammbyssu rændi skipi hans
Slúður

Alfreð Steinar skip­stjóri varð kenn­ari í Namibíu: – Maður með skamm­byssu rændi skipi hans

Alfreð Steinar Rafnsson á að baki ævin­týra­legan feril sem skip­stjóri á tog­urum og sem kenn­ari í Sjó­manna­skól­anum í Namibíu. Hann segir sögu sína í Sjóranum þessu sinni. Til­viljun réði því að hann varð skip­stjóri á tog­ar­anum Hvalbak, þrí­tugur að aldri. Hann gerði út verk­smiðju­tog­ara frá Litháen og mok­fiskaði. Svo end­aði ævin­týrið með ósköpum þegar flagg­skip­stjóri með skamm­byssu að vopni tók...
Sjóarinn: Sigurgeir Pétursson skipstjóri: Vélstjórinn lenti í eldtungunni og kastaðist fjóra metra
Menning

Sjóarinn: Sig­ur­geir Pét­urs­son skip­stjóri: Vél­stjór­inn lenti í eld­tung­unni og kastað­ist fjóra metra

Í Sjó­ar­anum að þessu sinni ræðir Reynir Trausta­son við skip­stjór­ann Sig­ur­geir Pét­urs­son frá Húsavík. Hann stjórnar einum af stærstu tog­urum heims, með 95 manns í áhöfn. Skip Sig­ur­geirs Pét­urs­sonar, TAI-AN Sig­ur­geir hefur marga fjör­una sopið og lent í ýmsu við störf sín um heims­ins höf. Mikil mildi var að eng­inn úr áhöfn hans dó þegar spreng­ing átti sér stað í...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins