„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Erla Bolladóttir er Hetja ársins: „Finnst ofboðslega vænt um að það sé einhver að hugsa um þetta “

Erla Bolladóttir er Hetja ársins: „Finnst ofboðslega vænt um að það sé einhver að hugsa um þetta “
Erla Bolla­dóttir- ljós­mynd­ari: Kazuma Takigawa

Vali Mannlífs á Hetju árs­ins 2022 er lokið og úrslit liggja fyrir. Ljóst er að bar­átta Erlu Bolla­dóttur við kerfið og krabba­meinið hefur hreyft við fólki.

Er þetta í annað skiptið sem Mannlíf velur Hetju árs­ins en í fyrra var það Rúna Sif Rafns­dóttir sem hlotn­að­ist heið­ur­inn en hún bjarg­aði lífi hins átta mán­aða Elds Elís með því að gefa honum hluta af lifur sinni sem var honum lífs­nauð­syn­legt.

Sjá einnig: Rúna Sif Rafns­dóttir, hetja árs­ins: „Eldur Elí er mesta hetjan“

Ára­tuga­langri bar­áttu hennar við kerfið skil­aði sér loks­ins rétt fyrir jól er Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra baðst afsök­unar fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar, á gæslu­varð­haldi sem hún sætti í tengslum við Geir­finns­máli- og þeirri með­ferð sem hún hlaut í fang­els­inu. Auk afsök­un­ar­beiðn­ar­innar fékk hún greiddar 32 millj­ónir króna í miska­bætur.

Erla Bolla­dóttir –

Erla var í ein­lægu við­tali í tíma­riti og hlað­varpi Mannlífs í byrjun októ­ber þar sem hún fór yfir áföllin og ást­ina, krabba­meinið og bar­átt­una við kerfið, á hisp­urs­lausan hátt. Hægt er að hlusta á við­talið hér, hér og hér.

Þá sagði Erla á blaða­manna­fundi í haust að hún von­aði að máli hennar gegn rík­inu lyki áður en hún kveddi þennan heim.

Í sam­tali við Mannlíf sagð­ist Erla vera hrærð yfir heiðr­inum: „Fyrsta til­finn­ingin sem vaknar er bara, það er eitt­hvað ofboðs­lega ljúft að finna það að ein­hver kann­ist við það sem ég hef verið að standa í. Mér þykir þetta mjög góður heiður og finnst ofboðs­lega vænt um að það sé ein­hver að hugsa um þetta.“

Aðspurð hvort hún hafi fundið fyrir með­byr frá þjóð­inni vegna bar­áttu hennar við ríkið játar hún því: „Já, seinni árin eða frá því árið 2011. Þegar Sævar dó, þá gerð­ist eitt­hvað með vit­und þjóð­ar­innar. Þá fór ég að finna fyrir stuðn­ingi,“ sagði Erla og átti þá við Sævar Ciesielski sem barð­ist fyrir end­ur­upp­töku á Guð­mundar og Geir­finns­mál­inu til dauða­dags.

Er Erla var spurð hvort hún sé ekki hæstá­nægð með afsök­un­ar­beiðni for­sæt­is­ráð­herr­ans og miska­bæt­urnar sagði Erla: „Jú, það var það sem ég lagði mestu áhersl­una á og það sem skipti mig mestu máli, að það yrði kann­ast við hvað mér var gert.“

En Erla hefur unnið þennan bar­daga en glímir nú við ann­ars konar bar­daga en hann er upp á líf og dauða, krabba­meinið. „Það gengur bara vel. Það er allt með kyrrum kjörum og það er enn ólækn­an­legt segja þeir. En þetta er alveg með skásta móti.“

Erla Bolla­dóttir – Ljós­mynd­ari: Kazuma Takigawa

Að lokum spurði blaða­maður Mannlífs Erlu hvort hún væri bjart­sýn á nýja árið:
„Ég get ekki alveg sagt það sko. Ég er ekki bjart­sýn fyrir íslenskt sam­fé­lag. Mér finnst staðan ekki líta vel út. Þá á ég við varð­andi afkomu fólks og hús­næð­is­mögu­leika. Þetta virð­ist bara fara versn­andi. Unga fólkið getur ekki keypt sér hús­næði og það virð­ist alveg vanta umhyggj­una fyrir fjöl­skyld­unni, finnst mér. Það vantar það alveg hjá stjórn­völdum.“

Þar sem Erla er stödd í Svíþjóð um þessar mundir verður henni afhent við­ur­kenn­ing­ar­skjal sem hetja árs­ins 2022, á næsta ári.

Mannlíf óskar Erlu inni­lega til ham­ingju með tit­il­inn!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hetja ársins

Hetja ársins 2022 – Enn hægt að senda inn tillögur
InnlentHetja ársins

Hetja árs­ins 2022 – Enn hægt að senda inn til­lögur

Enn er hægt að senda inn til­lögur að hetju árs­ins 2022. Þó nokkrar til­lögur hafa borist Mannlífi um hetju árs­ins 2022 í íslensku sam­fé­lagi. Hægt er að senda nöfn á [email protected]! Valið verður á milli tíu efstu í opnu kjöri á mann­lif.is og vægi atkvæða í end­an­legri kosn­ingu skipt­ist jafnt á milli les­enda og rit­stjórnar Mannlífs. Hetju árs­ins verður veitt...
Rúna Sif Rafnsdóttir, hetja ársins: „Eldur Elí er mesta hetjan“
InnlentHetja ársins

Rúna Sif Rafns­dóttir, hetja árs­ins: „Eldur Elí er mesta hetjan“

Kjöri Mannlífs um Hetju árs­ins 2021 er lokið og úrslit liggja fyrir. Ljóst er að fórn­fýsi og gæska Rúnu Sifjar Rafns­dóttur snertu streng í hjörtum les­enda. Rúna Sif lagði sín lóð á vog­ar­skál­arnar til að bjarga lífi átta mán­aða drengs, Elds Elís, og gaf honum hluta af lifur sinni sem var honum lífs­nauð­syn­leg. Rúna Sif átti ekki heim­an­gengt og því...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins