„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Konum leiðbeint: „Leiðréttið aldrei karlmann að öðrum viðstöddum“

Konum leiðbeint: „Leiðréttið aldrei karlmann að öðrum viðstöddum“

Karl­mann­inum er engin laun­ung á því, að kona vill geðj­ast honum og honum geðj­ast meira að segja að því. Hitt gremst honum, að við van­metum hann, er við reynum að veiða hann í net okkar með kænsku­brögðum, sem ekki byggj­ast á tryggri und­ir­stöðu.

Svo mælist Joan Bennet í bók sem á íslensku var nefnd Aðlað­andi er konan ánægð. 

Bak­sýn­is­speg­ill kvölds­ins er hús­lestur úr þess­ari grát­bros­legu bók sem sýnir hvað skýr­ast, svart á hvítu, hvernig afstaða til kynj­anna hefur breyst gríð­ar­lega frá eft­ir­stríðs­ár­unum.

Leiðréttið aldrei karlmann

Í kafl­anum Að geðj­ast karl­mönnum er margan gull­mol­ann að finna. Grípum niður í þau ráð sem konum er þar gefin.

Leið­réttið aldrei karl­mann að öðrum við­stöddum, mál­færi hans, skoð­anir, né setjið út á hegðun hans og siði.

Guð forði nokk­urri konu frá að særa stolt karl­manns!

Svíkið ekki gefið lof­orð um stefnu­mót, þó að yður bjóð­ist annað skemmti­legra.

Hans skemmtun hlýtur jú að ganga fyrir.

Segið engum manni ósatt. Neitið að svara eða sneiðið hjá því, en ljúgi ekki upp í opið geðið á honum. Það kemst upp.

Þarna getur vart annað verið en verið sé að vísa til yfir­grips­meiri meiri greindar karla en kvenna.

Setjið móð­ur­til­finn­ing­una á hill­una og leyfið mann­inum að ráða þá stuttu stund sem hann býður yður út. Þér verður sjálf­sagt undr­andi yfir, hve gaman það er að láta dekra þannig við sig.

Þetta segir sig jú sjálft.

Biðjið, skrifið ekki og forðizt kald­hæðni. Karlmenn hata og hafa alltaf hatað hæðni allt frá því, er þeir voru á skóla­bekknum; þeir höt­uðu hæðni kenn­ar­ans, hæðni kon­unnar geta þeir aldrei fyr­ir­gefið. 

Uh……Er eitt­hvað hægt að segja við þess­ari full­yrð­ingu?

Er fráfælandi fyrir karlmenn

Annar partur bók­ar­innar fjallar um hvernig útliti konu skuli háttað vilji hún vekja athygli karl­manna og er þess vand­lega gætt að minna konur á að særa aldrei stolt karl­pen­ings­ins.

Þeir kæra sig ekki um að fara hall­oka eða verða vísað á bug. Þeir forð­ast því meyj­una, sem virð­ist þeim svo miklu framar í útliti, að þeir gera sér engar vonir um að ná hylli hennar. Vertu ekki þannig að eng­inn þori að nálg­ast þig. Allt of skraut­leg greiðsla, of farðað and­lit, of áber­andi kjóll – allt er þetta frá­fælandi fyrir karl­menn.

Veittu fylgi­naut þínum þann heiður að gefa honum óskipta athygli þína, er hann talar við þig. Sýndu ánægju þína yfir þeirri skemmtun sem hann kann að veita þér. Vertu ekki að lát­ast vera nein heims­kona í háttum þínum.

Þeir kunna vel við fallega fótleggi

Höfundur er aug­ljós­lega sér­fræð­ingur í smekk karl­manna eins og sjá má af eft­ir­far­andi alhæf­ingum:

Karlmenn hríf­ast frekar af glað­legu and­liti en mjög fríðu. Ánægjan, sem karl­menn hafa af því að horfa á ólund­ar­legt and­lit, er aðeins fólgin í vit­neskj­unni um að þeir þurfi ekki að hafa þau fyrir augum alla daga.

Karlmenn kjósa heldur konu sem er kven­leg, en hina sem er áber­andi fegruð og nýtízkuleg. Þeim geðj­ast að hári, sem er mjúkt á að líta, hreint og gljá­andi. Þeim líkar vel vara­litur, en mis­líkar að hann sé eins og klessu­verk. Þeir kunna vel við venju­lega liti, blátt, ljós­rautt, mar­ínu­blátt, rautt, en þeir kunna illa við áber­andi lita­sam­setn­ingar. Þeir kunna vel við fal­lega hatta, helst frekar stóra, en þeir kunna illa við ein­kenni­lega lagað filt eða strá, sem þeim finnst skrýtið og fara illa. Þeir kunna vel við föt, sem fara vel og dylja ekki, að þér eru kven­vera. En þeir kunna illa við gróf og fyr­ir­ferð­ar­mikil föt, sem hylja allt vaxt­ar­lag. Þeir vilja fyrir hvern mun losna við að sjá í gegn það sem inn­an­klæða er, eins og mjaðma­belti eða líf­stykki.

Þeir kunna vel við fal­lega fót­leggi.

Drekkið ekki áfengi

Það var aug­ljós­lega engin #metoo hreyf­ing komin árið 1945 eins og lesa má:

Þegar maður, sem lítur á yður, hefur virt fyrir sér and­lit yðar og klæða­burð, veitir hann athygli svip­brigðum yðar. Vitandi eða óað­vit­andi athugar hann hvort þér eruð „lif­andi“ vera, rösk­leg á að líta.

Þau áhrif, sem hann verður fyrir, nærst allra fyrstu sýn, eru undir fjöri yðar og rösk­leika komin. Með fjöri á ég ekki við ung­meyj­ar­leg láta­læti og fliss, heldur lífs­fjör, blátt áfram, frjáls­lega fram­komu, sem ber vott um lífs­þrótt, lif­andi áhuga og greind.

Drekkið ekki áfengi svo þér verðið ekki kennd eða ást­leitin og sýnið ekki mann­inum nein blíðu­at­lot, þó sak­leys­is­leg séu. Það kann að mis­skilj­ast og er rangt gagn­vart mann­inum.

Svo mörg voru þau orð. Bókin var íslenskuð árið 1945.

Þessi speg­ill birt­ist áður 26 júní 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Baksýnisspegillinn

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Íslend­ingur kom upp um rúss­neska njó­sn­ara: „Tveir af njósn­urum erlends stór­veldis stóðu afhjúpaðir“

Styrmir Gunn­ars­son heit­inn er ekki eini njósn­ari Íslands­sög­unnar. Á meðan Styrmir njósn­aði um vinstri­s­inn­aða Íslend­inga fyrir Banda­ríkin og Sjálf­stæð­is­flokk­inn, reyndu Soví­et­menn að fá Ragnar nokkurn Gunn­ars­son til lags við sig. Árið 1962 hafði Ragnar sam­band við lög­regl­una og tjáði þeim frá því að Soví­et­menn væru að biðja hann um að ger­ast njósn­ari í þeirra þágu. Við tók reyfara­kennd atburða­rás sem...
Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Glitfaxi – flug­vélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hug­hvarf“

Þann 31. jan­úar 1951 lagði Dagota flug­vél Flug­fé­lags Íslands að nafni Glitfaxi af stað í áætl­un­ar­flug frá Vest­manna­eyjum til Reykja­víkur. Um borð var þriggja manna áhöfn og sautján far­þegar. Veðrið var vafa­samt en hríða­bylur var úti og ekki hafði verið flogið til eða frá Eyjum í þrjá daga vegna veð­urs­ins. Rétt fyrir fimm var Glitfaxi staddur yfir stefnu­vita Reykja­vík­ur­flug­vallar á...
Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Frækileg björgun Víkverja er Sig­ur­björg strand­aði – Aðstæður erf­iðar vegna roks og sand­byls

Föstu­dag­inn 7. mars árið 1981 strand­aði bát­ur­inn Sig­ur­bára VE-249, á Skóg­ar­sandi. Sjö menn voru í áhöfn báts­ins en tókst að bjarga þeim öllum. Vest­manna­eyja­radíó til­kynnti björg­un­ar­sveit­inni Víkverja frá Vík í Mýrdal klukkan 10:50 föstu­dags­morg­un­inn 7. mars 1981, að Vest­manna­eyja­bát­ur­inn Sig­ur­bára VE-249 hefði strandað á Skóg­ar­sandi. Björg­un­ar­sveitin, sem var þaul­vön álíka björg­unum, var ekki í miklum vand­ræðum með að bjarga öllum...
Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyja­firði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrek­aðir

Fimm ungir skátar frá Akureyri lögðu af stað í leið­angur í Eyja­firði annan í jólum 1980. Aðeins þrír þeirra komu lif­andi úr ferð­inni. Fimm manna skáta­hópur lentu í skelfi­legu óveðri, sem eng­inn hafði búist við, þegar þeir tjöld­uðu í Finna­staða­dal annan í jólum 1980. Í óveðr­inu fauk ofan af þeim annað tjald þeirra af tveimur. Ákváðu þeir því að ganga...
Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Hópur afbrotaung­linga napp­aður á Sauð­ár­króki – Innbrot, búðar- og jóla­skraut­s­þjófn­aður

Hópur afbrotaung­linga var hand­samaður á Sauð­ár­króki í des­em­ber árið 1980 en höfðu þeir þá stolið úr versl­unum í bænum fyrir hátt á fjórðu milljón króna. Í ein­hvern tíma á seinni­hluta árs­ins 1980, hafði stór hópur afbrotaung­linga á Sauð­ár­króki gert það sem „starfs­heiti“ þeirra ber með sér, framið afbrot víðs­vegar um bæinn. Ekki höfðu þeir ein­ungis brot­ist inn í versl­anir í...
Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Íslend­ingur yfir­bug­aði banka­ræn­ingja í Kaup­manna­höfn: „Hann er spennu­fík­ill“

Ungur íslenskur spennu­fík­ill komst í frétt­irnar í Danmörku þegar hann yfir­bug­aði banka­ræn­ingja. Brynjar Jökull Elíasson, þá 27 ára, var staddur á mót­or­hjóli sínu á rauðu ljósi í Kaup­manna­höfn fimmtu­dag­inn 29. apríl árið 1999, þegar hann verð var við fimm hettu­klædda menn koma hlaup­andi út úr banka og stökkva upp á skell­inöðrur. Beið hann ekki boð­anna heldur hent­ist strax af stað...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins