„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Þessi stjórnlausi ferðaiðnaður er orðin alger plága fyrir alla landsmenn“

„Þessi stjórnlausi ferðaiðnaður er orðin alger plága fyrir alla landsmenn“

Þór Saari, fyrr­ver­andi þing­maður, virð­ist hafa fengið sig fullsaddan af því hvernig Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, ræðst gegn Agli Helga­syni. Egill sagði að honum hrjósi hugur við kröfu um að túristar kom­ist þangað sem þeir vilja í öllu veðri. Jóhannes kall­aði þetta væl hjá Agli.

Þór segir ferða­þjón­ust­una ein­fald­lega ótrú­lega freka. „Frekja, yfir­gangur og það sem virð­ist hrein heimska, er það sem ein­kennir ferða­iðn­að­inn hér á landi og Samtök ferða­iðn­að­ar­ins, með Jóhannes Þór og Bjarn­heiði í broddi fylk­ingar, koma orðið fram af hreinni fyr­ir­litn­ingu við sjálf­boða­liða björn­un­ar­sveita, starfs­menn Vega­gerð­ar­innar og allan íslenskan almenn­ing,“ skrifar Þór á Facebook.

Hann heldur áfram: „Það er í raun alveg með ólík­indum að þessu fólki hafi dottið það í hug að stjórn­laus vetr­ar­ferða­mennska á Íslandi væri góð hug­mynd, en sú frá­leita nið­ur­staða var keyrð áfram af hreinum draum­órum, græðgi, og af Íslands­stofu, sem er fjár­mögnuð af rík­is­sjóði en hverra árs­reikn­ingar eru samt ekki opin­berir.“

Þór segir gengd­ar­lausa græðgi ráða för. „Vita­skuld á að loka vegum miklu meira og oftar en gert er, einmitt vegna þess­arar gengd­ar­lausu græðgi sem drífur ferða­iðn­að­inn áfram og gerir það að verkum að legíó af erlendum ferða­mönnum sem kunna ekki að keyra, teppa veg­ina og gera það að verkum að sjálf­boða­liðar björg­un­ar­sveit­anna fá ekki að halda jól með fjöl­skyldum sínum,“ segir Þór.

„Þessi stjórn­lausi ferða­iðn­aður er orðin alger plága fyrir alla lands­menn, þó örfáir græði kannski drjúgt á fyr­ir­bær­inu. Mest allur hagn­að­ur­inn fer að sjálf­sögðu úr landi og inn á leyni­reikn­inga í skatta­skjólum, líka end­ur­greiddur virð­is­auka­skattur, en sem kunn­ugt er, þá er ferða­iðn­að­ur­inn á sér­stöku VSK þrepi og mis­mun­ur­inn á inn- og útskatti  er hvorki meira né minna en þrettán pró­sentu­stig, sem eru umtals­verðar upp­hæðir og gefur ágætis tekjur meðan verið er að greiða upp kostnað við upp­bygg­ingu og hluta rekstrar.“

Þór segir margt þurfa að gera til að koma ferða­þjón­ust­unni í lag. „Það er margt sem þarf að gera til að koma ferða­iðn­að­inum í við­skiptaum­hverfi sem er í góðu sam­komu­lagi við almenn­ing í land­inu. Þar er mik­il­væg­ast að fækka ferða­mönnum umtals­vert svo okkar við­kvæma nátt­úra og umhverfi verði ekki fyrir meira tjóni. Fjölda­tak­mark­anir á helstu ferða­manna­stöðum eru líka mik­il­vægar og greiðsla umhverfis- og nátt­úru­vernd­ar­gjalds fyrir hverja gistinótt per mann, og hvern land­göngu­dag fyrir skemmti­ferða­skipin, þarf einnig að verða að raun­veru­leika. Auk þess þarf að taka á gríð­ar­legri CO2 losun ferða­iðn­að­ar­ins með kvöðum um raf­magns­bíla ein­göngu á bíla­leigum (auk bíl­prófs öku­manna að sjálf­sögðu), kvöðum um lengri dvöl á áfanga­stað, hér­lendis sem erlendis, til að fækka flug­ferðum og stöðva þessar „Bröns-til-Berlínar-“ og fót­bolta­leikja­ferðir, sem og skamm­tíma þriggja daga hringakst­urs­ferðir erlendra ferða­manna sem kom alla leið frá Kína til að keyra hring­inn, en kunna fæstir að keyra,“ segir Þór.

Hann segir ferða­iðn­að­inn nú þegar hafa eyði­lagt Mið­borg­ina. „Þessi iðn­að­ar­ferða­mennska hefur gert mið­borg Reykja­víkur að menn­ing­ar­legri eyði­mörk fyrir Íslend­inga, hvort sem um er að ræða góð­viðr­is­daga á sumrin eða jóla- og ára­móta­stemn­ingu. Miðborg Reykja­víkur er ekki lengur sá menn­ing­ar­legi og félags­legi sam­komu­staður sem mið­borg höf­uð­borgar ríkis á að vera, heldur risatór sjoppu­höll með enda­lausum röðum af lunda­búðum, gisti­húsum og skyndi­bita­stöðum, mönn­uðum með erlendu starfs­fólki sem fær lús­ar­laun. Að heyra íslensku er und­an­tekn­ing. Íbúar þétt­býl­i­staða lands­byggð­ar­innar hafa heldur ekki farið var­hluta af og eru líka orðnir aukatriði í sínu sam­fé­lagi og eru beðnir um að halda sig fjarri mið­bæjum stað­anna þegar skemmti­ferða­skip eru í höfn,“ segir Þór og bætir við að lokum:

„Það er fyrir löngu orðið tíma­bært að stjórn­völd lands­ins taki á þess­ari óværu sem ferða­iðn­að­ur­inn er og komi þessum geira atvinnu­lífs­ins í fast­mótað og skil­virkt horf, horf sem er í sátt við lands­menn og sem gerir það að verkum að við sem búum hér séum ekki auka­at­riði í eigin landi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins