„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Flótti af bráðamóttöku: „Engum hollt að starfa í því umhverfi, því síður að sækja þjónustu þangað“

Flótti af bráðamóttöku: „Engum hollt að starfa í því umhverfi, því síður að sækja þjónustu þangað“

Nokkuð mörg dæmi eru þess að sér­fræði­menntað starfs­fólk hafi hætt störfum á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans, en svo segir for­maður Félags sjúkra­hús­lækna.

Þrátt fyrir að fjár­veit­ingar til spít­al­ans hafi auk­ist mun það taka marga mán­uði að ráða sem og þjálfa upp starfs­fólk.

Lækn­ir­inn Eggert Eyj­ólfs­son birti í gær færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann segir frá upp­sögn sinni á bráða­mót­töku, og segir Eggert engum hollt að starfa í því umhverfi sem fólki sé þar búið; því síður að sækja þjón­ustu þangað.

„Því miður eru all­mörg dæmi um það að sér­mennt­aðir bráða­læknar hafi sagt upp störfum sein­ustu miss­eri,“ segir Theódór Skúli Sig­urðs­son í sam­talið við ruv.is, en hann er for­maður Félags sjúkra­hús­lækna.

Segir hann ástæðu þess­ara upp­sagna vera alltof mikið álag:

„Og þetta eru skörð sem er mjög erfitt að fylla upp í. Bæði hvað varðar bráða­lækn­ana og hjúkr­un­ar­fræð­ing­ana. Mikil reynsla sem hverfur þarna. Þannig þetta er gríð­ar­leg blóð­taka fyrir starf­semi bráða­mót­tök­unnar,“ segir Theódór Skúli.

Mikið hefur verið um afar skæðar umgangspestir og starfs­fólk Land­spít­ala sendi frá sér neyð­ar­kall á milli jóla og nýárs vegna ástands­ins.

Formaður Lækna­fé­lags Íslands sagði ástandið verra en áður.

Formaður stjórnar Land­spít­ala, Björn Zoëga, sagði fyrr í vik­unni að þetta sé ekki lengur spurn­ing um pen­inga; spít­al­inn sé vel fjár­magn­aður og að það þurfi að ein­falda skipu­lag og draga úr yfir­bygg­ingu:

„Það eru nátt­úru­lega ákveðnar gleði­fréttir að stjórn­ar­for­maður Land­spít­al­ans telji að það sé búið að fjár­magna spít­al­ann loks­ins, en það breytir því ekki að mönn­un­ar­vanda­mál spít­al­ans er upp­safn­aður vandi, ára­tuga vandi. Og það verður ekki leyst á einni nóttu,“ segir Theódór Skúli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins