„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Helga Vala gagnrýnir Willum Þór harðlega: „Var kannski ekki best að kjósa Fram­sókn?“

Helga Vala gagnrýnir Willum Þór harðlega: „Var kannski ekki best að kjósa Fram­sókn?“

Þingkona Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Helga Vala Helga­dóttir, gefur heil­brigð­is­ráð­herra, Willumi Þór Þórssyni, nokkrar snöggar stungur í pistli sem birt­ist var í Morg­un­blað­inu í dag.

Helga Vala er undr­andi á stöð­unni í heil­brigð­is­kerf­inu hér á landi í ljósi kosn­inga­lof­orða Fram­sókn­ar­flokks­ins fyrir kosn­ing­arnar árið 2021:

„Sagðist flokk­ur­inn vilja skoða hvort til­efni væri til auk­ins einka­rekst­urs inn­an heil­brigðis­geir­ans, skila sem best­um og skjót­ust­um ár­angri, ráð­ast í fyr­ir­byggj­andi aðgerðir til að koma í veg fyr­ir vanda síðar og síð­ast en ekki síst tryggja öll­um íbú­um lands­ins þjón­ustu óháð bú­setu og efna­hag.“

Bætir við:

„Tvisvar á ári fær fjár­laga­nefnd inn­lit inn í heil­brigðis­kerfið við yf­ir­ferð sína um fjár­lög og fjár­mála­áætl­un og fær því býsna góða yf­ir­sýn yfir það hvar skór­inn krepp­ir og hvar hægt er að efla þjón­ustu og jafn­framt hag­ræða.

Nú þegar Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hef­ur ann­ast mála­flokk­inn í rúmt ár fáum við eng­ar fregn­ir af áætl­un­um ráð­herra en hins veg­ar stöðugar fregn­ir af upp­sögn­um lyk­il­starfs­fólks af Land­spít­ala. Sex af níu sér­fræði­lækn­um á bráða­mót­töku hafa sagt upp störf­um og tug­ir hjúkr­un­ar­fræð­inga flúðu óboð­leg­ar starfs­að­stæður. Reynd­ur sér­fræði­lækn­ir sem af­henti upp­sagn­ar­bréf sitt um ára­mót greindi svo frá að margít­rekað ákall til stjórn­valda um aukn­ar fjár­veit­ing­ar og aðgerðir hefði engu skilað.“

Helga Vala gagn­rýnir einnig ummæli Björns Zoega, fyrr­ver­andi for­stjóra Land­spít­al­ans og ráð­gjafa heil­brigð­is­ráð­herra, um að spít­al­inn væri ekki van­fjár­magn­aður:

„Nán­asti ráð­gjafi heil­brigð­is­ráð­herra svar­aði heil­brigðis­starfs­fólk­inu brott­flúna og þeim sem enn þrauka í störf­um sín­um með því að Land­spít­al­inn væri vel fjár­magn­aður. Sagði hann þurfa að for­gangs­raða í störf­um inn­an spít­al­ans en viður­kenndi reynd­ar að það sem mætti einnig nefna væri að verk­efni spít­al­ans væru of mörg!“

Vel­ferð­ar­nefnd Alþingis á síð­asta kjör­tíma­bili – undir for­mennsku Helgu Völu – grand­skoð­aði heil­brigð­is­kerfið til að kom­ast að því hvar væri hægt að bæta flæði sem og verk­efna­stjórn.

Hún segir að í nið­ur­stöðum þeirrar vinnu hafi verið bent á að víða mætti dreifa verk­efnum betur; til þess þyrftu þó stjórn­völd að veita aukið fjár­magn til ann­arra heil­brigð­is­stofn­ana Íslands:

„Við það að fjár­magn til heil­brigðis­stofn­ana um landið minnk­ar skerð­ist þjón­ust­an sem lend­ir á Land­spít­ala. Land­spít­al­inn er því í dag allt í senn þjóðar­sjúkra­hús, há­skóla­sjúkra­hús, bráða­sjúkra­hús, hér­aðs­sjúkra­hús og ann­ast öldrun­arþjón­ustu. En ráð­herr­ann hef­ur ekki kynnt nein­ar fyr­ir­ætlan­ir í þá veru held­ur send­ir sinn helsta ráð­gjafa út í fjöl­miðla til að mót­mæla brott­flúnu og yfir­keyrðu starfs­fólki sem reyn­ir eft­ir fremsta megni að veita nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu. Eng­in skila­boð eru um ein­hverja fram­tíðar­sýn, eng­in skila­boð til fólks um að það sé betra í vænd­um. Var kannski ekki best að kjósa Fram­sókn?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins