„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Stefán segir fjármálaráðuneytið lofa landsmönnum 50 þúsund krónum sem aldrei koma

Stefán segir fjármálaráðuneytið lofa landsmönnum 50 þúsund krónum sem aldrei koma

Stefán Ólafsson, pró­fessor í félags­fræði við Háskóla Íslands, segir í pistli sem hann birtir á Facebook að fjár­mála­ráðu­neytið gangi óvenju langt í að villa um fyrir fólki í frétta­til­kynn­ingu sem það birti í gær. Í til­kynn­ing­unni var full­yrt að kaup­máttur heim­ila myndi aukast á árinu, nánar til­tekið um 50 þús­und á mán­uði. Stefáni segir þetta ekki stand­ast skoðun.

Pistill Stefáns í heild sinni

KOSTULEG FRÉTTATILKYNNING FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIS

Fjár­mála­ráðu­neytið sendi frá sér frétta­til­kyn­ingu í gær (06.01.2023) undir fyr­ir­sögn­inni „Útlit fyrir auk­inn kaup­mátt heim­ila á árinu“.

Þar er eft­ir­far­andi full­yrt: „Útlit er fyrir að kaup­máttur heim­ila auk­ist að nýju á árinu, sé tekið mið af nýund­ir­rit­uðum kjara­samn­ingum á almennum mark­aði. Áætla má að ráð­stöf­un­ar­tekjur með­al­ein­stak­lings á almennum vinnu­mark­aði verði um það bil 50 þús­und krónum meiri í hverjum mán­uði í ár en í fyrra, bæði vegna hækk­unar með nýjum kjara­samn­ingum og breyt­inga í tekju­skatts­kerf­inu þar sem per­sónu­af­sláttur og þrepa­mörk hækka um 10,7%.“

Og síðar í til­kynn­ing­unni kemur þetta: „Áætla má, miðað við nið­ur­stöður launa­rann­sóknar Hag­stof­unnar og með hlið­sjón af nið­ur­stöðum kjara­samn­inga, að ráð­stöf­un­ar­tekjur með­al­ein­stak­lings á almennum vinnu­mark­aði verði u.þ.b. 50 þús. kr. meiri í hverjum mán­uði í ár en í fyrra, þar af 8 þús. kr. meiri vegna upp­færðra við­miða tekju­skatts.“

Með þessu er dregin upp mjög vill­andi mynd. Ráð­stöf­un­ar­tekjur eru heild­ar­tekjur eftir skatt. Með­al­hækkun launa­taxta í nýgerðum kjara­samn­ingi Starfs­greina­sam­bands­ins (SGS) eru um 42.000 kr. á mán­uði. Þetta er tekið sem aukn­ing „ráð­stöf­un­ar­tekna“ í frétta­til­kynn­ing­unni (en þá á eftir að draga skatt­inn frá). Við þessar 42.000 kr. er síðan bætt 6.000 króna hækkun per­sónu­af­sláttar og 2.000 krónum vegna upp­færslu við­miða fyrir álagn­ing­ar­þrep í tekju­skatt­inum, alls 8 þús. krónum. Þannig fær ráðu­neytið það út að „ráð­stöf­un­ar­tekjur muni aukast um 50.000 kr. á mán­uði“ á árinu 2023.

Til að þetta gæti stað­ist þyrfti þessi launa­hækkun að vera skatt­frjáls og reglu­bundin upp­færsla við­miða í tekju­skatts­kerf­inu að vera ígildi skatta­lækk­unar. Hvorugt fær stað­ist, eins og allir hljóta að sjá. Auðvitað þarf að greiða fullan tekju­skatt af launa­hækk­un­inni (um þriðj­ung fyrir lág­launa­fólk), enda kemur hún ofaná laun sem eru að full­nýta per­sónu­af­slátt­inn nú þegar.

Hækkun við­mið­anna í tekju­skatt­inum er til að tryggja að skatt­byrðin verði svipuð á milli áranna 2022 og 2023, enda er um að ræða upp­færslu vegna verð­bólgu og fram­leiðni­aukn­ingar (9,6% verð­bólga+1,1% fram­leiðni­aukn­ing=10,7%). Þetta er því ekki skatta­lækkun, eins og sumir hafa þegar talið, enda má skilja frétta­til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins þannig. Það er kostu­legt að ráðu­neyti skatta­mála láti slíkt frá sér fara.

Ef þessi upp­færsla væri ekki gerð þá myndi skatt­byrðin aukast. Þetta fyr­ir­komu­lag á upp­færslu við­miða tekju­skatt­kerf­is­ins komst á sam­hliða gerð Lífs­kjara­samn­ings­ins og var mik­il­vægt, því stjórn­völd höfðu áður oft látið hjá líða að upp­færa við­mið skatts­ins nægi­lega til að við­halda óbreyttri álagn­ingu milli ára og í reynd þannig hækkað skatt­byrð­ina.

Raunar er einnig ýjað að því í frétta­til­kynn­ing­unni að „kaup­máttur“ ráð­stöf­un­ar­tekna með­al­ein­stak­lings á vinnu­mark­aði muni hækka um sem nemur þessum 50.000 krónum, enda hafa fjöl­miðar og aðrir þegar talað um þetta þannig. En til að það gæti stað­ist þyrfti verð­bólgan líka að vera horfin út úr mynd­inni. En hún er enn tæp­lega 10%.

Í þess­ari frétta­til­kynn­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins er þannig gengið óvenju langt í að villa um fyrir fólki og ber að harma svona vinnu­brögð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins