„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hundurinn sem hrapaði

Hundurinn sem hrapaði
Rakkinn Tinni. Mynd: Reynir Traustason

Það mátti heyra nið­ur­bælt skelf­ing­aróp frá göngu­fólk­inu sem horfði á hund­inn hrapa um 10 metra fram af hamri. Dýrið lenti á bak­inu með dynk og kastað­ist örlítið upp aftur eins og hálf­vind­laus bolti.

Rakkinn Tinni hefur fylgt mér í flestum ferðum mínum um fjöll á Íslandi. Laus­legur útreikn­ingur leiðir í ljós að hann hafi fylgt mér í 1.500 fjall­göngum. Tinni er af teg­und­inni American Cocker Spaniel sem þykir ekk­ert sér­lega gerð fyrir fjall­göngur. Þessi teg­und er frekar smá­vaxin og lágt undir kvið. Það er því fátt sem gefur til kynna að hann búi yfir getu á þessu sviði. En reynslan er önnur. Hann hefur farið allra sinna ferð um fjöll og að mestu án utan­að­kom­andi hjálpar. Und­an­tekn­ingin er lokakafl­inn upp á Þver­fells­horn Esjunnar. Þar er að finna áltröppu sem hjálpar göngu­mönnum að klöngr­ast upp ham­ar­inn. Þar þarf að lyfta undir Tinna.

Um miðja nótt vakn­aði ég við hviss­hljóð

Við félag­arnir höfum þvælst um allar koppa­grundir. Í lífi hunds­ins er það gjarnan hápunktur vik­unnar þegar við förum með Ferða­fé­lags­fólki í helg­ar­göngur. Þegar hann sér að ég tek til bak­pok­ann lifnar hann við og sest við úti­dyrnar og bíður. Dagana sem ég fer ekki á fjöll notar hann til að hvíl­ast og sofa. Svona hefur þetta verið síðan þessi átta ára rakki var fjög­urra mán­aða.

Rakkinn Tinni í slökun með bangsa.

Erf­ið­asta ferð hunds­ins var þegar við gengum á Krák, það fjall sem var hvað lengst úr alfara­leið. Krákur er um 25 kíló­metra frá Hvera­völlum, útvörður Arn­ar­vatns­heiðar í austri. Við félag­arnir úr göngu­klúbbnum Sófistum ákváðum að tjalda miðri leið að fjall­inu. Veður var ekki með besta móti. Það var súld og kalt. Vætan smaug í gegnum hlífð­ar­fötin. Tinni var orð­inn hund­blautur og í hvert skipti sem við stopp­uðum leit­aði hvolp­ur­inn skjóls. Við stopp­uðum stutt á hæsta tindi Kráks og héldum strax til baka og í tjald­búð­irnar. Ég gaf hund­inum kjöt­bita, fékk mér kakó­bolla, og skreið örþreyttur inn í tjaldið og hund­ur­inn á eftir mér. Til að ein­angra okkur frá jörðu hafði ég álteppi í botn­inn. Ég steinsofn­aði á auga­bragði. Um miðja nótt vakn­aði ég við hviss­hljóð og upp­götv­aði mér til ógleði að örþreyttur hund­ur­inn var að hafa þvag­lát. Það varð handa­gangur í öskj­unni þegar ég skutl­aði mér út úr tjald­inu og hóf hreinsi­starfið. Ég hafði ekki brjóst í mér til að skamma hvolp­inn fyrir að pissa undir eftir að þá þrekraun sem hann gekk í gegnum á tuga kíló­metra göngu.

Háski í Bakkaskarði

Tinni örmagna eftir göng­una á Krák.

Tinni komst einu sinni í lífs­háska. Þá vorum við að koma niður snar­bratt Bakka­skarð í Skálavík á heim­leið frá Galt­ar­vita ásamt hópi fólks frá Ferða­fé­lagi Íslands sem var að koma frá því að njóta þess að vera í vit­anum í Keflavík í algjörri ein­angrun við ysta haf. Frá brún liggur göngu­leiðin um snar­bratta skriðu. Leiðin klofnar neðar þar sem göngu­fólk getur valið milli þess að fara hinum megin við klett sem klýfur skrið­una. Sumir göngu­manna tóku þá ákvörðun að fara upp fyrir klett­inn en aðrir fikruðu sig með­fram honum. Það var þá sem Tinni missti áttir. Hann tók á sprett og ætl­aði að fylgja þeim sem tóku krók­inn en hætti við og anaði beint af augum, fram af klett­inum. Ég sá í sjón­hend­ingu hvar hund­ur­inn féll til jarðar. Mér sortn­aði fyrir augum. Þetta gat varla orðið annað en bani hans. Ég sá hvernig Tinni skall á jörð­inni á grastó neðan við klett­inn og kastað­ist aftur á loft. Mér virt­ist ein­sýnt að rakk­inn væri allur og hrað­aði mér til hans.

Í nokkrar sek­úndur lá hund­ur­inn hreyf­ing­ar­laus á bak­inu með lapp­irnar upp í loftið. Áhorf­endur voru sem stjarfir vegna örlaga dýrs­ins. Um það leyti sem ég kom að hund­inum sá ég hreyf­ingu á honum, mér til ofboðs­legs léttis. Svo velti hann sér með erf­ið­leikum á fæt­urna og stóð upp. Í smá­tíma var sem hann héldi ekki jafn­vægi og hann skjögraði. Ég sett­ist hjá honum og grand­skoð­aði hann. Hrygg­ur­inn var heill og hann stóð í fæt­urna. Við héldum áfram niður í Skálavík. Ég fylgd­ist grannt með dýr­inu. Hund­ur­inn bar ekki nein ein­kenni þess að fallið hefði skaðað hann. Tinni hafði kom­ist upp með að hrapa 10 metra. Þetta var ekk­ert nema krafta­verk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Baráttan við tindinn

Blaðamaður hrapaði til bana á Toupkal – Með íkornum og krákum í 4167 metrum Seinni hluti
Reynir Traustason
Skoðun

Reynir Traustason

Blaða­maður hrap­aði til bana á Toupkal – Með íkornum og krákum í 4167 metrum Seinni hluti

Við hvert skref var eins og fæturnir væru úr blýi. Ég horfði von­leys­is­lega upp snar­bratta brekk­una þar sem loka­mark­miðið, Toubkal, 4167, metra hár, blasti við mér. Lafmóður barð­ist ég áfram upp snar­bratt­ann. 50 skref áfram og svo hvíld. Gam­al­kunnug aðferð við erf­iðar aðstæður sem gjarnan hefur dugað. Guðrún og Mohamed komin lang­leið­ina upp á Toupkal.Mynd: Reynir Trausta­son. Dauðs­fall við tind­inn...
Niðurgangur við rætur Toupkal – Framliðinn hani og martröðin í Armed FYRRI HLUTI
Reynir Traustason
Skoðun

Reynir Traustason

Nið­ur­gangur við rætur Toupkal – Fram­lið­inn hani og martröðin í Armed FYRRI HLUTI

Fyrir fimm árum fékk ég þá hug­mynd að fara upp á Toubkal, hæsta tind­inn í Atlas­fjöll­unum í Marokkó. Ég hafði heyrt af frá­bærum far­ar­stjóra, Mohamed, sem hafði leitt íslenskan göngu­hóp um þessar slóðir. Ég setti mig í sam­band við kapp­ann sem tók því strax vel að leiða mig og sam­ferða­fólk á efsta tind. Þegar und­ir­bún­ingur stóð sem hæst hellt­ist Covid...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins