„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sverrir fer á Meistaramótið í snóker á afmælisdaginn sinn – Vinnur að heimildarmynd um klaustursöng

Sverrir fer á Meistaramótið í snóker á afmælisdaginn sinn – Vinnur að heimildarmynd um klaustursöng
Sverrir Guð­jóns­son og Elín Edda Árna­dóttir Portrett með leyfi: Brian FitzGibbon Mynd: Brian FitzGibbon

Afmæl­is­barn dags­ins er kontra­ten­ór­inn og lífskúnstner­inn Sverrir Guð­jóns­son en hann er 73 ára í dag.

Snemma komu söng­hæfi­leikar Sverris fram en hann var aðeins sjö ára gam­all er hann söng á söng­skemmtun við und­ir­leik föður síns, Guðjóns Matth­í­as­sonar á æsku­stöðvum sínum á Hellisandi en tólf ára gam­all söng hann inn á tvær litlar plötur. Sverrir nam söng á Íslandi sem og á Bret­landseyjum og síðan þá hefur hann sungið inn á mýmargar plötur, bæði undir eigin nafni og ann­arra, sem ein­söngv­ari. Þá er Sverrir einn af stofn­endum Voces Thules en á sínum yngri árum söng hann í hljóm­sveitum á borð við Pónik og þjóð­lagatríó­inu Þremil. Þá var hann vin­sæll bak­radda­söngv­ari í söng­keppni sjón­var­spins á níunda ára­tugnum.

Sverrir er giftur Elínu Eddu Árna­dóttur leik­mynda- og bún­inga­höf­und og eiga þau tvo syni, þá Daða og Ívar Örn.

Mannlíf hafði sam­band við afmæl­is­barnið og spurði hann hvort og þá hvernig hann ætl­aði að fagna deg­inum og ekki stóð á svörum.

„Flaug til London í morg­unsárið. Ferðin átti sér langan aðdrag­anda í tengslum við hið alþjóð­lega Meist­ara­mót í snóker sem fer fram í hinni forn­frægu „Alex­andra Palace“ í norð­ur­hluta Lund­úna­borgar. Við Hugi Guð­munds­son tón­skáld erum miklir aðdá­endur snókers­ins, og spilum þegar tæki­færi gefst, en hann býr í Kaup­manna­höfn. Hugi tók af skarið síð­ast­liðið sumar og pant­aði miða og bauð mér á mótið, en miðar selj­ast upp með löngum fyr­ir­fara. Ég fékk ekki mik­inn svefn fyrir flugið, því hinn mikli meist­ari snókers­ins, Ronnie O’Sullivan, fór á kostum á meist­ara­mót­inu og er nú kom­inn í und­an­úr­slit, sem von­andi verður leik­ur­inn sem við Hugi berjum augum. Við Elín Edda ákváðum að grípa tæki­færið og fljúga á afmæl­is­dag­inn minn og dvelja í nokkra daga í grennd við gömlu Hammersmith brúna, þar sem við bjuggum um nokkra ára skeið, ásamt strák­unum okkar. Hin fræga lista­manna­krá “The Dove” er þar á næstu grösum. Við Elín Edda ákváðum að taka leigu­bíl út á flug­völl og þegar ég nefndi Alex­andra Palace, þá lá við að hinn geð­þekki bíl­stjóri Birgir, þyrfti að stöðva bíl­inn. Hann hróp­aði upp yfir sig, „ertu virki­lega að mæta á meist­ara­mótið í “Allí Pall픓. Ég hafði lent á, að öllum lík­indum, eina bíl­stjór­anum sem er for­fall­inn snóker­að­dá­andi, fékk ungur ‘bakt­er­í­una’ og hefði getað orðið atvinnu­maður, var kom­inn með sinn einka­klúbb á tíma­bili, því ekki vant­aði hæfi­leik­ana.“

En hvað kemur til að Sverri hafi áhuga á snóker?

„Ég féll snemma fyrir snókernum. Við æsku­fé­lag­arnir bjuggum á Hjarta­torg­inu/Sirkus­reitnum/Vað­nes­hringnum og hófum fer­il­inn með því að svindla okkur inn bak­dyra­megin, enda undir lög­aldri. Stundum fórum við inn um glugg­ann á neðri hæð “Billans á Klapp­ar­stíg”, en vorum venju­lega gripnir af eig­endum stað­ar­ins, sem átt­uðu sig á að þarna væru fram­tíð­ar­spil­arar. Við æsku­vin­irnir höfum nú stofnað snókerklúbb og hitt­umst einu sinni í viku á “Billi­j­ard­stof­unni“ í Skeif­unni, sem er í raun “gamli bill­inn“, til þess að halda okkur í þjálfun, og í horf­inu. 

En hvað er svo framundan hjá Sverri?

„Hvað verk­efni varðar, þá er ég að vinna með líbanska/franska kvik­mynda­gerð­ar­mann­inum Jacques Debs og Marie Arnaud, heim­ilda­mynd sem nefn­ist “Chant of the Origines” og teng­ist Gregor söng klaustr­anna í gegnum ald­irnar. Brúin yfir til Íslands er hand­rit Þor­láks­tíða, ritað ca. 1400, sem teng­ist eina dýr­lingi Íslend­inga, Þorláki Þór­halls­syni, sem var biskup í Skál­holti á 12.öld og dvald­ist í París á fimm ára tíma­bili. Ég fékk sím­tal rétt í þessu, sem stað­festir að Stöð 3 í Frakk­landi hefur stað­fest sína aðkomu að fram­leiðslu mynd­ar­innar.

Einnig er verið að leggja loka­hönd á 50 mín tón­leika­mynd­band frá flutn­ingi á nýju verki “Aether“ eftir Hauk Gröndal, sem við í “Frels­is­sveit Íslands” fluttum á Jazzhátíð Reykja­víkur 2022, í Hörpu, ásamt hinum magn­aða finnska pían­ist Kari Ikonen. Verk Hauks, “Four Elements” flutti sveitin á Jazzhátíðinni 2020 og var tón­leika­myndin sýnd hjá Rík­is­sjón­varp­inu, unnin af Brian FitzGibbon.

Við Elín Edda stefnum á að skoða leik­hús og menn­ing­ar­líf þess­arar ynd­is­legu borgar, áður en við höldum yfir til Parísar, undir Erma­sundið, til þess að njóta góðra vina funda.“

Portrett með leyfi: Brian FitzGibbon

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Afmælisbarn dagsins

Össur á stórafmæli: „Ég fékk staup af ísköldu ákavíti í rúmið“
Menning

Össur á stóraf­mæli: „Ég fékk staup af ísköldu áka­víti í rúmið“

Össur Skarp­héð­ins­son er sjö­tugur í dag en það sem gerir stóraf­mælið enn merki­legra er sú stað­reynd að á morgun á eig­in­kona hans sjö­tugs­af­mæli. Afmæl­is­barn dags­ins er vel þekkt enda bæði ann­ál­aður húmoristi sem og áber­andi sem þing­maður og ráð­herra á sínum tíma. Var hann for­maður Alþýðu­flokks­ins sál­uga sem og Sam­fylk­ing­ar­innar um tíma. Þá gengdi hann nokkrum ráð­herra­stöðum, þar á meðal...
Jóhann Páll tekur því rólega í dag: „Ég er með afmæliskvíða, mér finnst mjög erfitt að eiga afmæli“
InnlentAfmælisbarn dagsins

Jóhann Páll tekur því rólega í dag: „Ég er með afmælisk­víða, mér finnst mjög erfitt að eiga afmæli“

Alþing­is­mað­ur­inn Jóhann Páll Jóhann­son er fæddur 31. maí, 1991; fagnar því 32 ára afmæli sínu í dag. Jóhann Páll eyddi bernsku­árum sínum í Laug­ar­ás­hverf­inu; var draumur hans að verða tón­list­ar­maður, þar sem að for­eldrar hans eru tón­list­ar­menn. Faðir hans er Jóhann G. Jóhann­son tón­skáld og móðir hans er Bryndís Páls­dóttir fiðlu­leik­ari. Jóhann Páll starf­aði hjá Stund­inni frá 2015-2019 en þar...
Haukur læknir og útivistargarpur: „Það er óvissudagur í boði eiginkonunnar“
InnlentAfmælisbarn dagsins

Haukur læknir og úti­vist­ar­garpur: „Það er óvissu­dagur í boði eig­in­kon­unnar“

Tauga­lækn­ir­inn Haukur Hjalta­son á afmæli í dag. Haukur fagnar 65 ára afmæli. Haukur er ekki síst þekktur sem úti­vist­ar­maður. Hann hefur um ára­bil gengið með Sófistum, göngu­hópi sem á rætur í Ferða­fé­lagi Íslands. Frægt er æfinga­kerfi sem hann þró­aði og göngu­fólk notar gjarnan á fjöllum. Kerfið heitir Hauk­ur­inn, honum til heið­urs. Mannlíf náði tali við Hauki og spurði hann um...
Kristján Jóhannsson eyðir hádeginu með börnum sínum: „Einfalt, gott og hjartnæmt“
Menning

Kristján Jóhanns­son eyðir hádeg­inu með börnum sínum: „Einfalt, gott og hjart­næmt“

Afmæl­is­barn dags­ins er óperu­söngv­ar­inn og gleði­gjaf­inn Kristján Jóhanns­son. Fagnar hann 75. ára afmæli sínu í dag. Kristján fædd­ist á Akureyri árið 1948. Hann fædd­ist í tón­list­ar­fjöl­skyldu en hóf þó ekki tón­list­ar­feril sinn fyrr en um tví­tugt. Kristján kom fyrst fram á Ítalíu í Osimo í leik­húsi að nafni „Teatro Piccolo la Fenice“. Síðar fór hann að syngja í leið­andi óperu­húsum...
Karl Kristján Davíðsson á afmæli í dag: „Bara að slaka á með fjölskyldunni“
InnlentAfmælisbarn dagsins

Karl Kristján Dav­íðs­son á afmæli í dag: „Bara að slaka á með fjöl­skyld­unni“

Afmæl­is­barn dags­ins er lista­mað­ur­inn Karl Kristján Dav­íðs­son; kapp­inn fagnar 46 ára afmæli sínu í dag. Karl er fæddur í Reykja­vík árið 1977. Ólst upp í Vest­ur­bænum og flutti svo um 11 ára aldur til Sví­þjóðar ásamt fjöl­skyldu sinni. Þar fékk Karl fljót­lega áhuga á mynd­list. Hann er fyrst og fremst sjálf­lærður lista­maður, en hefur sótt nokkur nám­skeið hér og þar....
Sanna Magdalena tók því rólega á afmælisdaginn: „Bara halda áfram að heyra í fólkinu í borginni“
Menning

Sanna Magda­lena tók því rólega á afmæl­is­dag­inn: „Bara halda áfram að heyra í fólk­inu í borg­inni“

Afmæl­is­barn dags­ins er engin önnur en Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins og ein bjartasta von íslenskra stjórn­mála. Eru 31 ár liðin frá fæð­ingu hennar. Sanna hefur verið áber­andi við að berj­ast fyrir rétt­indum fátækra síðan hún var kosin í borg­ina 2018, þá aðeins 26 ára gömul. Mannlíf heyrði í henni hljóðið og spurði hvernig hún ætl­aði að eyða afmæl­is­deg­inum. „Er...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza