„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Rúntað á Rucio – 15. þáttur: Paul McCartney stöðvar framgang íslenskrar tónlistar

Rúntað á Rucio – 15. þáttur: Paul McCartney stöðvar framgang íslenskrar tónlistar

Árið 1998 hófu vin­irnir Carlos Martínez Aguirre og Jón Sigurður sam­starf þar sem þeir bjuggu í Aþenu á Grikk­landi. Íslend­ing­ur­inn, sem þá kunni ekki að panta sér bjór á spænsku, hóf að semja lög við ljóð spænska skálds­ins sem síðan fór til Madrídar í sum­ar­frí og nýtti tím­ann þar til þess að ota þessum lögum að spænska trú­badornum Aute. Ekkert kom útúr því og hætti Jón Sigurður að hugsa um það mál uns Aute féll frá árið 2020, en talið er að hann hafi lát­ist af völdum kór­óna­veirunnar. Þá hefj­ast vanga­veltur Íslend­ings­ins varð­andi það hvort trú­bador­inn frægi hafi í raun fengið geisla­diskinn, hvort hann hafi hlustað á hann, hvort honum hafi þá hugn­ast það sem þar var að heyra og hvort hann hafi ein­hvern­tíman haft hug á að gera eitt­hvað í mál­unum.

Í þessum þætti verður þessum tveimur sögum skeytt saman svo hlust­endur kynn­ast Aute, sem var með fræg­ustu tón­list­ar­mönnum Spánar, en einnig merki­legur mynd­lista­maður, skáld, kvik­mynda­leik­stjóri og hand­rita­höf­undur. Og hin­vegar sög­unni af því hvernig tón­listin sem honum var send sum­arið 1998 fann sinn far­veg uppá fjal­irnar í Salnum í Kópavogi vorið 2004 þar sem Gísli Magna söng lögin sem samin voru undir Akrapól­is­hæð­inni sex árum áður. Tón­list­ar­fólkið þar var ekki af verri end­anum en auk Gísla voru þar Pétur Valgarð, gít­ar­leik­ari, Cheik Bangoura slag­verks­maður, Aðal­heiður Þor­steins­dóttir, píanó­leik­ari, og Birgir Thoraren­sen sem lék á kontra­bassa.

Þess má geta að Aute samdi lagið Aleluya no 1, Halelúja, sem síðar var flutt af Ed Ames en í enskum flutn­ingi var það tit­ilað Who Will Answer. Þar var stórt spurt og segir sagan að sá sem hafi tekið að sér að svara hafi verið eng­inn annar en Paul McCarteny í lagi sem allir þekkja. Kannski hafði það áhrif á Aute sem aldrei lét í sér heyra vegna tón­listar Íslend­ings­ins við ljóð vinar síns Carlosar Martínez Aguirre.

Þættinum lýkur svo með frá­bærum flutn­ingi þeirra Gísla og Aðal­heiðar á lag­inu Si pronto ya no saná, eða Ef ég læt ekki líkn­ast, en það ang­ur­væra lag samdi Jón Sigurður einmitt við ljóð Carlosar Martínez Aguirre í Aþenu árið 1998. Þess má geta að lesa má um þessi grísku ævin­týri í bók Jóns Sigurðar Tví­flautan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaðvörp

Sakamálið – 26. þáttur: Líkið var hlutað í „meðfærilega bita“
Menning

Saka­málið – 26. þáttur: Líkið var hlutað í „með­færi­lega bita“

Hvarf Trishu Autry árið 2000 var mikil ráð­gáta. Í ell­efu mán­uði biðu for­eldrar hennar á milli vonar og ótta. Óttinn átti rétt á sér vonin ekki. Þegar lík­ams­leifar Trishu fund­ust báru þær þess merki að hún hefði verið bútuð niður í „með­færi­lega bita“. Síðustu stundir Trishu í jarð­líf­inu urðu að lokum nokkuð ljósar og böndin bár­ust að manni sem var...
Sakamálið – 25. þáttur: Morðkvendið sem fór að dorga
Menning

Saka­málið – 25. þáttur: Morð­kvendið sem fór að dorga

Óhætt er að segja að Darlene Gentry hafi verið í djúpum skít þegar hringur lög­regl­unnar var far­inn að þrengj­ast um hana vegna dauða eig­in­manns hennar, Keith, sem að hennar sögn hafði verið skot­inn af inn­brots­þjófi. Lögreglu þótti margt loðið og ótrú­legt í frá­sögn Darlene, en skorti þó bein­harðar sann­anir. Eitt var það sem sár­lega skorti við rann­sókn máls­ins, en það...
Sakamálið – 23. þáttur: Tuttugu ára prísund hefðarkonunnar
Menning

Saka­málið – 23. þáttur: Tuttugu ára prís­und hefð­ar­kon­unnar

Lafði Elizabeth Cathcart taldi sig hafa fundið ást­ina þegar hún kynnt­ist írskum karl­manni, Hugh Maguire að nafni. Elizabeth keypti handa honum ofursta­tign og nán­ast bjarg­aði honum úr ræs­inu. Þau gengu síðar í hjóna­band, en Hugh reynd­ist hins vegar vera úlfur í sauð­ar­gæru og líf Elizabeth varð að hel­víti. En það gekk erf­ið­lega fyrir Hugh að brjóta eig­in­konu sína til hlýðni...
Sakamálið – 23. þáttur: Skapbráði verkamaðurinn í Bournemouth
Menning

Saka­málið – 23. þáttur: Skap­bráði verka­mað­ur­inn í Bournemouth

Samuel Elkins braut blað í sögu Bournemouth á Englandi. Reiði vegna brott­rekstrar olli því að hann ban­aði yfir­manni sínum. Lög­reglan átti erfitt með að trúa játn­ingu Elkins, enda höfðu smá­glæpir verið það eina sem hún hafði þurft að glíma við í kjör­dæm­inu. Við heyrum nú sög­una um skap­bráða verka­mann­inn Samuel Elkins … Hægt er að hlusta á allt hlað­varpið hér
Sakamálið – 22. þáttur: Skötuhjúin ósvífnu, Bonnie og Clyde
Menning

Saka­málið – 22. þáttur: Skötu­hjúin ósvífnu, Bonnie og Clyde

Sá ævin­týra­ljómi sem lék um Bonnie og Clyde í upp­hafi sam­eig­in­legrar sögu þeirra máð­ist skjótt. Róm­an­tíkin sem almenn­ingur í Banda­ríkjum kreppu­ár­anna tengdi við þau föln­aði og eftir stóðu for­hertir morð­ingjar. Það sem hófst sem ævin­týri ungs ást­fang­ins pars breytt­ist í flótta undan vörðum lag­anna og í kjöl­farið hrúg­uð­ust líkin upp. Hlustaðu á allt hlað­varpið hér.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza