„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ólöf sögð vinna með Mbl í ógeðslegu niðurrifi: „Hún er á framabraut innan Samfylkingarinnar“

Ólöf sögð vinna með Mbl í ógeðslegu niðurrifi: „Hún er á framabraut innan Samfylkingarinnar“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, lætur Ólöfu Helgu Adolfs­dóttur, rit­ara í stjórn Eflingar, heyra það í pistli sem hún birtir á Facebook. Hún segir Ólöfu haga sér eins og helsta and­stæð­ing verka­fólks. Því sé hún nú í miklu upp­á­haldi hjá Morg­un­blað­inu, að hennar sögn. Sólveig segir það skjóta skökku við við að Ólöf Helga sé á frama­braut innan Sam­fylk­ing­in­ar­innar en sé samt fyrst og fremst að stunda „auð­virði­legu nið­ur­rifi og ógeðs­legri aðför að hags­munum verka og lág­launa­fólks“.

Pistill Sólveigar í heild sinni

Á Mbl.is er því velt upp hvort ekki sé hægt að reka mig og félaga mína úr Eflingu fyrir svo­kall­aða “fram­komu” okkar í garð Ólafar Helgu, sem er með beina útsend­ingu um hitt og þetta á Mbl.is þessa dag­ana. Það er gaman að fylgj­ast með mik­illi og ein­lægri aðdáun Morg­un­blaðs­ins á póli­tískum frama­draumum Ólafar Helgu og Trump-ískri stað­festu hennar.

Rætt er við sér­fræð­ing í vinnu­rétti sem segir að nei, það sé ekki svo ein­falt að reka lýð­ræð­is­lega kjör­inn for­mann félags­ins og meiri­hluta stjórnar. Það eru eflaust sorg­legar fréttir fyrir hina og þessa, þeirra á meðal rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins. Það er ekk­ert talað um mögu­leikan á að grípa ein­fald­lega til valda­ráns í umfjöllun Mbl.is en ég reikna með að sú nálgun verði rædd innan skamms í leið­ara blaðs­ins og Ólöf hvött þar til dáða.

Ég veit að best væri fyrir mig að segja ekk­ert við þess­ari „frétta­mennsku“ og ein­lægum áhuga Moggans á hetju­dáðum Ólafar Helgu, kon­unnar sem ræðst ítrekað að félags­fólki Eflingar í sí-tryll­ings­legri til­raunum til að fá athygli í bar­áttu sinni gegn stjórn félags­ins, for­manni og samn­inga­nefnd, en ég fæ ekki lengur orða bund­ist. Hér segi ég því frá fremur nýliðnum atburðum í til­raun til að varpa ljósi á stöð­una í félag­inu:

Eins og þið kannski munið gerði Ólöf Helga til­raun til þess að fá öllum þing­full­trúum Eflingar, 54 tals­ins, for­manni félags­ins þar með töldum, vísað af þingi Alþýðu­sam­bands­ins í haust. Þetta gerði hún þrátt fyrir að kjör­bréfa­nefnd sem starf­aði í aðdrag­anda þings­ins á vett­vangi ASÍ hefði úrskurða kjör­bréf þing­full­trúa Eflingar lög­leg og þrátt fyrir lög­fræði­legt álit sem að sýndi fram á val á þing­full­trúum hjá félag­inu hefði verið í algjöru sam­ræmi við lög, reglur og hefðir Eflingar. Þessi aðför Ólafar að þing­full­trúum Eflingar, í sam­vinnu við Agnieszku Ewu, for­ystu­sveit ASÍ-ung, og nokkra aðila innan úr SGS félög­unum og sjó­manna­fé­lög­unum, vakti auð­vitað upp mikil við­brögð.

Eflingar-fólki var skilj­an­lega sár­lega mis­boðið yfir þess­ari aðför að félags­fólki og að lýð­ræð­is­lega kjör­inni for­ystu félags­ins, þess­ari grófu til­raun til að nið­ur­lægja okkur á vett­vangi hreyf­ing­ar­innar með því að láta reka okkur út af þing­inu eins og hvert annað óboðið hyski. Nokkrum dögum eftir aðför Ólafar Helgu og félaga að Eflingar-fólki barst mér áskorun, und­ir­rituð af því sem næst öllum þing­full­trúum Eflingar, þar sem skorað var á trún­að­ar­ráð félags­ins að beita 8. grein laga félags­ins um að svipta Ólöfu Helgu og Agnieszku Ewu rétti til að sinna trún­að­ar­störfum á vegum félags­ins, vegna þess tjóns og ógagns sem þær höfðu bakað félag­inu með for­dæma­lausu fram­ferði sínu á þingi ASÍ. Þetta er einmitt sú grein laga félags­ins sem að Mbl.is vísar til í umfjöllun sinni um hvort ekki sé hægt að reka for­mann, stjórn, og samn­inga­nefnd burt úr Eflingu svo að Ólöf Helga geti tekið við stjórn­ar­taumunum.

Ég með­tók áskorun þing­full­trúa og tók hana mjög alvar­lega. Undir hana rit­aði stór hópur félags­fólks sem tekið hefur virkan þátt í bar­áttu félags­ins. Sem for­manni ber mér að hlusta á raddir félags­fólks. En ég komst að þeirri nið­ur­stöðu að eiga sam­tal við þennan góða og mik­il­væga hóp þar sem ég bað þau um að sýna því skiln­ing að mín afstaða væri að ekki væri rétt að fara þessa leið. Að þær stöllur væru með­limir í stjórn félags­ins. Og að við þyrftum að gera okkar besta til að reyna að lifa með því, þrátt fyrir að fram­ferði þeirra væri óþol­andi og í raun ólíð­andi. Ég veit að ef til­laga þing­full­trúa Eflingar hefði verið borin upp á trún­að­ar­ráðs­fundi hjá félag­inu hefði hún verið sam­þykkt. Fram­ferði Ólafar, stöðugar árásir á kjörna for­ystu félags­ins, stöðugar til­raunir hennar til að hleypa upp starfi félags­ins, inn­brot hennar og Agnieszku Ewu í tölvu­póst­hólf mitt og útprent­anir á tölvu­póstum mínum, aðför að störfum samn­inga­nefndar félags­ins í harðri kjara­deilu; allt þetta hefur auð­vitað gert það að verkum a þol­in­mæði fólks gangvart henni og vara­for­manni er á þrotum.

Ég tel enn að það hafi verið rétt ákvörðun hjá mér að eiga sam­tal við þing­full­trúa Eflingar og biðja þá um að hlífa Ólöfu Helgu við þeirri nið­ur­læg­ingu að vera svipt rétti til að gegna trún­að­ar­störfum. Þrátt fyrir að ég hafi í raun verið afstöðu þeirra sam­mála, að Ólöf Helga sé ekki fær um að starfa af trún­aði og holl­ustu við félags­fólk og að fram­ferði hennar sanni það og sýni aftur og aftur. Þrátt fyrir að stjórn og nú samn­inga­nefnd hafi þurft að þola það sem virð­ist vera enda­lausan ill­vilja og hefnigirni Ólafar Helgu gagn­vart lýð­ræð­is­lega kjör­inni for­ystu félags­ins. Þrátt fyrir að aðför hennar að samn­inga­nefnd félags­ins fari eflaust í sögu­bæk­urnar sem eitt af lág­kúru­leg­ustu dæmum sem fólk veit af um per­sónu­lega frama­sýki ofar hags­munum ann­ara.

Ég hef vonað og vona enn að Ólöf Helga leyfi lýð­ræð­is­lega kjör­inni for­ystu félags­ins að starfa án þess að sitja undir stöð­ugum árásum. Ég hef vonað og vona enn að hún leyfi samn­inga­nefnd að halda áfram sínu mik­il­væga og góða starfi í þágu félags­fólks, án þess að þurfa að þola að mann­eskja sem nýtur einskis trausts, mann­eskja sem setur eigin hags­muni í heyranda hljóði og fyrir allra augum ofar hags­munum allrar samn­inga­nefnd­ar­innar og þeirra sem hún er að vinna fyrir, mann­eskja sem er með beina nið­ur­rifs-útsend­inu á Mbl.is bók­staf­lega heilu dag­ana til að grafa undan kjara­bar­áttu vinnu­afls höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, þröngvi sér upp á nefnd­inga í óþökk allra þar. Ég veit ekki alveg afhverju ég er að vona þetta.

Það er auð­vitað orðið fremur aug­ljóst að ein­stak­lega ólík­legt er að svo verði. En kannski getur ein­hver lið­sinnt Ólöfu Helgu og leitt henni fyrir sjónir að aðför sam­bæri­leg þeirri sem hún hefur staðið í gagn­vart verka­lýðs­fé­lagi í kjara­deilu er sjald­séð, nema af hálfu harðsvíraðra atvinnu­rek­enda og áróð­urs­meist­ara þeirra. Að kannski sé tíma­bært fyrir hana, sér­stak­lega með það í huga að hún er á frama­braut innan Sam­fylk­ing­ar­innar sem von­ar­stjarna svo­kall­aðs verka­lýðs­ráðs flokks­ins, að snúa sér að öðru en auð­virði­legu nið­ur­rifi og ógeðs­legri aðför að hags­munum verka og lág­launa­fólks. Kannski getur ein­hver hjálpað henni að skilja að það eru mjög raun­veru­legar og veiga­miklar ástæður fyrir því að hún er ekki vel­komin á fundi samn­inga­nefndar og að sem full­orðin mann­eskja eigi hún að reyna að horfast í augu við eigið fram­ferði og þær afleið­ingar sem að það hefur haft.

Að lokum: Vegna mik­ils áhuga vissra aðila á sam­setn­ingu samn­inga­nefndar Eflingar, vegna áróð­urs félag­anna Ólafar Helgu og Halldórs Benja­míns um að eitt­hvað sé athuga­vert við nefnd­ina, vil ég koma þessu á fram­færi:

Það voru 89 Efl­ing­ar­fé­lagar skip­aðir í samn­inga­nefnd Eflingar á fundi trún­að­ar­ráðs þann 20. októ­ber 2022. Af þessum 89 starfar 61 undir kjar­samn­ingum við SA og 28 undir opin­beru og afleiddum samn­ingum. Líkt og ávallt hefur verið hjá Eflingu þá starfar ein sam­eig­in­leg samn­inga­nefnd fyrir alla kjara­samn­inga­gerð meðan samn­ingar eru lausir, en nefnd­inni er heim­ilt að skipta með sér verkum skv. 18. grein laga Eflingar.

Myndin sem fylgir er úr frétt Mbl.is í dag. Ég ítreka að þarna er verið að ræða hvort að ekki sé hægt að reka for­mann og stjórn Eflingar úr félag­inu svo að Ólöf Helga geti farið sínu fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins