„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Össur og Sighvatur dásömuðu barnaníðing í Morgunblaðinu: „Mér þótti vænt um hann“

Össur og Sighvatur dásömuðu barnaníðing í Morgunblaðinu: „Mér þótti vænt um hann“

„Algjör­lega og þetta var fárán­legt. Þegar Gísli var bor­inn til grafar, ég hef aldrei lesið aðrar eins minn­inga­greinar. Það voru sitj­andi Alþing­is­menn að skrifa minn­ing­ar­greinar í blöðin þar sem mað­ur­inn er dásamaður og honum lyft upp til skýj­anna. Þetta er svo öfug­snúið og galið. En það ger­ist alltaf þegar stemmn­ing nær suðu­punkti í ein­hverja svona eina átt þá tapar fólk sér, allt sam­hengi glat­ast og öll örlítil krítík þornar og gufar upp.“

Þessi orð eru höfð eftir Andra Ólafs­syni, fyrr­ver­andi blaða­manni, í frétt sem birt­ist á Vísi fyrr í dag sem unnin var upp úr við­tali við hann í þætt­inum Eftirmál, sem Nadine Guðrún Yaghi og Þór­hildur Þor­kels­dóttir stýra. Andri er mað­ur­inn sem skrif­aði nú fræga frétt í DV um barn­a­níð kenn­ara á Ísafirði, Gísla Aðal­steins Hjart­ars­sonar. Fyr­ir­sögnin á for­síðu DV er nú löngu orðin fræg: „Ein­hentur kenn­ari sagður nauðga piltum“.

Gísli svipti sig lífi þegar málið komst upp og vildu margir kenna DV um það. Svo margir raunar að má tala um sef­sýki sam­fé­lags­ins en líkt og Andri bendir á hér fyrir ofan þá var Gísli dásamaður af stjórn­mála­mönnum í minn­ing­ar­greinum í Morg­un­blað­inu. Gísli við­ur­kenndi sök í bréfi sem hann skyldi eftir sig og því óum­deilt að hann var sekur um barn­a­níð. Ekki er vitað hve marga drengi Gísli mis­not­aði en þeir voru í það minnsta þrír.

Það voru Össur Skarp­héð­ins­son og Sig­hvatur Björg­vins­son sem ákváðu að stinga niður penna og dásama Gísla í minn­ing­ar­greinum sem birt­ust í Morg­un­blað­inu. Þær eru aðgengi­legar í heild sinni á tíma­rit.is og má sjá þær hér. Báðir voru í Alþýðu­flokknum sem síðar varð Sam­fylk­ingin.

„Nú er Gísli geng­inn – fyrr en nokkurn varði. Ævi sér­hverrar mann­eskju hefur sínar björtu hliðar og sínar miður björtu. Enginn er þar und­an­tekn­ing. Þannig er lífið. Minn dómur um Gísla Hjart­ar­son er um þann Gísla, sem ég þekkti og hafði þekkt bæði vel og lengi. Mér þótti vænt um hann. Þannig minn­ist ég hans. Gísli Hjart­ar­son var vinur minn.“ Svo lýkur Sig­hvatur nokkuð langri minn­ing­ar­grein sinni og er hann titl­aður fyrr­ver­andi þing­maður og for­maður Alþýðu­flokks­ins.

Ljóst er að stjórn­mál hafa átt sinn þátt í mál­inu enda segir Sig­hvatur að Gísli hafi hjálpað mörgum í kosn­inga­bar­áttu sinni á Vest­fjörðum. „Gísli var ekki bara áhuga­maður heldur líka ákafa­maður í póli­tík og þeir sem áttu stuðn­ing hans áttu hann allan og óskiptan. Þá sögu geta fleiri sagt en ég – þar á meðal eru ein­stak­lingar eins og fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ingar, Össur Skarp­héð­ins­son, og for­seti lýð­veld­is­ins, Ólafur Ragnar Grímsson, en báðir þessir ein­stak­lingar nutu atfylgis Gísla Hjart­ars­sonar í bar­áttu sinni fyrir þeim fram­gangi, er þeir fengu.“

Össur segir Gísla hafa verið einn af stofn­endum Sam­fylk­ing­ar­innar í sinni minn­ing­ar­grein. „Gísli var frá fyrstu tíð einn af mót­orum vinstri manna um alla Vest­firði og víðar. Hann var í for­ystu rót­tækrar æsku á Vest­fjörðum og lengi for­maður Alþýðu­banda­lags­ins á Ísafirði. Í átök­unum í kringum stofnun Sam­fylk­ing­ar­innar skipti það heldur betur máli þegar rót­tækur vinstri sinni einsog hann ákvað að ganga til liðs við okkur. Hann var einn af stofn­endum flokks­ins, og meðal þeirra manna sem ég var í stöð­ugu sam­bandi við svo að segja í hverri viku. Ég þáði frá honum ráð, lét hann stappa í mig stál­inu og stapp­aði hann á móti, því Gísli var leit­andi sál og einsog á prest­ana sótti stundum á hann efi um að fagn­að­ar­er­indið væri nógu tært.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins