„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lenya Rún varaþingmaður var lögð inn á Klepp viku eftir Silfrið: „Ég tek brjálæðiskast“

Lenya Rún varaþingmaður var lögð inn á Klepp viku eftir Silfrið: „Ég tek brjálæðiskast“
Lenya Rún

„Þarna var ég í Silfrinu að rök­ræða við ein­hverja póli­tíkusa um mál­efni líð­andi stundar. Svo fer ég heim og tek eitt­hvað kast. Ég tek brjál­æðiskast því ég var svo ótrú­lega svöng og undir svo miklu álagi,“ sagði Lenya Rún Taha Karim, vara­þing­maður Pírata í ein­lægu við­tali í sjón­varps­þætt­inum Okkar á milli með Sig­ur­laugu Margréti Jón­as­dóttur á RÚV í gær.

Lenya hefur glímt við átröskun frá árinu 2013. Hún seg­ist hafa verið föst í því að vera full­komin og vildi hafa stjórn á öllu í kringum sig. Hún tók ekki eftir því hvað hún var veik fyrr en viku fyrir inn­lögn á Klepp. Þar dvaldi hún í 8 vikur í með­ferð við átröskun.

Þó að hún sé á góðum stað er hún með­vituð um að hún sé enn veik og átta vikna inn­lögn geri þannig séð lítið sem ekk­ert.„Það eina sem ég fékk út úr þessu er bara byrj­unin á því að geta borðað aftur og til­einkað mér öðru­vísi tæki og tól til að kljást við þessar erf­iðu til­finn­ingar sem ég fæ stundum. En ég er samt sem áður skít­hrædd við þetta, þetta er svo fín lína“.

Bætir við:

„Það er eng­inn full­kom­inn og það er ekki hægt að hafa stjórn á öllu, þannig er bara lífið. Ég var bara dottin í ein­hverja holu. Ég fann bara fyrir því að ég var að deyja. Það var alveg smá högg að átta sig á því.“

Lenya dregur ekk­ert undan og hvetur alla til að leita sér aðstoðar ef það glímir við veik­indi; henni finnst mik­il­vægt að taka sam­talið um geð­ræna sjúk­dóma og hún ætlar að halda áfram að berj­ast fyrir geð­heil­brigð­is­málum á Alþingi; heil­mikið vanti enn upp á aðstöð­una á Kleppi og að það þurfi að gera mun betur:

„Þetta eru algjör for­rétt­indi og alls ekki sjálf­sagður hlutur, að vera á lífi. Þess vegna langar mig líka að ítreka mik­il­vægi þess að leita sér hjálpar þegar fólk er að glíma við ein­hvers konar geð­ræn vanda­mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins