„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ómar Örn nauðgaði konu meðan hún grét og reyndi að ýta honum burt

Ómar Örn nauðgaði konu meðan hún grét og reyndi að ýta honum burt

Ómar Örn Reyn­is­son, fæddur árið 1996, hefur verið dæmdur í þriggja ára fang­elsi fyrir nauðgun. Dómur féll þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn en dómur birt­ist ekki fyrr en í dag á net­inu. Ómar Örn hefur verið leik­maður hjá knatt­spyrnu­fé­lag­inu Ægi um nokk­urt skeið en hann lék síð­ast með lið­inu árið 2021.

Nauðg­unin átti sér stað árið 2020 en henni er lýst svo í ákæru:

„fyrir nauðgun, með því að hafa að morgni […] 2020, á þáver­andi heim­ili […], haft sam­ræði og önnur kyn­ferð­is­mök við X, án hennar sam­þykkis, með því að stinga fingri í leggöng X er hún svaf og eftir að X hafði látið hann vita að hún vildi þetta ekki og sofnað á ný, haft við hana sam­ræði, en hún gat ekki spornað við verkn­að­inum sökum svefn­drunga, og eftir að hún vakn­aði og ákærði varð þess var, haldið áfram að hafa við X sam­ræði án þess að hafa til þess sam­þykki hennar og beitt hana ofbeldi og ólög­mætri nauð­ung, með því að halda henni fastri og láta ekki af hátt­sem­inni þrátt fyrir að X hafi látið hann vita að hún vildi þetta ekki, grátið og reynt að ýta honum burt og losa sig.“

Konan og Ómar kynnt­ust á Tinder en stúlkan er sögð nokkuð yngri en hann. Í dómi segir að þau hafi hittst af og til um nokk­urt skeið, horft á Netflix og haft kyn­mök. Eftir að hún sofn­aði vakn­aði hún við Ómar að brjóta á henni, líkt og fyrr segir, en hann hélt henni þannig að hún gat ekki losað sig.

Hún leit­aði til Neyð­ar­mót­tök­unnar skömmu eftir atburð­inn og töldu þeir sem tóku á móti henni að hún hefði orðið fyrir miklu sál­rænu áfalli. Lík­ams­skoðun leiddi í ljós áverka sem almennt eru taldir benda til nauðg­unar.

Um hálfu ári eftir atvikið sendi Ómar stúlkunni skila­boð  á Snapchat. Þeim svar­aði stúlkan svo:

„Hæ, ég skil ekki alveg af hverju þú ert allt í einu að senda mér snöpp aftur? Mér finnst lág­mark að þú biðjir mig afsök­unar á því sem þú gerðir mér síð­ast þegar við hitt­umst. Ég bað þig ítrekað um að hætta en þú hunds­aðir það og hélst áfram gegn mínum vilja.“

Ómar svar­aði: „Fyr­ir­gefðu“ og sleit síðan vin­skap við hana á Snapchat. Ómar neit­aði sök og útskýrði þessa afsök­un­ar­beiðni sem afsökun á því að hafa sent henni skila­boð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins