Björn Birgisson kallar eftir því að skipt verði um ríkisstjórn svo lausn fáist í kjaradeiluna.

Samfélagsrýnirinn frá Grindavík, Björn Birgisson er mikill stuðningsmaður Sólveigar Önnu Jónsdóttur og verkalýðsbaráttu hennar. Í nýrri færslu á Facebook fer hann yfir lausnina á vandanum sem blasir við í kjarasamningsviðræðunum en hann segir ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum innanborðs, aldrei fara þá leið sem hann stingur upp á. Færsluna má lesa hér fyrir neðan:
„Við getum leitað með logandi ljósi um allt þjóðfélagið að einhverri lausn á yfirstandandi kjaradeilu.
Sú leit skilar árangri, en samt ekki.Við finnum ríkisstjórnina, en hún vill ekkert gera til lausnar.Lausnin felst í lögum um hámarksleigu, leigubremsu, leiguþak og aðrar ráðstafanir gegn leiguokri.Þau lög verða aldrei sett á meðan Sjálfstæðisflokkurinn er í ríkisstjórn.Hann mun alltaf taka sér stöðu með leigusölum, en gegn leigjendum komi til ágreinings eins og nú er uppi.Málin eru í hnút, lausnin blasir við, en hún passar ekki inn í pólitík ríkisstjórnarinnar.Er þá ekki borðliggjandi að skipta um ríkisstjórn?“


























Athugasemdir