„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mast svarar Dýraverndarsamtökum Íslands: „Myndirnar voru ekki í samræmi við aðstæður“

Mast svarar Dýraverndarsamtökum Íslands: „Myndirnar voru ekki í samræmi við aðstæður“

Mat­væla­stofnun segir ljós­mynd­irnar sem Mannlíf hefur birt af aðbún­aði og slæmu ástandi naut­gripa á bæ í Skaga­firði, ekki í sam­ræmi við það sem eft­ir­list­menn stofn­un­ar­innar sáu í ferðum sínum á bæinn.

Mat­væla­stofn­unin skrif­aði rétt í þessu athuga­semdir á heima­síðu sinni vegna til­kynn­ingar sem Dýra­vernd­un­ar­sam­band Ísland varð­andi slæma með­ferð á dýrum í Skaga­firði. Þar útskýrir Mast að í þrí­gang hafi full­trúi stofn­un­ar­innar farið í eft­ir­lits­ferðir á bónda­bæ­inn eftir ábend­ingar en ekki séð neitt sem hægt var að gagn­rýna, fyrir utan smá­vægi­leg frá­vik um hrein­læti nokk­urra gripa og athuga­semd við herða­kams­b­slá. Segir Mast að þær myndir sem Dýra­vernd­ar­fé­lag Íslands vísar í og Mannlíf hefur birt, séu ekki í sam­ræmi við það sem eft­ir­lits­menn stofn­un­ar­innar hafi séð á bænum.

Til­kynn­ingu Mast má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Mat­væla­stofnun vill koma eft­ir­far­andi á fram­færi vegna til­kynn­ingar sem Dýra­vernd­un­ar­sam­band Íslands sendi frá sér þann 2. febr­úar sl. um dýr í neyð á Norð­ur­landi og kröfu um taf­ar­lausar aðgerðir af hálfu yfir­valda í mál­inu.

Eftirlit Mat­væla­stofn­unar sýndi fram á að naut­gripir sem um ræðir voru hvorki í neyð né horaðir.

Mat­væla­stofnun fram­kvæmdi eft­ir­lit á við­kom­andi bæ þann 16. nóv­em­ber sl. Eft­ir­litið sem var óboðað fór fram vegna ábend­ingar sem stofn­un­inni barst um slæman aðbúnað naut­gripa á bænum. Frávik um hrein­leika nokk­urra gripa og athug­semd við herða­kamb­slá var skráð en önnur skoð­un­ar­at­riði reynd­ust í lagi. Við eft­ir­litið var ekki mik­ill skítur undir naut­gripum og hálmur var til staðar.  Fyrr­nefndar athuga­semdir voru ekki til­greindar sem  alvar­leg frá­vik og í sam­ræmi við skráð verk­lag var veittur hefð­bund­inn frestur til úrbóta.

Í kjöl­far eft­ir­lits­ins barst stofn­un­inni önnur ábend­ing um slæman aðbúnað á sama bæ og fylgdi Mat­væla­stofnun ábend­ing­unni eftir þann 6. des­em­ber sl.  Ekki var til­efni til að skrá frá­vik.

Þann 30. jan­úar sl. fylgdi Mat­væla­stofnun eftir þriðju ábend­ing­unni sem stofn­un­inni barst vegna aðbún­aðar á bænum. Ekki var til­efni til að skrá frá­vik.

Þær myndir sem Dýra­vernd­un­ar­sam­bandið vísar til í yfir­lýs­ingu sinni og sendar hafa verið til stofn­un­ar­innar gefa ekki rétta mynd af holda­fari naut­grip­anna eða aðstæðum á bænum á fyrr­nefndu tíma­bili. Mynd­irnar voru ekki í sam­ræmi við aðstæður eins og þær hafa birst eft­ir­lits­mönnum stofn­unn­ar­innar í þau þrjú skipti sem stofn­unin hefur fylgt eftir ábend­ingum um umhirðu og aðbúnað naut­gripa á bænum og kemur fram í eft­ir­lits­skýrslu stofn­un­ar­innar.

Búfjár­hald á bænum mun sæta reglu­bundnu eft­ir­liti áfram.

Skoð­un­ar­at­riði eru metin í sam­ræmi við skoð­un­ar­hand­bók sem gefin hefur verið út varð­andi naut­gripa­eldi: https://umsokn.mast.is/onequalityweb/Displaydocument.aspx?itemid=276364209870730246241

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins