„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Grafarhelgi yfir flaki Glitfaxa rennur út 2026 – Hið opinbera leitar ekki að gömlum flökum

Grafarhelgi yfir flaki Glitfaxa rennur út 2026 – Hið opinbera leitar ekki að gömlum flökum

Eftir þrjú ár rennur graf­helgin yfir flaki Dakota-flug­vél­ar­innar Glitfaxa sem fórst árið 1951 en allir um borð, 20 manns létu lífið. Flug­vélin fannst aldrei en talið er að flakið liggi undir Flekku­vík á Vatns­leysu­strönd þó nákvæm stað­setn­ing sé á huldu.

Frá því að Glitfaxi hvarf í sjó­inn fyrir 72 árum síðan hafa ætt­ingjar og vinir þeirra sem fór­ust von­ast til þess að flakið fynd­ist svo hægt væri að jarða lík­ams­leifar þeirra sem lét­ust í slys­inu þegar graf­ar­helg­inni verður aflétt árið 2026.

Barna­barn eins þeirra er lést í slys­inu sagði í sam­tali við Mannlíf að fjöl­skyld­unni hafi alltaf þótt það frekar und­ar­legt að flug­vélin hafi aldrei fund­ist, sér­stak­lega ekki eftir að tækn­inni fleytti fram við leit á haf­svæðum. „Ef hægt væri að stað­setja flakið nákvæm­lega gætum við að minnsta kosti sett blómakransa í sjó­inn þar sem það væri.“ Ástæðan fyrir því að flug­vélin hafi ekki enn fund­ist er þó ein­föld. Það hefur ekki verið leitað að henni síðan 1951.

Þau sem fór­ust með Glitfaxa.
Þor­steinn lést einnig með Glitfaxa sem og 5 mán­aða gam­all Bjarni, sonur Maríu Hjart­ar­dóttur

Mannlíf hafði sam­band starfs­mann Rann­sókn­ar­nefndar sam­gönguslysa og spurði hann út í leit að flaki Glitfaxa. Tjáði hann blaða­manni að það hafi ekki verið neinar flug­slysa­rann­sóknar á þeim tíma sem slysið varð og í raun hafi Rann­sókn­ar­nefnd flug­slysa ekki verið stofnuð fyrr en árið 1996. „Það voru ein­staka rann­sóknir fram­kvæmdar af flug­mála­stjórn fyrir þann tíma og ég get í raun ekk­ert sagt þér um þær rann­sóknir. Það eina sem ég get sagt þér er að það er ekk­ert í gangi hjá okkur og hefur ekki verið í sam­bandi við gömul slys.“

Eins og áður hefur komið fram verður graf­helg­inni yfir flak­inu aflétt eftir aðeins þrjú ár eða árið 2026 en flakið mun þó að öllum lík­indum liggja á botni sjávar um ókomna tíð, nema einka­að­ili taki að sér að leita.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins