„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jóhannes sendir konum kaldar kveðjur: „Laug því blákalt að þernur hefðu það nú alls ekki sem verst“

Jóhannes sendir konum kaldar kveðjur: „Laug því blákalt að þernur hefðu það nú alls ekki sem verst“

Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar , full­yrti í Silfri Egils í dag að hót­el­þernur hefðu ágætar tekjur af starfi sínu. Jóhennes reyndi að bera laun þeirra saman við laun grunn­skóla­kenn­ara og gaf í skyn að þernur væru jafn­vel með of há laun.
Leik­konan Steinunn Ólína segir þetta kaldar kveðjur til kvenna á kvenna­dag­inn í pistli sem hún birtir á Facebook. Hún seg­ist hafa kannað málið sjálf og segir Jóhannes ein­fald­lega hafa logið í beinni útsend­inu.

Hér fyrir neðan má lesa pistil Stein­unnar í heild sinni.

Ágætu konur,
Til ham­ingju með konu­dag­inn. Ég átti framan af náð­ugan konu­dag, lá í
rúm­inu og drakk kaffi hlust­aði á Sprengisand og skipti svo yfir á
Silfrið. Þar var meðal ann­arra atvinnu­skrum­skælir­inn Jóhannes Skúlason
í við­tali sem laug því blákalt að Eflingar þernur á hót­elum hefðu það
nú alls ekki sem verst, heldur væru þær á launum sem kæmust nálagt því að vera laun grunn­skóla­kenn­ara!

Hann sumsé sendi lægst laun­uðu konum á vinnu­mark­aði konu­dags­kveðjur
með því að sparka í aðra fjöl­menna lág­launa­stétt sem mest er skipuð
konum, kenn­ara. Hann hefði líka getað nefnt til sög­unar aðra mik­il­væga
lág­launa kvenna­stétt, hjúkr­un­ar­fræð­inga, eða bara ein­hverja aðra
mik­il­væga kvenna­stétt sem heldur þessu sam­fé­lagi gang­andi.

Ég hafði fyrir því að verða mér út úr nokkra launa­seðla hót­el­starfs­fólks til að geta með eigin augum séð þessi ofur­laun sem
Jóhannes kallar svo og það var eins og mig grun­aði, laun með
tölu­verðri yfir­vinnu og vakta­á­lagi sem gerir ráð fyrir að fólk stundi
fulla vinnu, eigi stundum frí, eru í kringum 400.000 og yfir­leitt rétt
undir því.

Ég get ekki deilt myndum af launa­seðlum til að vernda það starfs­fólk
sem sendi mér þá, en ég hvet blaða­menn sem ræða við SA að hafa fyrir
því að skoða þessi mál ofan í kjölin og kveða lygar þeirra í kút­inn og
leyfa þeim ekki dag eftir dag að fara með stað­lausa stafi í fjöl­miðlum.
Launa­seðlar gefa nefni­lega raunsanna mynd af ástandi og þar sést svart á hvítu hvernig laun verða til.

Í þeim til­fellum sem verka­maður bíl­stjóri eða þerna á hót­eli ná launum
sem SA gera ítrekað að dæmum um ofur­laun, er um full­kom­lega óeðli­legt
vinnu­á­lag að ræða og rann­sókn­ar­efni er þá hvers er til kostað af
við­kom­andi starfs­manni sem er auð­vitað jafna sem verður að taka inn í
dæmið. Hvað er vinnu­eft­ir­litið, sam­göngu­stofa að gera? Ekkert að því
er virð­ist!

Áróð­urs­her­deild SA er rudda­leg í allri sinni fram­komu, svífst einskis,lýgur blákalt
leikur sér að tölum til að útmála bar­áttu lág­launa­fólks sem hlægi­lega.
Og að vanda eru það að lang­mestu leyti konur sem eru skot­spónn háðs­ins.
Gleði­legan konu­dag!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins