„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tollurinn rukkaði Skagfirðinga um tugmilljónir – Titringur vegna tollfrjáls kjúklings frá Úkraínu

Tollurinn rukkaði Skagfirðinga um tugmilljónir – Titringur vegna tollfrjáls kjúklings frá Úkraínu
Þórólfur Gíslason kaup­fé­lags­stjóri KS greip í taumana. Myndin er sam­sett

Kjúklingur sem Esja gæða­fæði flutti inn frá Litháen en var að sögn með upp­runa í Úkraínu varð til þess að fyr­ir­tækið varð að greiða tug­millj­ónir í tolla og álögur. Eins og Mannlíf greindi frá í gær flutti Esja, sem er í eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, inn 40 tonn af kjúklingi frá Litháen með upp­runa í Úkraínu í haust. Kjöt­mark­að­ur­inn ehf. sem einnig er með tengsl við Kaup­fé­lag Skag­firð­inga flutti inn mun minna magn á síð­asta ári og í byrjun þessa árs. Guð­mundur Gíslason fram­kvæmda­stjóri full­yrðir að Ktmark­að­ur­inn hafi flutt inn kjöt með upp­runa í Litháen. Kjöt Esju fór inn í landið án þess að áhættu­mat lægi fyrir eins og skilt er þegar flutt er inn ný vara eins og gerð­ist í þessu til­viki. Ágúst Andr­és­son, yfir­maður kjöt­vinnslu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga og heið­urs­konsúll Rússa, sagði við Bænda­blaðið  að greiddur hefði verið tollur af kjúkling­unum og fyr­ir­tækið myndi ekki krefj­ast end­ur­greiðslu á þeim grunni að vörur frá Úkraínu beri ekki tolla. Þarna er aðeins hálf sagan sögð því fyr­ir­tæk­inu var gert að borga.

Heim­ildir Mannlífs herma að fyr­ir­tæk­inu hafi verið gert að greiða bæði toll og álag vegna þess að kjúkling­ur­inn kom til Íslands frá Litháen en ekki upp­runa­land­inu. Guðbjörn Guð­björns­son, yfir­toll­vörður hjá Toll­stjóra, vitn­aði til þess á nám­skeiði sem haldið var um tolla­mál og lýsti því hvernig álögur komu til.

Kaupfélagið sagði stopp

Inn­flutn­ing­ur­inn olli miklum titr­ingi þar sem íslenskir kjúklinga­bændur töldi óeðli­legt að fyr­ir­tæki í þeirra eigu væri að grafa undan inn­lendri fram­leiðslu með því að dæla inn á mark­að­inn ódýrum kjúkling. Stjórn Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, með Þórólf Gíslason kaup­fé­lags­stjóra í önd­vegi, ákvað að toll­fríð­indin yrðu ekki sótt og fyr­ir­tækin greiddu mögl­un­ar­laust háan toll á hvert kíló auk álags­ins. Fyrir liggur að kostn­að­ur­inn við inn­flutn­ing­inn er því him­in­hár.

Það felur í sér brot á reglu­gerð að umrædd tæp­lega 80 tonn af kjúklingi komust inn á íslenskan markað og í sölu án þess að áhættu­mat færi fram. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs var kjúkling­ur­inn seldur í versl­unum Nettó og til veit­inga­húsa án þess að upp­runa­lands væri getið eða áhættu­mat færi fram. Heim­ild­ar­menn Mannlífs telja að stofn­un­inni hefði með réttu borið að inn­kalla vör­una. „Málið er í með­höndlun hjá stofn­un­inni,“ segir Silja Unn­ars­dóttir hjá Mast í sam­tali við Mannlíf.

Uppfært. „Kjöt­mark­að­ur­inn flutti ekki inn kjúkling á síð­asta ári frá Úkraínu heldur fimm tonn frá Litháen. Kjöt­mark­að­ur­inn hefur flutt inn á þessu ári 18 tonn af kjúkling frá Úkraínu og er með öll leyfi fyrir því. Kjúkling­ur­inn frá Úkraínu er gæða­vara alinn á maís og slátrað í slát­ur­húsi sem er með BCR vottun,“ skrifar Guð­mundur. Hann segir fyr­ir­tæki sitt hafa greitt 18 pró­sent toll og 540 kr./kg sam­tals yfir 640 kr./kg

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins