„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Vitskert veröld sem við búum í“ – Staðan versnar bara og versnar

„Vitskert veröld sem við búum í“ – Staðan versnar bara og versnar
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður VR

„Þetta er vit­skert ver­öld sem við búum í,“ segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son for­maður VR á facebook síðu sinni í morgun. Þar vekur hann athygli á því að leigu­verð sé orðið hærra en lág­marks­laun.

Þar vísar hann í neð­an­greinda aug­lýs­ingu sem tekin af fast­eigna­vef mbl.is. Þar er boðið upp á 3 her­bergja íbúð til leigu á 375.000 kr. á mán­uði, sem er tölu­vert yfir lægstu launa­töxtum, sem voru fyrir skatt rúmar 367.000 kr., fyrir hækk­anir síð­ustu kjara­samn­inga.

Bjarg Íbúða­fé­lag er með sam­bæri­lega íbúð til leigu við Tanga­bryggju á 166.475 kr. og frá því drag­ast húsa­leigu­bætur.

Hér má sjá færslu Ragnars í heild sinni:

Staðan á hús­næð­is­mark­aði. Með­fylgj­andi mynd er tekin af fast­eigna­vef mbl.is. Þar er boðið upp á 3 her­bergja íbúð til leigu á 375.000 kr. á mán­uði, sem er tölu­vert yfir lægstu launa­töxtum, sem voru fyrir skatt rúmar 367.000 kr., fyrir hækk­anir síð­ustu kjara­samn­inga.Bjarg Íbúða­fé­lag er með sam­bæri­lega íbúð til leigu við Tanga­bryggju á 166.475 kr. og frá því drag­ast húsa­leigu­bætur.Leigu­fé­lagið Alma hefur borið fyrir sig mark­að­inn þegar tug­þús­unda hækk­unum, umfram vísi­tölu, er hellt yfir við­skipta­vini þeirra með reglu­legu milli­bili og er við­búið að þetta nýja við­mið mark­að­ar­ins á Tanga­bryggju verði notað við næstu 12 mán­aða end­ur­skoðun þeirra þegar við­skipta­vinir þeirra fá “boð” um end­ur­nýjun á leigu­samn­ingi.Við hjá Bjargi vorum að skila af okkur dýr­ustu blokk sem við höfum byggt en blokkin stendur við Mar­íu­götu í Garðabæ. Ein af ástæðum þess að hún var dýr­ari í fram­kvæmd var að loft­hæð þurfti að vera meiri, en svo spila aðrir þættir þar inn líka eins og hærri fjár­magns­kostn­aður og hærri bygg­ing­ar­kostn­aður. Það þýðir að leigu­verðið á 3 her­bergja íbúð við Mar­íu­götu er það hæsta sem við höfum þurft að setja á slíka íbúð í sögu Bjargs eða 190.000 kr. á mán­uði.Við erum með þing­lýstan leigu­samn­ing frá blokk­inni við hlið­ina en þar fór íbúð í leigu á 320.000 kr. fyrir hálfu ári síðan.Við hjá Bjargi stefnum að því að vera komin með um 1.000 íbúðir á þessu ári, og það á aðeins 5 árum, en allar fram­kvæmdir hafa verið á kostn­aðar og tíma­á­ætlun sem er lík­lega eins­dæmi í bygg­ing­ar­sögu Íslands.Einnig munum við hefja fram­kvæmdir við fyrsta verk­efni Blævar í þessum mán­uði en það eru íbúðir sem VR fjár­magnar og verða í boði fyrir félags­fólk VR. Verk­efnið er sér­stak­lega sniðið fyrir fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða.Árum saman hefur stefnt í eina alvar­leg­ustu hús­næð­iskreppu síð­ari ára.Árum saman höfum við reynt að koma á leigu­bremsu.Árum saman höfum við bent á að helsti drif­kraftur verð­bólgu er fram­boðs­skortur á hús­næði.Árum saman höfum við reynt að fá líf­eyr­is­sjóði til að fjár­festa í upp­bygg­ingu á hús­næð­is­mark­aði.Árum saman höfum við reynt að koma stjórn­völdum í skiln­ing um þessa stöðu en ein­ungis fengið starfs­hóp eftir starfs­hóp og nefnd eftir nefnd en engar aðgerðir eða efndir.Staðan í dag er að hús­næð­is­mark­að­ur­inn er botn fros­inn. Fram­kvæmdir drag­ast saman og stefnir í algjört óefni. Hátt vaxta­stig og aðgerðir Seðla­bank­ans hafa þannig lokað á eft­ir­spurn­ar­hlið­ina, og fram­boðs­hliðin er að lok­ast líka.Í meðan hefur rík­is­stjórnin mestar áhyggjur af stöð­unni á vinnu­mark­aði og hvernig helst sé hægt að beisla hann með lögum. Og hvernig kjara­samn­ingar, en þar hækk­uðu laun um 35.000 til 66.000 kr. á mán­uði, séu nú helsta ógnin við stöð­ug­leika.Þetta er það eina sem þau hafa til mál­anna að leggja á meðan þin­far­ar­kaupið, sem er Kr. 1.345.582.- og hefur hækkað um 582.642 í krónum talið frá árinu 2016, mun að öllum lík­indum hækka um að lág­marki 115.000 kr. við næstu end­ur­skoðun í júlí ef við áætlum hver 12 mán­aða launa­vísi­tala verði þá.Fjár­mála­ráð­herra telur okkur aldrei hafa haft það betra á meðan bank­arnir öskra eftir enn hærri vöxtum svo þeir geti gengið á eigið fé almenn­ings sem mynd­ast hefur í hús­næðum þeirra.Staðan versnar bara og versnar.Þetta er vit­skert ver­öld sem við búum í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins