„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tollinum sagt að skráning kjúklings frá Úkraínu væri mistök: Yfirvöld skoða uppruna fuglsins

Tollinum sagt að skráning kjúklings frá Úkraínu væri mistök: Yfirvöld skoða uppruna fuglsins
Myndin er sam­sett

Kjúklinga­mál Skag­firð­inga hefur tekið á sig hinar und­ar­leg­ustu myndir. Esja gæða­fæði, sem er í eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, flutti inn sem nemur 40 tonnum af kjúklingi, sem ýmist er sagður vera frá Litháen eða Úkraínu, á seinni­hluta árs­ins 2022. Kjöt­mark­að­ur­inn, sem einnig teng­ist Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga, flutti einnig inn kjúkling á sein­asta ári, en miklu minna magni. Alls flutti Kjöt­mark­að­ur­inn inn 23 tonn á síð­asta ári og í byrjun þessa árs. Guð­mundur Gíslason fram­kvæmda­stjóri full­yrðir við Mannlíf að hluti þess magns hafi verið sann­an­lega frá Litháen og engin mis­tök gerð við skrán­ingu.

Fyrirskipun kaupfélagsmanna

Í upp­hafi var inn­flutn­ingur Esju merktur Úkraínu sem upp­runa­landi, sem þýddi að hann hefði verið toll­frjáls og spar­ast 25 millj­ónir króna á 40 tonna inn­fl­un­ingi Esju. Toll­stjóra var fljót­lega til­kynnt að fyrir mis­tök hefði kjúkling­ur­inn verið skráð sem úkra­ínskur en hann væri í raun frá Litháen. Heim­ildir Mannlífs herma að þetta hafi gerst vegna óánægju íslenskra kjúl­inga­bænda sem töldu óeðli­legt að fyr­ir­tæki í þeirra eigu væri að vinna gegn hags­mundum eig­enda sinna og flytja inn toll­frjálsar erlendar lan­bún­að­ar­af­urðir og setja heima­mark­að­inn á hvolf. Það varð því úr að Þórólfur Gíslason og stjórn hans í KS fyr­ir­skip­uðu dótt­ur­fé­lagi sínu að halda sig við það að inn­flutn­ing­ur­inn kæmu frá Litháen og afsala sér toll­fríð­ind­unum sem eru yfir 600 krónur á kíló.

Mistökum lýst

Kjúklingur frá Úkraínu hefði þurft að fara í gegnum áhættu­mat þar sem þetta væri í fyrsta sinn sem slíkur inn­flutn­ingur ætti sér stað frá því landi. Slíkt mat fór ekki fram þótt umræddur kjúklingur kæmi frá Úkraínu. Hann fór inn á íslenskan markað undir því flaggi að hann kæmi frá Litháen og hefur þegar verið seldur og inn­birtur. Esjumenn báru því við að það hafi verið ein­föld mis­tök að merkja fugl­inn frá Úkraínu og báðu um leið­rétt­ingu sem jafn­framt fól í sér að fyr­ir­tækin þurftu að greiða him­in­háa tolla og álag. Eftir stendur að kjúkling­ur­inn frá Úkraínu fór á íslenskan markað án áhættu­mats­ins. Það mál getur varðað við lög er til skoð­unar hjá Mat­væla­stofnun og Toll­in­unm.

Toll­stjóri er í þeirri ein­kenni­legu stöðu að farið var fram á leið­rétt­ingu sem felur í sér tug­millj­óna­gjöld inn­flytj­end­anna í rík­is­kass­ann. Ef emb­ættið kemst að þeirri nið­ur­stöðu að kjúkling­ur­inn hafi í raun verið frá Úkraínu þá þarf vænt­an­lega að end­ur­greiða inn­flytj­endum hina háu tolla og álögur. Mannlíf hefur heim­ildir fyrir því að emb­ættið sé með inn­flutn­ing á kjúklingi frá Úkraínu á árinu 2022 til skoð­unar. Þá er Mat­væla­stofnun einnig að fara í gegnum málin sín megin.

Kjarni máls­ins liggur í þeirri spurn­ingu hvort um mis­tök hafi verið ræða eða yfir­klór sem end­aði með hálf­gerðum ósköpum. Ef á dag­inn kemur að „mis­tökin“ voru ekki til staðar og kjúkling­ur­inn í raun frá Úkraínu þá liggur fyrir lög­brot um ranga skrán­ingu og að hafa flutt inn vöru sem ekki hafði gengið í gegnum áhættu­mat.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins