„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ráðherrann Lilja féll í stafi við Grænavatn – Toppurinn á Trölladyngju og vötnin þrjú

Ráðherrann Lilja féll í stafi við Grænavatn – Toppurinn á Trölladyngju og vötnin þrjú
Lilja Alfreðs­dóttir við Græna­vatn. Mynd: Reynir Traustason.

Eitt magn­að­asta úti­vist­ar­svæði lands­ins er að finna í bak­garði höf­uð­borg­ar­innar, á Keil­is­svæð­inu og í kringum Sogin. Þar er að finna öll helstu og feg­urstu til­brigði íslenskrar nátt­úru. Hin und­ur­fögru Sog svíkja engan. Þar er háhita­svæði og lita­dýrðin lík­ist helst því sem sést í grennd við Land­manna­laugar.

Hin und­ur­fögru Sog.

Hópar Ferða­fé­lags Íslands hafa lengi ferð­ast um svæðið og notið alls þess fjöl­breyti­leika sem þar er að finna. Þannig hafa Skrefin und­an­farin átta ár gengið um flesta þá mark­verðu staði sem þar er að finna. Og það er af nógu að taka.

Hið aug­ljósa er að ganga á Keili, fjallið sem flestir útlend­ingar veita eft­ir­tekt þegar komið er akandi frá Kefla­vík­ur­flug­velli til Reykja­víkur. Keilir er einkar form­fag­urt fjall, strýtu­laga og fólk þarf að hafa fyrir því að brölta upp mal­ar­skrið­urnar til að ná toppnum. Ein­hverjir kunna að halda að Keilir sé hæsta fjall á Suð­ur­nesjum en það er ekki svo. Hann er 379 metrar að hæð. Græna­dyngja (398 m.y.s.) er hæsta fjall Suð­ur­nesja. Hún og Fagra­dals­fjall (390 m.y.s.) skáka bæði þessum ókrýnda kon­ungi Suð­ur­nesja­fjalla. Trölla­dyngja er jafnhá Keili. Í þessu sam­hengi má minna á orð Napól­e­ons Bónap­arte um að eitt er að vera hár en annað að vera stór.

Vegurinn frá Reykja­nes­braut á Keil­is­svæðið er torfar­inn og alls ekki fyrir kvið­síða bíla. Til að kom­ast þangað er beygt af Reykja­nes­braut þar sem veg­vísir bendir á Keili. Aka þarf rúm­lega 10 kíló­metra leið um grófan mal­ar­veg sem á köflum er á mörkum þess að vera fær bílum.

Keilir

Gangan á Keili hefst á Hösk­uld­ar­völlum. Bíla­stæði er við enda Odda­fells þaðan sem haldið er í göng­una sem er alls 7 kíló­metrar fram og til baka. Þeir sem ætla að ganga á Keili þurfa að reikna með 4-5 klukku­stundum í verk­efnið. Fyrsta kastið er gengið með fram Odda­felli en síðan er þver­beygt og haldið inn í Hösk­uld­ar­valla­hraun og gengið um hlykkj­óttan stíg í gegnum hraun­breið­una. Í fjar­lægð blasir fyr­ir­heitna fjallið við.

Gangan er létt, en nauð­syn­legt er að var­ast hraunnibbur á göng­unni. Eftir að hafa stiklað um hraun og móa sleppir hraun­breið­unni og við tekur slétta, alla leið­ina að Keili. Við hlið fjalls­ins kúra hólar sem nefn­ast Keil­is­börn. Eftir að hafa gengið allt að þremur kíló­metrum um jafn­sléttu er komið því að ganga á sjálft fjallið. Glöggur stígur sker bratta hlíð­ina. Þetta er á fót­inn og erfitt þeim sem ekki eru í góðu formi. Á efsta hluta leið­ar­innar er nokkuð bratt og þeir loft­hrædd­ustu hika við og þurfa jafn­vel hand­leiðslu. Á toppnum blasir við frá­bært útsýni um Reykja­neskaga og höf­uð­borg­ar­svæðið. Þar upp­sker göngu­fólkið verð­laun sín eftir erf­iðið. Þeir metn­að­ar­fyllstu geta útfært göng­una þannig að þeir fara áfram suð­vestur eftir og skoða Litla-Hrút, Kistu­fell og sjálfan Stóra-Hrút. En það er að sjálf­sögðu löng ganga sem kallar á skipu­lagn­ingu varð­andi heim­ferð.

Sogin og Spákonuvatn

Annar áfanga­staður á Keil­is­svæð­inu er háhita­svæðið Sogin og vötnin þar í kring. Til að kom­ast á upp­göngu­stað­inn er ekið um Keil­is­veg áfram eftir mal­ar­vegi sem sker Hösk­uld­ar­velli. Beygt er til hægri undir hlíðum Trölla­dyngju og haldið áfram þar til komið er að plani þar sem er að finna bor­holu. Með fram veg­inum rennur Sogs­lækur, eina vatns­fallið á Reykja­nesi. Göngu­maður getur ákveðið að halda upp í skarðið um Sogin. Sú ganga getur á köflum verið slarksöm, en eflaust þess virði þegar lit­brigði háhita­svæð­is­ins blasa við. Þegar kemur upp í skarðið blasir Djúpa­vatn við í allri sinni dýrð. Handan þess eru Vig­dís­ar­vellir og síðan kemur að Sveiflu­hálsi.

Djúpa­vatn.

Þeir sem vilja kom­ast í návígi við vatnið klöngr­ast niður hlíð­ina og halda svo með fram vatn­inu að sum­ar­húsi sem þar stendur. Þaðan liggur leiðin aftur upp á Græna­vatns­eggjar. Gengið er upp skarð og þar blasir við sjálft Græna­vatn sem ber nafn með rentu. Göngu­fólk Ferða­fé­lags­ins heldur með fram vatn­inu og nýtur allrar þeirrar feg­urðar sem er í boði. Með í för er Lilja Alfreðs­dóttir, ferða­mála­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Hún slær á létta strengi og er þess viss að nafn vatns­ins vísi til ein­kenn­islitar Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Þegar kemur að vatn­inu er gengið norður, með fram því. Ekki er laust við að ferða­fólk taki and­köf af hrifn­ingu vegna umhverf­is­ins, áfram er haldið og gengið upp skarð, þaðan sem Spá­konu­vatn blasir við. Eftir að hafa gengið með fram vatn­inu kemur að því að loka hringnum með því að ganga með fram Sogunum og að bíl­unum fyrir neðan. Stór­kost­leg ferð að baki og fyr­ir­heit um end­ur­komu heyr­ast.

Lambafellsklofi og Trölladyngja

Trölla­dyngja kúrir rétt norðan við Grænu­dyngju. Til að ganga á fjallið er snið­ugt að aka sem leið liggur að Keili, fram hjá Odda­felli og yfir Hösk­uld­ar­velli. Beygja skal til vinstri á gatna­mótum undir Trölla­dyngju. Við Eldborg er sæmi­legt bíla­stæði. Þar hefst gangan. Haldið er beint upp hlíð­ina, með fram gili sem göngu­maður hefur á hægri hönd. Þegar komið er upp á brún er stefnt á strýtu­laga Trölla­dyngju. Gengið er upp brattan hrygg. Gangan er tals­vert á fót­inn. Á hæsta tindi skilar puðið sér. Á sól­björtum degi blasir Reykja­nes og höf­uð­borg­ar­svæðið við. Gott útsýni er yfir gossvæðið undir Fagra­dals­fjalli.

Trölla­dyngja. Mynd Guðrún Gunn­steins­dóttir.

Á baka­leið­inni er stefnt á Lamba­fellsklofa, ein­stak­lega fal­legt nátt­úru­fyr­ir­brigði sem sum­part minnir á gjána sem klýfur fjallið Þorbjörn. Rúmlega tveir kíló­metrar eru af toppi Trölla­dyngju og norður fyrir Lamba­fell. Þegar komið er norður fyrir fellið blasir við opin gjáin sem klýfur fjallið bók­staf­lega. Þegar fólk fikrar sig inn í gjána gengur það bók­staf­lega í björg. Það er yfir­þyrm­andi að standa í þröngri gjánni, undir allt að 50 metra háum hamra­veggjum. Skrefa­hópar Ferða­fé­lags Íslands hafa haft þann sið að syngja í gjánni. Hljóm­burð­ur­inn er ein­stakur. 

Lamba­fells­gjá.


Leiðin um gjána liggur í suður í gegnum fjallið. Hún grynn­ist hratt og það er á bratt­ann að sækja. Göngu­mað­ur­inn stendur fyrr en varir á toppi Lamba­fells. Eftir dulúð­ina í fjall­inu blasir við blár him­inn og frá­bært útsýni. Þeir sem hafa til þess úthald og vilja, geta svo gengið á Eldborg á baka­leið­inni áður en haldið er heim­leiðis eftir ferð sem hefur yfir sér sann­kall­aðan ævin­týra­blæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins