„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Óskar: „Mætti skoða að biskup væri ekki prestur, mér hefur dottið í hug að hann væri lögfræðingur“

Óskar: „Mætti skoða að biskup væri ekki prestur, mér hefur dottið í hug að hann væri lögfræðingur“
Óskar Magn­ús­son vill end­ir­skoða kjör bisk­ups. Myndin er sam­sett.

Vígð­ir þjón­ar sem og leik­menn Þjóð­kirkj­unn­ar tók­ust á um fyr­ir­komu­lag bisk­ups­kjörs á auka­kirkju­þingi sem haldið var á föstu­dag­inn.

Það er Heim­ildin sem greindi fyrst frá.

Að­eins er liðið eitt ár síð­an nýj­ar regl­ur um kjör til bisk­ups voru sam­þykkt­ar á kirkju­þingi.

Pétur Markan Agnes biskup hafa ekki séð ástæðu til að svara fyr­ir­spurnum Mannlífs um mál­efni Þjóð­kirkj­unnar.

Margt gerð­ist á þessu kirkju­þingi og meðal ann­ars steig Óskar Magn­ús­son, leik­maður úr Suð­ur­pró­fasts­dæmi, í pontu. Óskar þessi hefur átt í deilum við biskup, Agnesi M. Sig­urð­ar­dóttur.

„Þeir koma hér upp hver á fætur öðrum og lýsa því að þeir séu manna best færir til að ákveða hver sé biskup, af því að þeir séu prestar. Þeir eru líka hæf­astir til að gera ýmis­legt annað, eins og við þekkjum. Hér eru for­menn eig­in­lega allra nefnda prestar. Það er fínt. Við erum í góðum höndum. Allra fasta­nefnda nema í fjár­hags­nefnd þar sem Guðni er vara­for­maður.

Meira að segja í fram­kvæmda­nefnd er prestur.

Ég veit ekki af hverju við ættum að hafa ein­hverjar áhyggjur af starf­inu hér. Auðvitað vita prestar þetta allt saman best, bæði um fjár­hags­mál, lög­gjafa­nefnd­ar­mál, alls­herj­ar­mál, öll mál, og að sjálf­sögðu öll fram­kvæmda­mál.

Ekki vitum við neitt um þau, ekki neitt um rekstur, lög­fræð­ing­arnir, menn sem hafa unnið við það í tutt­ugu, þrjá­tíu ár. Það eru bara prestar sem vita það,“ sagði Óskar sem er lög­fræð­ingur.

„Ég held að það mætti kannski skoða að biskup væri alls ekki prestur. Það má ekki horfa á alla hluti frá sjón­ar­hóli presta. Þið verðið að sætta ykkur við það.“

Sagði að end­ingu:

„Ég vil gjarnan njóta alltum­lykj­andi hlýju og kær­leika ykkar sem hér eruð og læra af ykkur um allt sem mér hefur ekki tek­ist að læra um ævina og er þess vegna dálítið þakk­látur fyrir að hafa setið hér í um tvo tíma og notið þess­arar leið­sagnar áfram. Ég held að það mætti kannski skoða að biskup væri alls ekki prestur. Mér hefur helst dottið í hug að hann væri lög­fræð­ingur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins