„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fjármögnun tryggð til að ráðast í viðamiklar breytingar á örorku- og endurhæfingarlífeyriskerfinu

Fjármögnun tryggð til að ráðast í viðamiklar breytingar á örorku- og endurhæfingarlífeyriskerfinu
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son er í fram­boði til vara­for­manns VG

Í fjár­mála­á­ætlun sem kynnt var fyrr í dag er tryggð fjár­mögnun til að ráð­ast í viða­miklar breyt­ingar á örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­kerf­inu. Fjár­mögn­unin er hluti af heild­ar­end­ur­skoðun alls kerf­is­ins sem er stærsta áherslu­mál Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra.

Samkvæmt fjár­mála­á­ætlun 2024-2028 mun fjár­veit­ing til heild­ar­end­ur­skoð­un­ar­innar hækka um 500 millj­ónir króna árið 2024 til und­ir­bún­ings breyt­ing­unum. Ári síðar hækkar fjár­veit­ingin um ríf­lega 15 millj­arða króna, en þá er gert ráð fyrir að ný heild­ar­lög í mála­flokknum taki gildi.

Árið 2026 er gert ráð fyrir að inn­leið­ingu ljúki og eykst fjár­veit­ing þá um rúman einn millj­arð króna og er gert ráð fyrir að hækk­unin verði þá sam­tals rúm­lega 16 millj­arðar króna.

„Ég er gríð­ar­lega ánægður með að við höfum fjár­magnað breyt­ingar sem beðið hefur verið eftir svo árum skiptir. Umbylt­ing örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­kerf­is­ins mun marka vatna­skil, þar sem aukin áhersla verður á virkni fólks og tæki­færi á vinnu­mark­aði fyrir þau sem hafa mis­mikla starfs­getu. Fjár­veit­ingin þýðir að við getum gert kerfið ein­fald­ara, gagn­særra og rétt­lát­ara og stutt enn frekar við þau sem lök­ust hafa kjörin.

Ég er stoltur af þess­ari áherslu rík­is­stjórn­ar­innar sem sýnir að for­gangs­raðað er í þágu fólks á örorku og í end­ur­hæf­ingu,“ segir Guð­mundur Ingi.

Bætir við:

„Næsta skref er að vinna áfram að und­ir­bún­ingi og inn­leið­ingu nýs kerfis og á haust­þingi mun ég mæla fyrir frum­varpi þess efnis.“

End­ur­skoð­unin sem nú stendur yfir á örorku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­kerf­inu er þrepa­skipt og hefur fyrstu áföng­unum þegar verið náð með sam­þykkt laga um leng­ingu á tíma­bili end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyris og nær tvö­földun á frí­tekju­marki örorku­líf­eyr­is­þega en 14 ár voru liðin síðan frí­tekju­markið hafði síð­ast verið hækkað.

Annað áherslu­mál félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra er verk­efnið Gott að eld­ast sem snýst um heild­ar­end­ur­skoðun á þjón­ustu við eldra fólk. Verk­efnið er á ábyrgð félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytis og heil­brigð­is­ráðu­neytis. Samkvæmt nýrri fjár­mála­á­ætlun munu alls 700 millj­ónir króna renna til þeirra aðgerða í aðgerða­á­ætl­un­inni sem eru á ábyrgð félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins og dreifast þær á árin 2025-2027.

Mark­miðið með Gott að eld­ast er að trygga eldra fólki þjón­ustu við hæfi og auka mögu­leika þess á að búa sem lengst heima. Meg­in­þungi aðgerða­á­ætl­un­ar­innar sem ráð­herra mælti fyrir á Alþingi nýlega hvílir á þró­un­ar­verk­efnum um sam­þætt­ingu félags- og heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir eldra fólk, en einnig á nýsköpun, aukna and­lega og lík­am­lega virkni og stór­bætt upp­lýs­inga­flæði um þjón­ustu.

„Það er stór áfangi að fá inn fjár­magn í verk­efnið Gott að eld­ast. Sú veg­ferð sem við erum hér að hefja mun umbylta þjón­ustu við eldra fólk. Hluti af verk­efn­inu þarf að fela í sér hug­ar­fars­breyt­ingu gagn­vart eldra fólki og við­ur­kenn­ingu á mik­il­vægi þekk­ingar, reynslu og mannauðs sem þessi hópur sam­fé­lags­ins býr yfir. Eldra fólk er svo sann­ar­lega virði en ekki byrði,“ sagði ráð­herr­ann Guð­mundur Ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins