„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Albert býr á tveimur stöðum – „Best finnst mér að gefa gjafir sem eyðast“

Albert býr á tveimur stöðum – „Best finnst mér að gefa gjafir sem eyðast“
Albert Eiríks­son. Mynd úr einka­safni.

Mat­gæð­ing­ur­inn, Albert Eiríks­son, er neyt­andi vik­unnar að þess sinni. Hann býr ásamt manni sínum Bergþóri Pálssyni á tveimur stöðum. Annars vegar á Ísafirði þar sem hann er aðstoð­ar­skóla­stjóri í Tón­list­ar­skóla Ísa­fjarða og hins vegar í Reykja­vík þar sem hann heldur veislur heima hjá sér og tekur á móti fólki. Það hentar honum vel að flakka á milli staða. Einnig heldur hann úti  upp­skrifta- og upp­lýs­inga­vefnum  Albert eldar

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég hef verið að nýta mér tölu­vert til­boð í mat­vöru­búðum á seinni árum. Ég fer vel með hrá­efni frekar en að leggja ofurá­herslu á sparnað. Nýti alla afganga vel og frysti. Einnig vil ég hafa mat­inn eins hreinan og mögu­legt er og forð­ast unnar vörur. En ég passa ég líka upp á lifa og njóta því það það sem gefur líf­inu gildi.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég kaupi mér ekki oft föt. En vil hafa þau vönduð þegar ég geri það og alls ekki „einnota “ en auð­vitað kaupir maður sér eina og eina sum­ar­skyrtu svona með.  Ég missi mig alls ekki á útsölum, kannski af því að mér finnst ekk­ert gaman að fara í fata­búðir. Það er vanda­samt að velja gjafir og þarf að hugsa það vel. Ég vel síður eitt­hvað sem fer upp í hillu eða vegg hjá fólki nema þá í sam­ráði við maka. Best finnst mér að gefa gjafir sem eyð­ast. Hvort sem það er eitt­hvað mat­ar­kyns eða út að borða. Vín­flaska er líka klass­ísk gjöf en hentar ekki fyrir alla. Ég met það í hvert og eitt skipti og vanda mig.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Ég man nú ekki eftir neinu sér­stöku en ef ég er erlendis finnst mér mjög gaman að fara einu sinni fínt út að borða eða fara í afternoon tea  sem mér finnst alveg dásam­lega skemmti­legt. En þetta er alveg spari, þá klæðum við okkur upp og förum fínt út.

Skiptir umhverfisvernd þig máli? Endurnýtir þú?

Já heil­miklu. Ég reyni að henda eins litlu og ég get. Er svona miðl­ungs í að end­ur­nýta en hef tekið mig heil­mikið á og get auð­vitað gert miklu betur eins og flestir.  Hef kom­ist að því að flokkun er ekki eins mikið mál og ég hélt í upp­hafi. Byrjaði smátt og hef síðan haldið áfram að bæta mig.

Einnig erum við í moltu­gerð, tökum allan líf­rænan úrgang og búum til mold. Þetta er svona fjár­sjóður sem fór alveg fram hjá okkur. Það er heil­mik­ill líf­rænn úrgangur sem kemur frá okkur og virki­lega gef­andi að stúss­ast í þessu.

Ef við bregðum okkur af bæ í lengri tíma lækkum við alltaf hit­ann í híbýlum okkar og höfum gert það í fjöl­mörg ár. Eins er ég farin að hugsa meir um það að láta aldrei vatn renna að óþörfu. Og síð­ustu ár hefur það gerst. Er að verða með­vit­aðri og með­vit­aðri með árunum.

Ég ráð­legg fólki að njóta þess að vera til og ekki bíða eftir hlut­unum. Bretta bara upp ermarnar og byrja. Við getum öll lagt ýmis­legt til þess að líf okkar sé betra og skemmti­legra. Við erum ábyrg fyrir okkar eigin lífi og okkar heislu þarf af leið­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins