„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Nauðgaði 13 ára stúlku en fær ekki fangelsisdóm: „Ég held að fangelsi muni ekki hjálpa þér“

Nauðgaði 13 ára stúlku en fær ekki fangelsisdóm: „Ég held að fangelsi muni ekki hjálpa þér“
Sean Hogg, nauð­gari

Maður sem dæmdur var fyrir að nauðga 13 ára gam­alli stúlku í almenn­ings­garði, gengur nú frjáls ferða sinna vegna þess að dóm­ar­inn í máli hans segir hann of ungan fyrir fang­els­is­vist. Maðurinn var 17 ára er glæp­ur­inn var fram­inn en er nú 21 árs.

Sean Hogg var fund­inn sekur um nauðgun á ung­lings­stúlkunni í Dalkeith Country garð­inum í Mid­lothian í Skotlandi. Dómarinn í mál­inu, Lake lávarður sagði að aldur Hoggs, sem var 17 ára er hann framdi glæp­inn, verði að taka inn í mynd­ina er ákveða ætti refs­ingu.

Dæmdi því dóm­ar­inn Hogg til að vinna af hendi 270 klukku­tíma í óborg­aðri vinnu.

Dómurinn hefur valdið mik­illi reiði meðal stjórn­mála­manna og góð­gerða­sam­taka í Skotlandi en Sandy Brindley, for­stjóri Rape Crisis Scotland sam­tak­ana sagð­ist hafa áhyggjur af „mildi“ dóms­ins. Þá sagði hún einnig: „Þetta er mjög alvar­legt mál og við erum hneyksluð á að þessi ger­andi hafi ekki hlotið fang­els­is­dóm. Miðað við alvar­leika þessa glæps og þá stað­reynd að hann var dæmdur fyrir Hæsta­rétti, þá höfum við áhyggjur af því hversu mildur dóm­ur­inn er. Hugur okkar er með fórnl­ar­lambi glæps­ins. Fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis getur verið mjög erfitt að sjá fregnir af dæmdum ger­endum sem ganga lausir frá dóm­stólum.“

Tals­maður skoska Íhalds­flokks­ins, Jamie Greene var einnig ósáttur. „Skortur á fang­els­is­dómi er algjör móðgun við hinn unga brota­þola. Þetta sýnir enn og aftur hversu rangar refsi­reglur skoska Þjóð­ar­flokks­ins eru í raun og veru og hversu bundnar hendur dóm­ar­ans eru vegna þess.“

Dóms­skjölin segja að Hogg, sem er frá Suður Lan­arks­hire, hafi ráð­ist á stúlk­una með því að hóta henni og toga niður neðri klæðnað hennar. Þá greip hann í úln­lið hennar og neyddi hana til að fram­kvæma kyn­ferð­is­legt athæfi á honum og nauðg­aði henni svo.

Almenn­ings­garð­ur­inn þar sem nauðg­unin átti sér stað.

Hogg grét þegar hann var fund­inn sekur í Hæsta­rétti Glasgow. Dómarinn sagði: „Nauðgun er einn alvar­leg­asti glæp­ur­inn og þess vegna er réttað í mál­inu fyrir Hæsta­rétti. Þegar horft er til aðstæðna, aldur stúlkunnar og varna­leysi hennar tekið til athug­unar, geri það málið enn alvar­legra. Fyrir alvar­leika­stigið, verð ég að horfa á ábyrgð þína og ég verð að taka aldur þinn inn í mynd­ina. Ef þessi glæpur hefði verið fram­inn af full­orðnum ein­stak­lingi, yfir 25 ára ald­ur­inn, fengi hann fjög­urra eða fimm ára fang­els­is­dóm. Ég tel það ekki við­eig­andi og ætla ekki að dæma þig í fang­elsi. Þetta er í fyrsta sinn sem þú brýtur á þér og hefur aldrei verið í fang­elsi. Þú ert 21 árs og varst 17 ára þegar þetta gerð­ist. Ég held að fang­elsi muni ekki hjálpa þér að ná end­ur­hæf­ingu.“

Fyrir utan þá 270 klukku­tíma sem Hogg þarf að vinna án launa, verður fylgst með honum og hann settur á kyn­ferð­is­brota­manna­lista næstu þrjú árin.

Donald Findlay verj­andi, sagði við dóms­upp­kvaðn­ing­una að áfrýjun væri fyr­ir­huguð.

Fréttin er unnin upp úr frétt Mirror.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

glæpir

Að minnsta kosti 15 glæpasamtök á Íslandi: „Erfitt að tala um erlenda eða íslenska brotahópa“
Innlentglæpir

Að minnsta kosti 15 glæpa­sam­tök á Íslandi: „Erfitt að tala um erlenda eða íslenska brota­hópa“

Á Íslandi eru að minnsta kosti 15 skipu­lagðir glæpa­hópar, sam­kvæmt Rík­is­lög­reglu­stjóra. Í gær var sagt frá hand­töku lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á fjölda með­lima glæpa­sam­taka en í rassíu sem gerð var í hús­næðum sam­tak­anna fannst sex kíló af kóka­íni og amfetamíni, lyf, skot­vopn og um 40 millj­ónir króna í reiðufé en rann­sóknin hafði staðið yfir í ein­hverja mán­uði. Mannlíf sendi spurn­ingar...
Lögreglan handtók fjölda meðlima glæpagengis – Fundu fíkniefni, skotvopn og 40 milljónir í reiðufé
Innlentglæpir

Lög­reglan hand­tók fjölda með­lima glæpa­gengis – Fundu fíkni­efni, skot­vopn og 40 millj­ónir í reiðufé

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fór í meiri­hátta aðgerð gegn glæpa­gengi nýverið og hafa nú 18 ein­stak­lingar stöðu sak­born­ing í umfangs­miklu fíkni­efna­máli. Hald var lagt á sex kíló af kóka­íni og amfetamíni, skot­vopn og um fjöru­tíu millj­ónir í reiðufé. Í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni segir að lyf, sterar, fíkni­efni og skot­vopn hafi verið meðal þess sem lög­reglan lagði hald á, þar með talda...
Rændu hraðbanka með gröfu – SJÁÐU MYNDBANDIÐ
Heimurglæpir

Rændu hrað­banka með gröfu – SJÁÐU MYNDBANDIÐ

Stórfurðu­legt rán í Oakland Glæpa­menn frömdu ótrú­legt rán í Oakland í Banda­ríkj­unum á mánu­dag­inn en til þess að brjóta sér leið inn í búð not­uðu þeir litla gröfu. Starfs­maður búð­ar­innar rétt náði að forða sér frá því að fá gröf­una beint í and­litið. Auk þess var grafan notuð til að brjóta hrað­bank­ann inn í búð­inni. Þjófarnir bundu reipi í hrað­bank­ann...
Kayla hvarf níu ára gömul en fannst á lífi sex árum síðar: „Við erum himinlifandi“
Heimurglæpir

Kayla hvarf níu ára gömul en fannst á lífi sex árum síðar: „Við erum him­in­lif­andi“

Leynd­ar­dóm­ur­inn yfir hvarfi Kaylu Unbehaun hefur verið upp­lýstur. Fjallað var um hvarf hennar í Netflix þátta­röð­inni Unsolved Mysteries í fyrra. Nærri sex árum eftir að grunur lék á að Heather Unbehaun hefði rænt dóttur sinni, Kaylu, sem þá var níu ára, hefur hún fund­ist á lífi, hund­ruðum kíló­metrum frá heimabæ hennar í Illinois. E News! segir frá því að þann...
Glæpagengi Íslands: Stunguárásir, lyfjamisnotkun og rapptónlist
Innlentglæpir

Glæpa­gengi Íslands: Stungu­árásir, lyfja­mis­notkun og rapptón­list

Glæpa­gengi er hópur ein­stak­linga, oft fjöl­skylda eða vinir, sem fremja ýmis lög­brot. Slík gengi hafa ekki þekkst á Íslandi að neinu viti en eru algeng í mörgum löndum. Margir kann­ast ef til vill við banda­rísk gengi sem hafa verið í sviðs­ljós­inu í vest­rænni menn­ingu. Segja má að á Íslandi hafi skap­ast ein­hverss­konar ofbeldis tísku­bylgja á meðal ung­menna, nán­ast und­an­tekn­ing­ar­laust fylgir...
Vopnað rán náðist á myndband: „Farðu inn í helvítis búðina!“
Heimurglæpir

Vopnað rán náð­ist á mynd­band: „Farðu inn í hel­vítis búð­ina!“

Rán í skart­gripa­verslun náð­ist á mynd­band sem birt var í síð­ustu viku en sam­kvæmt Breskum fjöl­miðlum hefur ránum af þessu tagi fjölgað tölu­vert á síð­ustu árum. Á mynd­band­inu sést bif­reið bakka inn í versl­un­ina Danyaal Jewellers af miklum krafti en þar á eftir birt­ast grímu­klæddir menn, einn þeirra vopn­aður öxi. Átti ránið sér stað um hábjartan dag í Birming­ham en...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“