„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fjármálaráðherra sakaður um spillingu – Reynslulausri Söru Lind laumað í forstjórastól

Fjármálaráðherra sakaður um spillingu – Reynslulausri Söru Lind laumað í forstjórastól
Myndin er sam­sett

Fjár­mála­ráð­herra hefur skipað Söru Lind Guð­bergs­dóttur sem for­stjóra Rík­is­kaupa tíma­bundið og án aug­lýs­ingar. Þessi ráð­stöfun Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra vekur athygli og þá ekki síst í því ljósi að Sara Lind er reynslu­lítil á þessu sviði og aðeins menntuð sem lög­fræð­ingur. Þá teng­ist hún Sjálf­stæð­is­flokknum.

Faglega veikur for­stjóri

Vef­mið­ill­inn Hring­braut segir frá þessu og vekur athygli á því að Sara er eig­in­kona Stefáns Einars Stef­áns­sonar, hlað­varps­stjórn­anda Morg­un­blaðs­ins og kampa­vínsinn­flytj­anda. Mannlífi hafa einnig borist ábend­ingar vegna máls­ins sem þykir lykta af spill­ingu og vina­væð­ingu. Þá segir í grein Hring­brautar að áhyggjur séu uppi vegna þess að Sara Lind sé „fag­lega veikur“ for­stjóri og málið er sett í sam­hengi við Lind­ar­hvols­málið.

Sara Lind var á sínum tíma ráðin til stétt­ar­fé­lags­ins VR með afar umdeildum hætti. Stefán Einar var þá for­maður félags­ins og hún ást­kona hans. Hún lög­sótti DV vegna frétta um málið en tap­aði fyrir Hæsta­rétti. Sara var látin fara frá VR eftir að Stefán Einar var felldur af stóli for­manns. Hún lög­sótti þá félagið fyrir ein­elti og ólög­mæta upp­sögn en tap­aði því máli einnig.

Forsíðan sem Sara Lind lög­sótti DV fyrir og tap­aði á báðum dóms­stigum.

Forveri Söru Lindar, Björgvin Vík­ings­son, lét af störfum sem for­stjóri um síð­ustu mán­aða­mót til að verað inn­kaupa­stjóri Bónuss. Hann er með meistara­gráðu í aðfanga­keðju­stjórnun frá ETH háskól­anum í Zürich og B.Sc. gráðu í umhverfis- og bygg­inga­verk­fræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur kennt vöru­stjórnun og stefnu­mark­andi inn­kaup við Háskól­ann í Reykja­vík.

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn á upp­lýs­inga­full­trúa Rík­is­kaupa um ráðn­ing­una og fékk eft­ir­far­andi svör: „For­stjóri Rík­is­kaupa óskaði eftir að láta af störfum. Í stað hans var Sara Lind Guð­bergs­dóttir, sem var stað­geng­ill for­stjóra, settur tíma­bundið for­stjóri frá 1. apríl – 31. ágúst. Gert er ráð fyrir að staðan verði aug­lýst innan tíðar.“

Ráðherra vantreyst

Í frétt Hring­brautar segir að greini­legt sé að mikið van­traust ríki gagn­vart fjár­mála­ráð­herra, bæði meðal stjórn­ar­and­stöðu og stjórn­ar­liða. Segir í grein­inni að margir telji að Bjarni Bene­dikts­son laumað Söru Lind í stöðu for­stjóra Rík­is­kaupa án aug­lýs­ingar og ætli sér að skipa hana form­lega síðar í sumar að und­an­geng­inni aug­lýs­ingu. Banda­menn Bjarna eru sagðir hafa lýst þeirri skoðun við Hring­braut að þeir hafi ekki trú á því að Bjarni muni ganga svo langt að skipa Söru Lind for­stjóra Rík­is­kaupa í ljósi þess að hana skorti menntun og reynslu á þessu sviði. Í dag sé ekki lengur boð­legt að vera með lög­fræði­menntun til að setj­ast í feit emb­ætti í stjórn­kerf­inu. Vakin er athygli á því að meðal verk­efna for­stjór­ans á næstu árum sé stærsta verk­efni Íslands­sög­unnar, bygg­ing nýja Land­spít­al­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins