„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ekki orði minnst á baráttu Eflingar í vefriti ASÍ: „Hér er um grófa sögufölsun að ræða“

Ekki orði minnst á baráttu Eflingar í vefriti ASÍ: „Hér er um grófa sögufölsun að ræða“
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar. Mynd/skjá­skot RÚV

„Í dag las ég glæ­nýtt vefrit Alþýðu­sam­bands­ins „Vinnan 2023”. Þar má m.a. finna grein­ina “Fremstar meðal jafn­ingja” en í henni er talað við fimm kven-for­menn félaga innan vébanda ASÍ. Í inn­gangi grein­ar­innar segir orð­rétt:

“Í kringum kjara­við­ræður í lok síð­asta árs bar á gagn­rýn­is­röddum um eins­leitni samn­inga­nefnda þar sem karlar þóttu áber­andi og konur lítið sýni­legar. Ásýndin þótti líkj­ast myndum frá því á 7. ára­tug síð­ustu aldar en ekki nú eftir ára­tuga jafn­rétt­is­bar­áttu.”

Ég geri að sjálf­sögðu enga athuga­semd við að engin ástæða hafi verið séð til þess að ræða við mig vegna grein­ar­innar af rit­stjórum vefrits ASÍ. Það er öllum löngu orðið ljóst að ég verð seint talin fremst meðal jafn­ingja á vett­vangi sam­bands­ins. En ég get ekki annað en gert mjög alvar­lega athuga­semd við þá stórfurðu­legu og röngu mynd sem að dregin er upp í inn­gangs­orðum grein­ar­innar.“ Svona byrjar færsla Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur verka­lýðs­for­ingja Eflingar. Í henni furðar Sólveig sig á þeirri stað­reynd að ekki einu orði er minnst á bar­áttu Efl­ing­ar­kvenna á liðnum vetri, í nýju vefriti Alþýðu­sam­bands­ins.

„Ég spyr í fyllstu alvöru: Getur verið að Alþýðu­sam­bandið hafi misst af öllum frétta­flutn­ingi af samn­inga­nefnd Eflingar síð­asta vetur? Eða er samn­inga­nefnd Eflingar svo ómerki­leg í hugum þeirra sem að þar stýra efn­is­tökum og áherslum að það tekur því ein­fald­lega ekki að minn­ast á hana? Er virð­ing þeirra fyrir okkar mikla starfi og bar­áttu svo lítil að þau sjá ekk­ert athuga­vert við að ein­fald­lega láta, í vefriti sjálfs Alþýðu­sam­bands Íslands, eins og við séum ekki til? Er það vegna þess að við erum einmitt með­limir í samn­inga­nefnd sem leidd er af konu, og með konur alls­staðar að úr heim­inum í fram­varða­sveit nefnd­ar­innar? Er það ástæðan fyrir því að jað­ar­setn­ingin á okkur lifir góðu lífi á vett­vangi ASÍ? Getur verið að þau sjái ekki tví­skinn­ung­inn í því að fjalla í vefrit­inu sínu sér­stak­lega um konur og kvenna­sam­stöðu, en minnst þó ekki einu orði á bar­áttu Eflingar, þar sem að konur eru eins sýni­legar og öfl­ugar og hægt er að hugsa sér? Og er virki­lega eitt­hvað sem að minnir þau á 7. ára­tug síð­ustu aldar þegar að þau skoða sam­setn­ingu samn­inga­nefndar Eflingar?“

Segir Sólveig Anna að um sögu­fölskun sé að ræða.

„Stað­reyndin er þessi: Hér er um grófa sögu­fölsun á atburðum vetr­ar­ins að ræða, í boði Alþýðu­sam­bands Íslands. Ég og kven-félagar mínir í Eflingu hefðum mögu­lega getað trúað því að fyrir þær ríf­lega 105 millj­ónir sem að við sendum ASÍ á síð­asta ári gætum við fengið þó að ekki væri nema smá­vegis virð­ing­ar­vott. Þess í stað fáum við sögu­fölsun og algjöra útþurrkun (era­sure: hug­tak sem er notað í femínískum fræðum og á við þá til­hneig­ingu að hunsa, fjar­lægja og falsa vitnsi­burði um konur og kvenna-gjörðir).

Ég og bar­áttu-systur mínar í Eflingu tökum ekki útþurrkun á okkur og okkar bar­áttu þegj­andi og hljóða­laust. Þess­vegna skrifa ég um þetta ósæmi­lega rugl hér fyrir ykkur til að lesa. Við höfum tek­ist á við Samtök atvinnu­lífs­ins, póli­tíska valda­stétt sem að líkt og ASÍ reynir að láta eins og við séum ekki til, rík­is­sátta­semj­ara í vas­anum á auð­vald­inu, og svo mætti áfram telja. Við höfum farið í verk­föll, farið á verk­fallsvaktir, tek­ist á við verk­falls­brjóta. Við höfum staðið vörð hvor um aðra í þeim átökum sem að við höfum átt í vegna bar­áttu okkar fyrir því að Eflingar-konur njóti virð­ingar í sam­fé­lag­inu. Og það munum við halda áfram að gera. Það er ein­hvers­konar yfir­lýs­ing hjá ASÍ um veru­leikafirr­ingu að láta eins og við séum ekki til.“

Að lokum segir Sólveig Anna að Efl­ing­ar­konur þurfi ekki á ASÍ að halda, þær hafi hvor aðra.

„En við þurfum ekki á þeim að halda sem að sjá okkur ekki. Við höfum hvor aðra og það dugar okkur betur en nokkuð annað, hér eftir sem hingað til. Við höfum aldrei fengið neitt frá ASÍ hvort sem er.

Ég læt fylgja nokkrar myndir af með­limum samn­inga­nefndar Eflingar. Rétt upp hönd sem telur ásýnd­ina eins­leita og minna á 7. ára­tug síð­ustu aldar á Íslandi.(Það er rétt að taka fram að ekki er minnst einu orði á Eflingu í vefrit­inu, ekki heldur í grein­inni Áfram stelpur!)“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Verkalýðsbarátta

Sólveig Anna boðar verkfall í mars: „Þau láta ekki íslenska yfirstétt segja sér fyrir verkum“
InnlentVerkalýðsbarátta

Sólveig Anna boðar verk­fall í mars: „Þau láta ekki íslenska yfir­stétt segja sér fyrir verkum“

Sólveig Anna Jóns­dóttir boðar ótíma­bundið verk­fall Efl­ing­ar­fólks þann 18. mars. Formaður Eflingar, Sólveig Anna Jóns­dóttir, skrif­aði Facebook-færslu í morgun þar sem hún skýtur á Samtök atvinnu­lífs­ins, sem hún segir að svari kröfum verka­fólks með „útúr­snún­ingi og rugli.“ „Forystu SA finnst óvið­eig­andi að verka og lág­launa­fólk taki málin í sínar eigin vinnu­hendur og berj­ist fyrir betri kjörum. Við í Eflingu erum...
Saga úr lífi Eflingar-konu: „Við hljótum öll að bíða spennt eftir næsta frekjukasti auðvaldsins“
InnlentVerkalýðsbarátta

Saga úr lífi Eflingar-konu: „Við hljótum öll að bíða spennt eftir næsta frekjukasti auð­valds­ins“

Sólveig Anna Jóns­dóttir segir sögu úr lífi Eflingar-konu í nýrri færslu á Facebook. Í pistl­inum lýsir hún því hvernig Eflingar-konan þurfi að þræla myrkr­anna á milli en neyð­ist svo til að greiða um 70 pró­sent af tekjum sínum í leigu. Segir hún kon­una hafa ein­falt hlut­verk í sam­fé­lag­inu árið 2023: „Hún á vinna, hún á að hlýða og hún á...
Samherji segir upp öllu starfsfólki Hólmadrangs á Hólmavík: „Hvorki RÚV né Stöð 2 minntust á málið“
Landið

Samherji segir upp öllu starfs­fólki Hólma­drangs á Hólmavík: „Hvorki RÚV né Stöð 2 minnt­ust á málið“

Starfs­fólk Hólma­drangs á Hólmavík fékk til­kynn­ingu fyrir síð­ustu helgi um fyr­ir­hug­aða lokun hjá fyr­ir­tæk­inu og að hverjum ein­asta starfs­manni verði sagt upp störfum frá og með 30. júní næst­kom­andi. Alls er um að ræða 21 starfs­mann í heild­ina. Fram kemur í frétt Sam­stöðv­ar­innar að Hólma­drangi sé búinn að vera burð­ar­liður í atvinnu­lífi Hólm­vík­inga síð­ustu 58 árin. „Nú lýkur 58 ára...
Sólveig Anna rífur leiðtogafundinn í sig: „Það er hátt risið á hundaskítnum“
InnlentVerkalýðsbarátta

Sólveig Anna rífur leið­toga­fund­inn í sig: „Það er hátt risið á hunda­skítnum“

„Í til­efni leið­toga­fundar sendi ég heitar bar­áttu­kveðjur til alþýðu þeirra landa sem sjálfs-upp­hafn­ing­arnir sem að nú kom saman í Reykja­vík stýra.“ Svo byrjar langur reiði­lestur Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur verka­lýðs­hetju Eflingar á Facebook í dag. Þar fer hún afar hörðum orðum yfir ýmsa stjórn­mála­hópa á Íslandi en hún kallar þá meðal ann­ars nars­issista. Sólveig hét áfram: „Ég óska þess að þau...
Verkfall samþykkt í Neskaupsstað – Sundlaugin lokar í þrjá daga
Landið

Verkfall sam­þykkt í Nes­kaups­stað – Sund­laugin lokar í þrjá daga

Á Hvíta­sunnu­dag skellur á verk­fall á lands­vísu sem mun hafa víð­tæk áhrif í sam­fé­lag­inu. Í Nes­kaup­stað verður til að mynd lokað í íþrótta­mann­virkjum bæj­ar­ins, þar með talið sund­laug­inni. Verk­fallið verður dag­ana 27., 28. og 29. maí. Fram kemur í frétt Aust­ur­fréttar að Starfs­manna­fé­lag Fjarða­byggðar gekk til liðs við Kili í lok árs 2021, en star­fólk íþrótta­mann­virkja í Nes­kaup­stað til­heyra þeim....
Hæðist að 1. maí kaffi Valhallar: „Hvað er venjulegt verkafólk að gera þar? Kyssa á vöndinn?“
InnlentVerkalýðsbarátta

Hæðist að 1. maí kaffi Val­hallar: „Hvað er venju­legt verka­fólk að gera þar? Kyssa á vönd­inn?“

Björn Birg­is­son hæð­ist að 1. maí kaffi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og spyr hvort verka­lýðs­ráðið í Valhöll sé „með fullu ráði“. Sam­fé­lags­rýn­ir­inn beitti, Björn Birg­is­son í Grinda­vík skrif­aði færslu í dag þar sem hann hædd­ist að 1. maí kaffi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Valhöll. Birtir hann við færsl­una ljós­mynd af Guðlaugu Þór Þórð­ar­syni, umhverf­is­ráð­herra, klæddan í svuntu yfir jakka­föt. Segir Björn að meðal ann­ars að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins