„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Margrét er nýtin – notar enn gömlu brauðristina sem hún fékk í brúðargjöf

Margrét er nýtin – notar enn gömlu brauðristina sem hún fékk í brúðargjöf
Margrét Sig­fús­dóttir. Mynd af vef Hús­stjórn­ar­skól­ans í Reykja­vík.

Margrét Sig­fús­dóttir, sem var lengi skóla­stjóri Hús­stjórn­ar­skól­ans, er neyt­andi vik­unnar að þessu sinni. Hún er fædd og upp­alin á Selfossi næst elst af sex systk­inum. Fjórar stelpur og tveir strákar. Gekk í skóla þar, síðan í Hús­stjórn­ar­skól­ann á Laug­ar­vatni og þaðan í Hús­stjórn­ar­kenn­ara­skóla Íslands sem var þriggja ára nám. Þessi skóli var síðan sam­ein­aður Kenn­ara­skól­anum. Útskrif­að­ist þaðan vorið 1969. Var síðan í fullu starfi frá útskrift þar til hún hætti að vinna vorið 2022. Fór tvisvar í barn­eign­ar­frí á þessum árum. Aðeins þrír mán­uðir hvort skipti.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu ?

Ég mæli alltaf með því að gera inn­kaupa­lista til að spara í inn­kaupum og fylgja honum eftir. Verðlag er mjög mis­jafnt eftir fram­leið­anda og oft eru það þá gæðin sem þar skipta máli. Passa upp á að rétt magn sé keypt og ef svo er ekki nýta þá afganga næsta dag eða frysta þá. Ég merki þá alltaf og dag­set áður en ég set þá í fryst­inn.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Mesti sparn­að­ur­inn felst í því að henda ekki mat og þá á ég við mat­vara sem er á síð­asta sölu­degi til dæmis mjólk og mjólk­ur­vara. Mjólkin og mjólk­ur­vörur hafa lengra geymslu­þol en fram á síð­asta sölu­dag. Eftir því sem varan er feit­ari eins og til dæmis rjómi og nýmjólk þá geym­ast þessi vara langt fram yfir síð­asta sölu­dag. Þetta á líka við AB mjólk, súr­mjólk og skyr ásamt sýrðum rjóma. Mjólkin verður bara súr og engin deyr af henni. Ef fastir ostar mygla á utan þá er bara að skera utan af þeim eða þvo þá úr köldu vatni og þurrka.

Eins er með egg ekki henda þeim þó komið sé fram yfir síð­asta sölu­dag. Egg geym­ast miklu lengur alveg þrjá til fjóra mán­uði. Þó að egg fljóti upp við suðu sýnir það ekki að það sé ónýtt, eggja­skurnin er ekki loft­þéttar þannig þegar egg eld­ist gufar hægt og rólega vökvi frá egg­inu og loft kemur í staðin og gerir það að verkum að eggið flýtur upp.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég kaupi tíma­lausan fatnað úr góðum efnum sem þola að vera notuð og þvegin. Tímalaus föt eru þannig að þau eru aldrei í tísku en samt alltaf í tísku.  Varðandi gjafir þá kaupi ég eitt­hvað sem ég veit að fólk vill. Eins er gaman að gefa hand­verk sem maður hefur búið til sjálfur.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Mjólk er minn veik­leiki. Ég kaupi alltaf of mikið af henni.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já ég reyni að end­ur­nýta allt sem ég get. Ég nota til dæmis bök­un­ar­pappír aftur og aftur þar til hann nán­ast dettur í sundur. Eins er ég nýtin á hluti sem ég á. Gamla brauðristin mín sem ég fékk í brúð­ar­gjöf er enn í notkun þó mig langi aga­lega í nýja rauða brauðrist. Þessi gamla er bara í góðu lagi ennþá og ristar mjög vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins