„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dæmdur kynferðisbrotamaður myrti fimm unglinga í Oklahoma: „Okkur grunaði aldrei neitt misjafnt“

Dæmdur kynferðisbrotamaður myrti fimm unglinga í Oklahoma: „Okkur grunaði aldrei neitt misjafnt“

Sjö mann­eskjur eru látnar, þar á meðal fimm ung­lingar, eftir skotárás í dreif­býli fyrir utan smá­bæ­inn Hen­ryetta í Oklahoma, Banda­ríkj­unum. Skot­mað­ur­inn er tal­inn hafa framið sjálfs­víg eftir ódæðið.

Perez Hilton, af öllum mönnum, segir frá mál­inu á síðu sinni. Þar kemur fram að á mánu­dag­inn hafi lög­reglu­menn frá Okmulgee-sýslu verið að leita að tveimur ung­lingum sem til­kynnt hafði verið að væru týndar. Það voru þær Ivy Webster, 14 ára og Brittany Brewer, 16 ára en for­eldrar þeirra til­kynntu hvarf þeirra eftir að stelp­urnar gistu heima hjá vini þeirra yfir helg­ina. Þegar þær skil­uðu sér ekki heim á sunnu­dags­kvöld var haft sam­band við lög­regl­una.

Lög­reglan fór á stað­inn þar sem stúlk­urnar voru taldar hafa verið, á mánu­dags­morgun en við þeim blasti hræði­leg sýn. Utandyra, úr alfara­leið, fann lög­reglan lík sjö mann­eskja, þar á meðal þeirra Webster og Brewar og þriggja ann­arra ung­linga. Voru það Elizabeth Allen, 17 ára, Michael James Mayo, 15 ára og Tiffany Dore Guess, 13 ára. Þá fannst móðir Tiffany, Holly Guess, sem og eig­in­maður hennar og stjúp­faðir Tiffany, Jesse McFadden. Samkvæmt lög­regl­unni er talið að McFadden, sem var dæmdur nauð­gari, tal­inn hafa skotið eig­in­konu sína og ung­ling­ana fimm og síðan framið sjálfs­víg.

Samkvæmt The Okla­homan voru ung­ling­arnir allir nánir vinir sem höfðu notið þess að halda gisti­kvöld í nokkur ár. Móðir Ivy, Ashleigh Webster sagði fjöl­miðum að dóttir hennar hafi verið besta vin­kona Tiffany. Sagðist hún þó ekki hafa vitað mikið um stjúppabba hennar, McFadden en hann var nýr eig­in­maður móður hennar, Holly. „Við könn­uð­ust bara við hann í gegnum vin­áttu barn­anna okkar, við töl­uðum saman um að sækja börnin, skutla og fleira slíkt. En við vorum ekki vinir þess utan en við höfðum hitt hann og Holly margoft.“

Það sem fjöl­skyldur fórn­ar­lambanna vissu ekki var sú stað­reynd að McFadden var dæmdur í fang­elsi fyrir nauðgun árið 2003 en honum hafði verið sleppt árið 2020. Þá átti hann að mæta fyrir dóm­ara á mánu­dag­inn út af kæru vegna barnakláms sem hann hafði í fórum sínum. Hann mætti hins vegar ekki í rétt­inn og var því lög­reglan komin með hand­töku­skipun á hendur honum.

Faðir Ivy, Justin Webster sagði: „Tiffany Guess og dóttir okkar voru bestu vinir en við vissum í raun ekk­ert um þennan náunga. Okkur fannst hann svo­lítið skrít­inn en okkur leið vel með vin­átt­una, sér­stak­lega vit­andi að nokkrir vinir dóttur okkar voru oft með þeim þar að hanga. Þau fóru stundum þangað um helgar.“ Bætti hann við: „Tiffany kom stundum og gisti hjá okkur yfir helgar en okkur grun­aði aldrei neitt mis­jafnt.“

Fjöl­skyldur fórn­ar­lambanna eru afar ósátt að vita nú, að McFadden hafi búið í sam­fé­lagi þeirra án þess að nokkrum hafi verið til­kynnt um hans glæpa­sögu.

Justin ræddi við KFOR-TV sjón­varps­stöð­ina um McFadden og það hvernig fjöl­skylda hans hafi fyrst frétt af for­tíð hans eftir að harm­leik­ur­inn hafði átt sér stað. „Ég er reiður kerf­inu og ég held að allir í þessu landi ættu að vera reiðir út í kerfið. Þetta er maður sem hafði áður setið inni. Hann var kyn­ferð­is­glæpa­maður og honum var sleppt fyrr en dóm­ur­inn hafði kveðið á um. Og ef þú spyrð mig, þá finnst mér að ef þú gerir mis­tök einu sinni, ætt­irðu að sitja inni alla ævi.“

McFadden ját­aði á sig nauðgun árið 2003 og var dæmdur í 28 ára fang­elsi en var sleppt árið 2020, 17 árum síðar. Á meðan hann sat enn inni var hann sak­aður um að senda nekt­ar­myndir til mann­eskju undir lög­aldri í gegnum síma sem hann hafði kom­ist ólög­lega yfir. Var hann að lokum kærður fyrir tvo ákæru­liði sem snéru að því að biðja um kyn­ferð­is­lega hegðun með ólög­ráða ein­stak­lingi með því að nota tækni, og einn ákæru­lið sem snéri um vörslu barnakláms. Á mánu­dag­inn átti hann að mæta fyrir dóm­ara vegna máls­ins en eins og áður hefur komið fram, mætti hann ekki.

Móðir Holly og amma Tiffany, Jan Mayo, sagði í við­tali við Tulsa World að McFadden hafi verið svika­hrappur sem hefði logið að Holly um for­tíð sína. Sagði hún að mað­ur­inn hefði borgað konu til að hringja í Holly og þykj­ast vera konan sem McFadden var dæmdur fyrir að nauðga árið 2003. Hún hafi sagt Holly hinu „raun­veru­legu sögu“ um nauðg­un­ina sem Holly hafi trúað. Segist Jan hafa kom­ist að þessu eftir að „fórn­ar­lambið“ hafi hringt í fjöl­skyld­una eftir að fréttir af harm­leiknum fór í frétt­irnar og sagt þeim að henni hafi verið borgað til að ljúga að Holly. „Dóttir mín myndi aldrei gera neitt til að skaða börn sín. Hún hafði ekk­ert með þetta að gera.“

Hér fyrir neðan má sjá umfjöllun News Nation um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skotárás

Bendir á misræmi í umfjöllun um fjöldaskotárásir: „Kannski ættum við að giska á hvers vegna …“
InnlentSkotárás

Bendir á mis­ræmi í umfjöllun um fjölda­skotárásir: „Kannski ættum við að giska á hvers vegna …“

Karen Kjart­ans­dóttir bendir á mis­ræmi í fréttaum­fjöllun um fjölda­skotárásir og veltir fyrir sér af hverju Rickard And­ers­son, sem skaut 10 til bana í Örebro á dög­unum, hafi ekki verið sagður hafa fylgt rót­tækri hug­mynda­fræði en hann heyrð­ist öskra á sýr­lensk fórn­ar­lömb sín um að fara aftur heim til sín. Stjórn­enda­ráð­gjaf­inn Karen Kjart­ans­dóttir skrif­aði Facebook-færslu í gær þar sem hún talar...
Segir tímaspursmál hvenær skotárás verði hér á landi: „Trommað upp af siðlausu stjórnmálafólki“
Innlent

Segir tíma­spurs­mál hvenær skotárás verði hér á landi: „Trommað upp af sið­lausu stjórn­mála­fólki“

Rickard Anderson, mað­ur­inn sem tal­inn er hafa myrt 10 manns í skotárásinni í Örebro er sagður hafa stjórn­ast af hatri gegn flótta­fólki en hluti hinna myrtu komu frá Sýrlandi. Gunnar Smári Egilsson seigr það aðeins tíma­spurs­mál hvenær álíka ódæði verði framið hér. Sænskir fjöl­miðlar hafa birt mynd­skeið sem nem­andi við Ris­bergska-skól­ann í Örebro tók á meðan hann faldi sig inni...
Skotmaðurinn í Örebro var 35 ára og tekjulaus – Hafði skotveiðileyfi fyrir veiðirifflinum
Heimur

Skot­mað­ur­inn í Örebro var 35 ára og tekju­laus – Hafði skot­veiði­leyfi fyrir veiði­riffl­inum

Maðurinn sem skaut 10 til bana og síðan sjálfan sig í Campus Ris­bergska-skól­anum í Örebro í gær var 35 ára gam­all og hafði engin tengsl við gengi. Samkvæmt SVT var morð­ing­inn sem mætti í Campus Ris­bergska-skól­ann, sem er skóli fyrir full­orðna í Örebro, 35 ára gam­all og tekju­laus, með enga teng­ingu við glæpa­gengi. Hann mætti í skól­ann vopn­aður veiði­riffli sem...
Minnst fimm skotnir í árás í sænskum skóla – Lögreglan biður almenning að halda sér fjarri
HeimurSkotárás

Minnst fimm skotnir í árás í sænskum skóla – Lög­reglan biður almenn­ing að halda sér fjarri

Fimm manns hafa verið skotnir inn­an­dyra í Campus Ris­bergska-skól­ann í Örebro, Svíþjóð. Umfangs­mikið lög­reglu­starf stendur yfir og er almenn­ingur á Västhaga-svæð­inu hvattur til að halda sig inn­an­dyra. Samkvæmt upp­lýs­ingum Expressen skaut ger­and­inn sjálfan sig. Skömmu eftir klukkan 12:30 í dag barst lög­reglu til­kynn­ing um skotárás í Campus Ris­bergska-skól­anum í Örebro. Fimm manns hafa verið skotnir og hvetur lög­regla almenn­ing á...
Enn ein árásin í Bandaríkjunum – Þrír til fjórir hófu skothríð fyrir utan skemmtistað í New York
HeimurSkotárás

Enn ein árásin í Banda­ríkj­unum – Þrír til fjórir hófu skot­hríð fyrir utan skemmti­stað í New York

Ofbeldið heldur áfram í byrjun árs í Banda­ríkj­unum en í gær­kvöldi særð­ust tíu manns í skotárás fyrir utan skemmti­stað í New York-borg. Lög­reglan segir árás­ina þó ekki tengj­ast hryðju­verkum. Um það bil 15 mann­eskjur voru fyrir utan skemmti­stað­inn Amazura í Queens-hverf­inu í New York þegar þrjár eða fjórar mann­eskju hófu skyndi­lega skotárás. Yfirvöld segja að um það bil 30 skotum...
Kona skotin til bana á leið úr líkvöku: „Þetta er sannarlega átakanlegt atvik“
HeimurSkotárás

Kona skotin til bana á leið úr líkvöku: „Þetta er sann­ar­lega átak­an­legt atvik“

Kona sem var skotin til bana í hræði­legri skotárás í Brent-hverf­inu í Lundúnum á laug­ar­dag­inn, hefur verið nafn­greind í fyrsta skipti. Michelle Sadio, 46 ​​ára, fannst alvar­lega slösuð á Gifford Road í Harles­den á laug­ar­dags­kvöldið. Þrátt fyrir bestu við­leitni við­bragðs­að­ila var hún úrskurðuð látin á vett­vangi. Tveir menn slös­uð­ust einnig í atvik­inu, að sögn lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Annar þeirra var...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“