„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Súrrealísk“ stemmning í miðborginni: „Manni líður aldrei vel í kringum vopn“

„Súrrealísk“ stemmning í miðborginni: „Manni líður aldrei vel í kringum vopn“
Þung­vopn­aðir lög­reglu­menn fyrir utan Hótel Borg. Mynd: Björgvin Gunnarsson

Hvert sem litið er í mið­borg Reykja­víkur má sjá þung­vopn­aða lög­reglu­menn og merkta og ómerkta lög­reglu­bíla, vegna leið­toga­fundar Evr­ópu­ráðs­ins sem hald­inn er í dag og á morgun. Þá eru leyniskyttur á þaki Hörpu og Seðla­bank­anum.

Léleg ljós­mynd af leyniskyttum á toppi Seðla­bank­ans.

Mannlíf skoð­aði stemmn­ing­una í mið­borg Reykja­víkur í dag en verður henni varla betur lýst en sem súrr­el­ískri. Hvert sem litið var mátti sjá lög­reglu­menn, suma hverja þung­vopn­aða með rifla í hönd. Þá voru einu bif­reið­arnar í umferð­inni lög­reglu­bílar, ómerktir sumir sem og borg­ar­starfs­menn á sér­merktum bílum. Þá mátti sjá svarta bíla sem einnig voru sér­merktir en bíl­stjórar þeirra voru í svörtum jakka­fötum og alvar­legir á svip. Á þaki Seðla­bank­ans sést í tvær leyniskyttur undir litlu skýli sem var sett upp vegna rign­ing­ar­innar í dag. Þá voru tvö svipuð skýli uppi á Hörpu, þar sem leið­toga­fund­ur­inn er hald­inn.

Þung­vopn­aðir lög­reglu­menn fyrir utan Hótel Borg.

Við höfn­ina liggur varð­skip Land­helg­is­gæsl­unnar og fylgist með sjó­leið­inni að Hörpu. Við öll dýr­ari hótel mið­borg­ar­innar eru þung­vopn­aðir lög­reglu­menn og oftar en ekki einnig svartur bíll með svart­klæddum mönnum inn­an­borðs.

Varðskip

Mannlíf tók nokkra veg­far­endur tali og spurði þá hvernig þau upp­lifðu stemmn­ing­una.

Páll nokkur sagði að þetta minnti sig svo­lítið á það er hann heim­sótti Kænugarð í Úkraínu árið 2018 en þar var gæslan mjög mikil. „Þetta er svo­lítið skrítið. Það er mjög sér­stakt að það sé búið að loka öllu þó maður skilji það alveg. Ég vona að þetta hafi svo sem góð áhrif en ég er ekki viss. Það er nátt­úru­lega búið að ráð­ast á vef Alþingis og svona þannig að ég veit ekki hvort þetta sé snið­ugt í heild­ina. Ég var að lesa grein eftir sendi­herra Rússa og hann er ekki ánægður. Þannig að ég veit ekki hvort það sé snið­ugt endi­lega að vera að ögra svona mikið þó maður vilji nátt­úr­lega að Úkraína verði alveg frjáls.“

Þung­vopn­aðir lög­reglu­menn.

Haukur Ingi Jónsson var á gangi með hund­inum Bruno er Mannlíf spurði hann hvernig honum lít­ist stemmn­ing­una. „Hún er mjög skrítin, sér­kenni­leg, róleg,“ sagði Haukur Ingi og hló. „Rosalega róleg, fólk er svona ráf­andi um og margir staðir lok­aði af því að það er svo rólegt.“

Haukur Ingi og Bruno

Hvernig finnst þér að sjá lög­regl­una vopn­aða?

„Skrítið. Hún er rosa mikið vopnuð og þeir eru margir. En þetta er bara af þeirri stærð­argráðu að þetta er nýtt fyrir okkur Íslend­inga. “

Finnst þér þetta í lagi?

„já, já, maður hefur margoft verið erlendis þar sem eru við­burðir og það eru stórum svæðum lokað og þar standa menn þung­vopn­aðir og þar eru stórir bryn­varðir bílar stundum og svona en manni líður aldrei vel í kringum vopn. Maður vill ekki sjá þau.“

Ung kona sem ekki vildi láta nafn síns getið en hún flutti til Íslands fyrir fjórum mán­uðum, frá Þýska­landi. Sagði hún við Mannlíf að henni þætti þetta svo­lítið skrítið en allt í lagi: „Kannski er þetta haldið hér á landi af því að þetta er hlut­laust land? Að minnsta kosti er betra að halda fund­inn hér en í Úkraínu til dæmis.“

Félag­arnir Ólafur Karl Kvaran og Emil Alex Ricter ákváðu að taka sér pásu frá próflestri til að kíkja í mið­bæ­inn og sjá allt havaríið með eigin augum. „Mér finnst þetta crazy,“ sagði annar þeirra og hélt áfram. „Við vorum að spyrja nokkrar löggur áðan hvort þeir hafi áður notað svona byssur og þeir sögðu „ekki sjens“ þannig að þetta er pínu súr­r­eal­ískt, á Íslandi.“ „En þetta er stemmn­ing, það er gaman,“ bætti hinn við. „Það er ekki oft sem eitt­hvað svona ger­ist. Þetta er áhuga­vert. Þetta er svona once in a lifetime dæmi. Við höldum að við höfum sé Macron áðan. Hann er með rosa­lega stórt nef.“

Ólafur Karl Kvaran og Emil Alex Ricter
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins