„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jógakennarinn sem skrifar ástarsögur – Grænmeti er gott fyrir geðheilsuna

Jógakennarinn sem skrifar ástarsögur – Grænmeti er gott fyrir geðheilsuna
Marta Eiríks­dóttir. Mynd úr einka­safni.

Neytandi vik­unnar er Marta Eiríks­dóttir. Hún er jóga­kenn­ari og rit­höf­undur og var einmitt að gefa út fjórðu skáld­sög­una sína, hug­ljúfa ást­ar­sögu.

Marta er gift Friðriki Þór Frið­riks­syni, raf­virkja­meist­ara og eiga þau tvö upp­komin börn, og fjögur barna­börn. Marta og Friðrik búa í miðri nátt­úrupara­dís Suð­ur­nesja­bæjar, í Nátthaga hverfi.

Marta er ekki græn­metisæta en hefur lært að meta neyslu græn­metis. Mat­ar­inn­kaup hennar snú­ast mikið um græn­meti, það skiptir öllu máli.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu ?

Já ég geri það en legg samt mikið upp úr því að versl­an­irnar sem ég kaupi af, bjóði upp á gott úrval af fersku græn­meti á sann­gjörnu verði, ferska hrá­vöru og líf­rænar mat­vörur.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Ég legg mikið upp úr því að kaupa holl­ustu en ekki óholl­ustu, yfir­leitt líf­rænt. Lífrænar vörur end­ast betur og ég þarf ekki eins mikið af þeim, til dæmis hýð­is­grjón gera mig sadd­ari en hvít unnin hrís­grjón. Þó þær líf­rænu séu dýr­ari í inn­kaupum þá er reynsla mín sú að þær vörur eru ekki eins útþynntar og unnar mat­vörur.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Ef það kall­ast að end­ur­nýta að nýta vel þær mat­vörur sem ég á í skáp­unum og ísskápnum, prófa nýjar útfærslur með því sem ég á til, þegar ég nenni ekki út í búð. Ég held það skipti máli að hugsa dag­inn áður hvað ég ætla að hafa í mat­inn næsta dag en þá eru kaupin oft skyn­sam­legri. Alls ekki að fara svöng út í búð að kaupa í mat­inn!

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Lyk­il­orðið mitt í mat­ar­inn­kaupum er hvar fæst fers­kasta græn­metið, fers­kasta kjötið og fisk­ur­inn, fers­kasta mat­varan? Ég elda alltaf frá grunni, kaupi ekki til­búin mat. Auðvitað finnst mér þó gaman að fara út að borða.

Fatnað kaupi ég afar sjaldan, ég á svo mikið af fötum að mér end­ist ekki ævin að nota þau öll! Ég prófa að raða þeim saman á nýjan hátt.

Þegar ég kaupi gjafir þá hugsa ég alltaf, myndi ég vilja fá þetta að gjöf? Það þarf ekki að kosta mikið, það er hug­ur­inn á bak við sem gildir.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Ferskt græn­meti skiptir öllu máli í inn­kaupum hjá mér, sem með­læti, sem hrásalat, sem þeyt­ingur.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já auð­vitað en ég er ekki sam­mála því að heimsendir sé í nánd! Mér þykir mjög vænt um nátt­úr­una enda bý ég mitt í fugla­para­dís. Ég bjó í Noregi í sex ár og þar flokk­uðum við allt rusl í fimm tunnur heima hjá okkur. Það er löngu kom­inn tími til að við Íslend­ingar flokkum ruslið okkar. Það er mjög mik­il­vægt skref fyrir ein­stak­linga í átt að umhverf­is­vernd.

Annað sem þú vilt taka fram?

Börn læra að borða ferskt græn­meti af okkur full­orðnum, það skiptir því miklu máli að þau fái að borða grænt á hverjum degi og á laug­ar­dögum með ídýfu sem nammi. Okkur líður svo miklu betur þegar við borðum meira af græn­meti sem hefur mikil áhrif á geð­heilsu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins