„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Helgi Björns og Salka Sól skemmta á toppi Úlfarsfells í kvöld – Veðurútlit með ágætum

Helgi Björns og Salka Sól skemmta á toppi Úlfarsfells í kvöld – Veðurútlit með ágætum
Helgi Björns á toppi Úlf­ars­fells. Mynd: rt

Helgi Björns og Reiðmenn vind­anna ásamt Sölku Sól munu skemmta göngu­fólki við efsta tind Úlf­ars­fells í kvöld en hátíðin kall­ast Úlf­ars­fell 2000. Gangan hefst kl. 18. Reið­menn­irnir munu stíga á stokk um kl. 18:45.

Með Helga Björns og Reið­menn­unum verður stór­söng­konan Salka Sól en þau Helgi hafa troðið saman oft áður, þá sér í lagi í sjón­varp­inu á tímum Covid.

Það er Ferða­fé­lag Íslands, World Class og Fjalla­kof­inn sem standa fyrir fjöl­skyldu­göng­unni sem er hluti af lýð­heilsu­átaki. Um er að ræða skemmti­göngu sem endar við rætur Stóra­hnúks á Úlf­ars­felli þar sem sett hefur verið upp svið. Í þess­ari skemmti­göngu mun Ferða­fé­lag Íslands heiðra þá göngu­fé­laga sem gengið hafa mörg hund­ruð sinnum á Úlf­ars­fell.

Fleiri þús­und manns hafa tekið þátt í Úlf­ars­fells­há­tíðum Ferða­fé­lags Íslands und­an­farin ár en þar gefst fjöl­skyldum kjörið tæki­færi til að eiga saman góða stund úti í nátt­úr­unni og syngja sum­arið inn sum­arið. Sjálfir Stuðmenn skemmtu á hátíð­inni Úlf­ars­fell 1000 en þá gengu yfir 2000 manns á fjallið og skemmti sér í íslenskri nátt­úr­unni.

Veð­ur­spáin var ekki beisin framan af en veð­urguð­irnir virð­ast hafa skipt um skoðun og ætla að halda honum þurrum seinni part dags.

Heið­urs­gestur göng­unnar í ár verður sjálfur Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, sem mun ávarpa göngugarpana. Þá er von á þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar sem sýnir listir sínar. Hér er

hlekkur inn á við­burð­inn

á Facebook. Fólk er beðið um að skrá sig. Gengið verður á fjallið frá fjórum stöðum, í Mos­fellsbæ og Úlf­arsár­dal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins