„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Björn minnist vinar síns: „Það mun bara verða einn Hjörtur úr Kinnunum“

Björn minnist vinar síns: „Það mun bara verða einn Hjörtur úr Kinnunum“
Hjörtur Howser- Mynd: DV-skjáskot af Facebook

„Hjörtur var sjar­mer­andi og sterkur per­sónu­leiki og náði alltaf athygli hvar sem hann var en oftar en ekki sá hann odd af oflæti sínu,“ skrifar Björn Thorodd­sen gít­ar­leik­ari, um vin sinn, Hjört Howser sem lést á dög­unum.

Hjörtur Howser starf­aði sem hljóm­borðs­leik­ari, leið­sögu­maður, kenn­ari, og um tíma sem veit­inga­húsa­gagn­rýn­andi fyrir Mannlíf og Ísafold. Hann lést þann 24. apríl, 61 árs gam­all að aldri; hann verður jarð­sung­inn í dag.

Hjörtur fædd­ist 30. júní, 1961 í Hafna­firði og ólst hann þar upp. Hann lék með mörgum hljóm­sveitum eins og Grafík, Vinum Dóra og Kátum piltum. Þá lék hann einnig með Mezzoforte og Fræbbblunum. Einnig var hann und­ir­leik­ari og tón­list­ar­stjóri fyrir grínist­ann Ladda.

Björn Thorodd­sen, gít­ar­snill­ingur, minn­ist Hjartar á Facebook-síðu sinni en hann gaf Mannlífi góð­fús­legt leyfi til birt­ingar á færsl­unni.

„Lífið er ekki auð­velt og minn vinur hefur alveg fengið að taka á því.Hjörtur var svo sann­ar­lega lit­ríkur og það mun bara verða einn Hjörtur úr Kinnunum.Við strák­arnir úr Bo band­inu erum nú einum færri og lík­lega verða ekki farnar fleiri Rúss­lands­ferðir í þessu lífi.“

Lesa má minn­ing­ar­orð Hjartar í heild sinni hér að neðan:

„Það verður fátæk­legra sam­fé­lagið þegar Hjörtur Howser minn gamli æsku vinur er far­inn.

Við hitt­umst fyrst þegar Hjörtur var i Öldutún­skóla, ég nýfluttur til Reykja­vikur. Við áttum strax sam­leið. Tónlist var það sem við höfðum brenn­andi áhuga á. Við­héngum mikið saman öll ung­lings­árin og það voru ekki ófárar ferð­irnar í Kinn­arnar með bláa Land­leiða­vagn­inum. Lilja mamma Hjartar tók alltaf vel á móti sem og systur hans Delía og Lára. Við Hjörtur byrj­uðum snemma að spila i hljóm­sveitum m.a, Tívoli, Cobra, Stormsveit­inni og svo seinna með Bo Hall band.Við Hjörtur vorum alltaf að taka upp tón­list þegar við vorum ungir og lifið gekk útá tón­list. Eitt sinn á miðri sið­ustu öld erum við Hjörtur staddir i New York og við erum med kassettu með hljóm­veit­inni okkar Stormsveit­inni. Við gistum hja vin­konu systur Hjartar og máttum hringja en bara inn­an­bæjar. Við fórum i síma­skránna og fundum sima­númer hjá helstu hljóm­plötu­fyr­ir­tækum i NY. Þarna fór Hjörtur á kostum og ég hvatti hann, á íslensku. Hjörtur var svo mælskur að það hálfa væri nóg og við fengum við­tal hjá nokkrum fyr­ir­tækjum en stóra breikið okkar var hjá lítt þekktu fyr­ir­tæki sem ætl­aði að hringja til Íslands á ákveðnum tíma á ákveðnum degi. Við biðum i Stekkj­arkinn­inni en sím­talið kom aldrei svo við fórum uppá stöð og fengum okkur pylsu. Eftirá að hyggja var ekki skyn­sam­legt að kynna Stormsveit­ina i NY, sér­stak­lega út af nafn­inu.Hjörtur var sjar­mer­andi og sterkur per­sónu­leiki og náði alltaf athygli hvar sem hann var en oftar en ekki sá hann odd af oflæti sinu og gaf mér smá athygli og sagði þetta er Bjössi vinur minn, hann spilar a gítar og þá fékk ég mínar 5 minútur.Svo ger­ist það sem ger­ist svo oft að menn fara í sitt­hvora átt. Við spil­uðum síð­ast saman í Bo Hall band, síðan eru liðin mörg ár . Alltaf hefur þó vin­átt­áttan verið sterk og það var þessi hlið á Hirti, hjálp­samur, traustur, ósér­hlíf­inn sem er svo fal­leg og sterk.Lífið er ekki auð­velt og minn vinur hefur alveg fengið að taka á þvi.Hjörtur var svo sann­ar­lega litrikur og það mun bara verða einn Hjörtur úr Kinn­un­um­Við strák­arnir úr Bo band­inu erum nú einum færri og lik­lega verða ekki farnar fleiri Rúss­lands­ferðir í þessu lifi.Allar minar sam­úð­ar­kveðjur til fjöl­skyld­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins