„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dómsmálaráðherra neitar að afhenda minnisblað – Segir það undanþegið upplýsingarétti

Dómsmálaráðherra neitar að afhenda minnisblað – Segir það undanþegið upplýsingarétti

Aust­ur­frétt var synjað af dóms­mála­ráðu­neyt­inu, um afrit af minn­is­blaði frá Almanna­vörnum sem fjallar um jarð­gagna­kosti á Austu­fjörðum. Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur óskað eftir því að fyrri ákvörð­unum um jarð­ganga­fram­kvæmdir á svæð­inu verði á grund­velli minn­is­blaðs­ins, breytt.

Lýsti Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra þeirri skoðun sinni í gær í við­tölum við Stöð 2 og Mbl.is, að betra væri að gera svokölluð T-jarð­göng, fyrst frá Seyð­is­firði til Norð­fjarðar um Mjóa­fjörð og svo teng­inu frá Mjó­a­firði upp í Hérað. Núgild­andi jarð­ganga­á­ætlun snýr að hring­teng­inu með göngum fyrst undir Fjarð­ar­heiði frá Héraði til Seyð­is­fjarðar og síðan áfram til Norð­fjarðar um Mjóa­fjörð.

Sagðist Jón byggja þá skoðun sína á örygg­is­sjón­ar­miðum sem hann segir að starfs­hópur, sem hann skip­aði sem sam­göngu­ráð­herra, hafi ekki haft til hlið­sjónar er hann skilað skýrslu um jarð­ganga­kosti árið 2019. Vísaði hann til minn­is­blaðs Almanna­varna sem hann lagði fram á rík­is­stjórn­ar­fundi síð­ast­lið­inn föstu­dag.

„Við vorum bara að vekja athygli á því út frá síð­ustu atburðum á Aust­fjörðum hversu mik­il­vægt það er í fram­tíð­ar­vega­gerð á svæð­inu að hafa í huga for­gangs­röðun í þágu örygg­is­mála,“ sagði hann í sam­tali við Mbl.is.

Hann nefndi einnig fleiri mögu­leika í við­tali Stöðvar 2: „Fyrir byggð­irnar er þetta líka miklu rík­ari teng­ing í atvinnu­svæðum og slíku. Ég hef lengi verið þeirrar skoð­unar að út frá svona heil­brigð­is­svæði, spít­al­inn er jú, hér­aðs­sjúkra­húsið er á Nes­kaup­stað. Síðan er fólk að fara til vinnu í álver­inu og lax­eldi á milli fjarða. Þarna yrði komin bara í sjólínu teng­ing milli allra þess­ara svæða.“

Neitað um aðgang

Fram kemur í frétt Aust­ur­fréttar að mið­ill­inn hafi í gær óskað eftir minn­is­blað­inu frá Almanna­vörnum sem vís­uðu mál­inu til dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Í ráðu­neyt­inu bár­ust þau svör að minn­is­blöð sem lögð eru fyrir rík­is­stjórn­ar­fundi séu und­an­þegin upp­lýs­inga­rétti. Þó beri stjórn­völdum að taka afstöðu um hvort veita eigi aðgang í meira mæli þegar beiðni um aðgang er synjað. Aðgangur sé ekki veitt­uri í þessu til­felli.

Þá hefur Aust­ur­frétt einnig óskað eftir upp­lýs­ingum um höf­und minn­is­blaðs­ins, hver hafi beðið um það og hver útgangs­punktur þess sé. Var þeim spurn­ingum svarað þannig að ráð­herra væri heim­ilt að tjá sig um efni minn­is­blaðs­ins líkt og hann hafi gert í við­tölum við fjöl­miðla í gær.

Skýrsla starfshópsins

Jón Gunn­ars­son, þá sam­göngu­ráð­herra, skip­aði starfs­hóp haustið 2017, til að bera saman fram­an­greinda jarð­ganga­kosti á Aust­ur­landi. Til­kynnti hann það á þingi Sambands sveit­ar­fé­laga á Aust­ur­landi og lýsti hann því aukreitis yfir að það væri hans ósk að þessi fram­kvæmd yrði sú næsta á eftir Dýra­fjarð­ar­göngum, sem opnuð voru árið 2020. Rann­sókn­ar­spurn­ing starfs­hóps­ins var hvaða fram­kvæmd væri heppi­leg­ust til að rjúfa vetr­ar­einagn­run Seyð­is­fjarðar.

Sumarið 2019 skilað starfs­hóp­ur­inn nið­ur­stöðum sínum en þá var Sigurður Ingi Jóhanns­son tek­inn við sem sam­göngu­ráð­herra. Mætli hóp­ur­inn með hring­tengin­unni, sem sagt undir Fjarð­ar­heiði og þaðan til Norð­fjarðar. Lýsti Sigurður Ingi áhuga sínum á að ráð­ast í þau göng, fyrst undir Fjarð­ar­heiði og síðan strax áfram til Norð­fjarðar.

KPMG vann úttekt á sam­fé­lags­legum áhrifum á fram­kvæmd­unum, fyrir hóp­inn en nið­ur­staða KPMG var sú að hring­teng­ingin væri sú leið sem best kæmi út fyrir Seyði­fjörð og Aust­ur­land í heild. Með þess­ari teng­ingu hefðu íbúar svæð­is­ins val um tvær leiði sem drægi úr líkum á ófærð. Ræddi KPMG meðal ann­ars við sveit­ar­stjórn­ar­full­trúa úr Fjarð­ar­byggð, Seyð­is­firði og á Fljóts­dals­hér­aði.

Jón vís­aði í við­töl­unum í gær til þess ástands sem skap­að­ist í mars er björg­un­ar­lið var veð­ur­teppt á Egils­stöðum eftir að hafa komið með flugi frá Reykja­vík til aðstoðar vegna snjó­flóð­anna í Nes­kaups­stað. T-göngin eru gagn­rýnd í úttekt KPMG, fyrir að veita ekki nægi­lega trygga teng­ingu við Hérað. Þá vann Veð­ur­vaktin sam­an­tekt fyrir starfs­hóp­inn þar sem bent var á að ill­viðra­samt sé á Eyvind­ar­ár­dal sem sem gagna­munni T-gang­anna kæmi út Hér­aðs­meg­inn. Ekki sé þar snjó­þungt en geti orðið afar hvasst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins