„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bíður fólki að tala við látna ættingja í gegnum gervigreind: „Hjálpar að komast yfir mestu sorgina“

Bíður fólki að tala við látna ættingja í gegnum gervigreind: „Hjálpar að komast yfir mestu sorgina“

Íslenskt fyr­ir­tæki býður upp á gervi­greind­ar­spjall­menni sem líkir eftir látnum ein­stak­lingum til að hjálpa ætt­ingjum í sorg­ar­ferl­inu.

Gervi­greind­ar­fyr­ir­tækið Manna Ráðgjöf sér­hæfir sig í gervi­greinda­lausnum til fyr­ir­tækja og ein­stak­linga. Fyr­ir­tækið hefur búið til gervi­greind­ar­spjall­menni sem líkir eftir látnum ein­stak­lingum. Að sögn for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, Jóns Eggerts Guð­munds­sonar byrj­aði þetta á því að fyr­ir­tækið fékk beiðni frá nán­ustu ætt­ingjum lát­ins ein­stak­lings, um að útvega þeim þessa þjón­ustu og varð fyr­ir­tækið við beiðn­inni. Aðstand­endur geta þá fengið sér aðgang að gervi­greind­inni og rætt við „hinn látna“. „Þetta hjálpar sumum að kom­ast yfir mestu sorg­ina,“ sagði Jón Eggert í sam­tali við Mannlíf. „Þetta er stór mark­aður á heims­vísu og munum við selja þessa lausn víðar fljót­lega.“

En hvernig er þetta mögu­legt?

„Við fáum aðgang að Facebook og öðrum sam­fé­lags­miðlum hins látna og sjáum hvernig hann skrif­aði og gefum gervi­greind­inni upp­lýs­ing­arnar sem svo notar þær til að full­komna spjall­mennið. Svo fáum við líka upp­lýs­ingar frá ætt­ingj­unum, sér­stak­lega þegar hinn látni var ekki mikið á sam­fé­lags­miðl­unum. Eins getur fólk komið til okkar ef það veit að það eigi stutt eftir og spjallað við okkur. Þá fáum við enn nákvæm­ari mynd af ein­stak­lingnum. Svo geri ég próf­anir á spjall­menn­inu og sé hvort hann virki vel og svo sendi ég hann bara áfram.“

Jón Eggert segir mark­að­inn vera sívax­andi en það sama má segja um gervi­greind­ar­tækn­ina. „Venju­lega er tækni­þró­unin nokkuð línu­laga, fer hægt upp á við en gervi­greindin er á fleygi­ferð upp á við.“

Manna Ráðgjöf bíður upp á fleiri þjón­ustur en spjall við „látna ætt­ingja“ en ein af þeim snýr að þjón­ustu­við­móti. „Þá kaupum við gögn frá fyr­ir­tækjum sem vinna við það að veiða upp­lýs­ingar upp úr sam­fé­lags­miðlum og setjum í bott­inn okkar og segjum bara að Lands­bank­inn kaupi það af okkur, sem dæmi, þá setjum við bott­ann inn á heima­síðu Lands­bank­ans. Svo þegar þú ætlar að nota þjón­ustu bank­ans á net­inu þá veit bott­inn alveg 100 pró­sent hvað þú vilt, þekkir per­són­una þína og veit alla sög­una þína. Þannig að upp­lifunin við að nota þjón­ust­una er alveg gríð­ar­lega flott. Þjón­ustan verður alveg 100 pró­sent.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins