„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gísli prófessor krafinn um 233 milljónir- Sigrún kærir hann fyrir svik og fær kyrrsetningu á eigum

Gísli prófessor krafinn um 233 milljónir- Sigrún kærir hann fyrir svik og fær kyrrsetningu á eigum
Gísli Hjálmtýs­son pró­fessor. Mynd: Háskólinn í Reykjavík.

Sigrún Ísabella Jóns­dóttir, fyrr­ver­andi eig­in­kona Gísla Hjálmtýs­sonar, fjár­festis og pró­fess­ors, hefur kært hann til hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir meint umboðs­svik og fjár­drátt.

Sigrún sakar fyrr­ver­andi mann sinn um að hafa selt ein­býl­is­hús þeirra í Reykja­vík fyrir 105 millj­ónir fyrir sjö árum án þess að greiða henni sinn hlut. Heim­ildin greinir frá þessu og vísar til gagna sem fjöl­mið­ill­inn hefur undir höndum. Þá er einnig byggt á því að Gísli hafi selt íbúð sem var hluti kaup­verðs­ins án þess að konan fengi sinn skerf af söl­unni. Alls krefst hún 233 millj­óna króna úr hendi eig­in­manns­ins fyr­tr­ver­andi sem starfar sem pró­fessor í tölv­un­ar­fræði við Háskól­ann í Reykja­vík

Sigrún Ísabella Jóns­dóttir hefur látið kyrr­setja eignir Gísla fyrir kröfu sem nemur rúm­lega 233 millj­ónir króna. Heim­ildin greinir frá því að við­skiptin með ein­býl­is­húsið hafi átt sér stað á meðan Gísli og Sigrún voru enn þá í hjóna­bandi. Sigrún er sögð hafa kraf­ist skiln­aðar fyrir dómi í Banda­ríkj­unum árið 2017 þar sem hjónin voru þá búsett.

Gísli Hjálmtýs­son er þekktur fyrir þát­töku sínu í alþjóð­legum við­skiptum og þá ekki síst fyrir umsvif í skatta­skjólum. Hann hefur tengst Thule Invest­ments sem rak fjár­fest­ing­ar­sjóði. Þetta fyr­ir­tæki rak meðal ann­ars sjóð sem átti verk­smiðju­togar­ann Blue Wave sem veiddi fisk fyrir utan vest­ur­strönd Afríku. DV fjall­aði á sínum tíma um það mál. Höfundur þeirrar greinar er Ingi Freyr Vil­hjálms­son sem fjallar einnig um málið í Heim­ild­inni nú. Þá var fjallað um málið í Kast­ljósi Rík­is­út­varps­ins. Gísli kom einnig við sögu í Panama­skjöl­unum og rakið hvernig útgerð tog­ar­ans var rekin í gegnum útgerð­ar­fé­lag á Tortola.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins