„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þrætur innan Þjóðkirkjunnar: „Vígslu­bisk­up ­sagði ósatt 20 sinn­um við skýrslu­töku“

Þrætur innan Þjóðkirkjunnar: „Vígslu­bisk­up ­sagði ósatt 20 sinn­um við skýrslu­töku“
Kristinn Jens.

Fyrr­ver­andi sókn­arrpestur í Saurbæ á Hval­fjarð­ar­strönd, Kristinn Jens Sig­ur­þórs­son, segir að vígslu­bisk­up­inn í Skál­holti, Kristján Björns­son, hafi í um 20 sinnum sagt ósatt við skýrslu­tökur Hér­aðs­dóm Suð­ur­lands.

Kemur þetta fram í aðsendri grein Kristins í Morg­un­blað­inu; Kristinn fer ekki mikið út í mála­vöxtu; segir málið snerta hann sjálfan per­sónu­lega.

Kristinn var sókn­ar­prestur í Saurbæ; en þjóð­kirkjan ákvað að leggja presta­kallið niður.

Kristinn segir ansi marga hafa orðið fyrir barð­inu á ófag­mennsku vígslu­bisk­up­s­ins; segir hann setja sig illa inn í þau mál er honum voru og eru falin til úrlausnar:

Kristján Björns­son vígslu­biskup.

„Vegna pláss­leys­is verður hér látið nægja að vísa til fjölda þeirra presta og starfs­manna, sem und­ir­rit­uðum er kunn­ugt um að hafi þurft að líða fyr­ir ófag­mennsku Krist­jáns og óheil­indi: Tveir sam­starf­sprest­ar hans í Vest­manna­eyj­um, þrír í Skál­holti, tveir starfs­menn bisk­ups­stofu, auk koll­ega á kirkju­þingi.

Hafa m.a. verið lagðar fram form­leg­ar kvart­an­ir á hend­ur hon­um. Til við­bót­ar má nefna ómál­efna­lega og mis­kunn­ar­lausa aðkomu vígslu­bisk­ups­ins að mál­um fyrr­ver­andi sókn­ar­prests í Grens­ás­kirkju, sem og að mál­um er snúa að und­ir­rit­uðum og hef­ur að hluta verið stefnt fyr­ir dóm­stóla. Munu þau fá um­fjöll­un síðar, en að þessu sinni verður látið nægja að taka fram að við skýrslu­töku fyr­ir Hér­aðs­dómi Suður­lands hinn 18. mars 2021 sagði vígslu­bisk­up­inn ósatt hátt í 20 sinn­um.

Er um mjög al­var­legt brot að ræða.

Einnig kom fram með mjög skýr­um hætti við skýrslu­tök­una hve illa vígslu­bisk­up set­ur sig inn í þau mál sem hon­um eru fal­in til úr­lausn­ar, en hon­um hafði verið fengið umboð bæði bisk­ups Íslands og kirkju­ráðs til að fjalla um djúp­stæð ágrein­ings­mál. Hef­ur fram­ganga vígslu­bisk­ups haft al­var­leg­ar af­leið­ing­ar fyr­ir und­ir­rit­aðan. Eft­ir­far­andi til­vitn­un í skýrsl­una und­ir­strik­ar hvernig Kristján Björns­son hef­ur rækt skyld­ur sín­ar, en hér er að finna hans eig­in orð: „Lögmaður und­ir­rit­aðs: Hversu vel þekkt­ir þú til ágrein­ings­efna á þess­um tíma, þegar þú færð þetta umboð?

Kristján Björns­son: Ekki mjög mikið annað en bara það sem ég hafði frétt svona út und­an mér og varðar ekki þetta tíma­bil.

Lögmaður und­ir­rit­aðs: Þú hafðir sem sagt ekk­ert kynnt þér það neitt sér­stak­lega hvernig staðan á þess­um mál­um var eða neitt slíkt?

Kristján Björns­son: Ja, við skul­um bara … Nei ég hafði ekki kynnt mér það neitt. Ég hafði ekki farið neitt ofan í nein gögn um það.““

Kristinn segir einnig að Kristján hafi ein­ungis fengið 18 til­nefn­ingar af þeim 67 sem tóku þátt í til­nefn­ingu til vígslu­bisk­up­s­kjörs:

„Hefði við venju­leg­ar kring­um­stæður mátt ætla að sitj­andi bisk­up nyti mun meira trausts. Nið­ur­staðan verður enn ein­kenni­legri þegar horft er til þess að hverj­um og ein­um sem til­nefn­ir er heim­ilt að til­greina allt að þrjú bisk­ups­efni, en ætla má að til­nefn­ing­ar hafi verið um 200 tals­ins. Vígslu­bisk­up komst hins veg­ar ekki á blað hjá 49 manns eða u.þ.b. 73% þeirra sem til­nefndu. Verður að telja aug­ljóst að þeir vilji alls ekki að Kristján Björns­son verði áfram í Skál­holti. Er það eitt og sér at­hygl­is­vert og ætti að vekja kjör­menn stift­is­ins til ræki­legr­ar um­hugs­un­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins