„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ungir sláttumenn veittu bílþjófi eftirför „Hann horfði á okkur útúrdópaður, hjartað var í buxunum“

Ungir sláttumenn veittu bílþjófi eftirför „Hann horfði á okkur útúrdópaður, hjartað var í buxunum“
Ólafur, Einar og Benedikt

Mennta­skóla­nem­arnir, Ólafur, Einar og Benedikt stofn­uðu saman sumar-fyr­ir­tæki sein­asta sumar að nafni „Við Sláum“ en þeir slá garða fyrir fólkið í hverf­inu. Strák­arnir urðu þó fyrir miklu áfalli þegar þeir komust að því að bíll fyr­ir­tæk­is­ins hafi horfið:

„Þjóf­ur­inn horfði á okkur útúr­dóp­aður og var í mjög ann­ar­legu ástandi, hjartað var í bux­unum“

Það var seint um kvöld þegar Einar tók eftir því að bíll fyr­ir­tæk­is­ins var horf­inn af bílaplani við heim­ili hans og trúði hann vart að þjófn­aður hafi átt sér stað. Einar hafði sam­band við Ólaf og Benedikt ræddu þeir málin. Áður en þeir höfðu sam­band við Lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ákváðu þeir félagar að taka málið í eigin hendur.

Drengirnir keyrðu lengi um götur borg­ar­innar og fundu loks bíl­inn á skugga­legum stað hjá fyr­ir­tæk­inu Vöku á Héð­ins­götu. Þar duttu þeir í lukku­pott­inn.

„Við fundum hann með því að fara á alla staði sem við mögu­lega gátum. Okkur datt í hug að hann hafi verið dreg­inn af Vöku vegna þess að við vorum ekki að trúa að bílnum hafi verið stolið,“ sögðu drengirnir í sam­tali við Mannlíf.

Þeir urðu ráð­villtir þegar þeir sáu mann ganga að bílnum og bruna síðan af stað.

„Þjóf­ur­inn horfði á okkur útút­dóp­aður og var í mjög ann­ar­legu ástandi. Við þorðum ekki að keyra beint á eftir honum svo við biðum þar til hann væri kom­inn inn fyrir hornið,“ útskýra pilt­arnir. En þeir náðu mynd­skeiði af þjófinum.

Mynd­bandið sýnir þjófinn stíga inn í bíl­inn.

Strák­arnir veittu þjófinum eft­ir­för  með­fram Sæbraut­inni en misstu af bílnum sjónir þar sem öku­mað­ur­inn keyrði langt yfir hámarks­hraða og fór yfir á rauðum ljósum. Sjá mynd­skeið hér að neðan.

Mynd­bandið sýnir dreng­ina elta þjófinn sem keyrir á ógn­ar­hraða yfir á rauðum ljósum

Eftir fund bif­reið­ar­innar voru drengirnir í sam­bandi við lög­reglu­mann í gegnum allt ferlið og var mað­ur­inn hand­tek­inn eftir langan elt­ing­ar­leik. Mannlíf fjall­aði um hand­töku manns­ins:

„Bíl­þjófur lagði á flótta þegar lög­regla reyndi að stöðva hann. Honum voru gefin merki um að stöðva akst­ur­inn en lét ekki segj­ast. Upphófst stutt eft­ir­för lög­reglu sem stóð þar til öku­maður stöðv­aði bif­reið­ina. Þjóf­ur­inn reynd­ist jafn­framt vera án gildra öku­rétt­inda. Þá var hann ekki í með örygg­is­belti við akst­ur­inn.“

Drengirnir sóttu bíl­inn aðfara­nótt mánu­dags á lög­reglu­stöð­ina og var bíll­inn ekki vel far­inn. Hann var risp­aður, drull­ugur og ein felga bíls­ins var ónýt. Úr bílnum var stolið ryksugu, lauf­blás­ara, jakka, bolum og batt­eríi. Drengirnir end­uðu þó ekki tóm­hentir þar sem þjóf­ur­inn hafði skilið eftir í bílnum peys­una sína, síma, pillur og sprautur.

„Við fengum engar bætur fyrir skemmdum bíls­ins en við fengum sprautur og pillur,“ sögðu drengirnir kald­hæðn­is­lega og glottu út í annað.

Þrátt fyrir meiri­háttar bakslag láta pilt­arnir ekk­ert stöðva árangur sinn í garðslætti og sneru þeir aftur til vinnu óhræddir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins