„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Íslenskt fyrirtæki felur gögn nýnasista – Seldu transfólki gervilyf

Íslenskt fyrirtæki felur gögn nýnasista – Seldu transfólki gervilyf

Augu margra hafa beinst að fyr­ir­tæk­inu EstroLabs þar sem þau aug­lýsa horm­óna­lyf sem hafa reynst vera fölsuð. Nýnas­ista­sam­tök eru talin standa á bak­við svikin sem helst hefur bitnað á trans­fólki. Hið íslenska fyr­ir­tæki Withheld for Privacy, teng­ist mál­inu.

„Það er alveg nóg að þú vitir bara fyrra nafnið. Ég svara í sím­ann hérna,“ segir Ása, starfs­maður Withheld for Privacy í við­tali við Vísi. Fyr­ir­tækið er búsett á Kalkofnsvegi 2 á hafn­ar­torgi.

Í við­tali við Vísi segir Ása að Withheld for Privacy sé ekki hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki. „Við bjóðum upp á þannig þjón­ustu að fólk geti notað okkar upp­lýs­ingar í stað­inn fyrir þeirra sem eiga heima­síð­una. Contact upp­lýs­ing­arnar eru faldar,“ segir Ása.

Þegar blaða­maður Vísis spurði hvort fyr­ir­tækið veiti net­glæpa­mönnum skálka­skjól segir hún blaða­manni að beina spurn­ingum sínum til Arisóna í Banda­ríkj­unum þar sem lög­fræði­deild fyr­ir­tæk­is­ins, NameCheap.com er búsett.

Október, 2022 kom í ljós að þrjú ráðu­neyti á Íslandi ynnu að því að koma í veg fyrir falda slóð net­glæpa­manna hér á landi. Ráðu­neytin voru, menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neytið, dóms­mála­ráðu­neytið og háskóla-, iðn­aðar-, og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið. Afrakst­ur­inn hefur enn ekki verið kynntur.

Twitter aðgang­ur­inn „QueerQuirk“ hefur vakið mikla athygli síð­ast­liðnar vikur þar sem aðgang­ur­inn aug­lýsir fölsk horm­óna­lyf.

„Við erum form­lega plög­gið ykkar til að fá horm­óna­upp­bót­ar­með­ferð­art­öflur án lyf­seð­ils,“ segja EstroLabs á Twitter-síðu sinni.

Fyr­ir­tækið EstroLabs hefur boðið trans­fólki upp á horm­óna­lyfið sem nefn­ist: „I Cant Believe Its Not Estrogen“ en fólk var ekki lengi að átta sig á að um væri svik að ræða. Mark­hópur fyr­ir­tæk­is­ins var aðal­lega trans­fólk þar sem EstroLabs seldi sem átti að henta trans­fólki vel.

Töfl­urnar eru 60 í boxi og eru seld á 6.000 íslenskar krónur og inni­halda þær Ashwagandha. Varan reyn­ist aðeins hækka testó­sterón en ekki hækka estrogenið. Ashwagandha er notað til stressminnk­unar en engin sönnun er fyrir því að það virki einnig til að bæta estrogen fram­leiðslu lík­am­ans.

Lyfið sem um er að ræða

Rukk­un­ar­að­ferð fyr­ir­tæk­is­ins þótti áhuga­verð þar sem fólki var ætlað að greiða nýnas­ista­sam­tök­unum Patriot Front fyrir vör­una en greið­andi var sendur á PayPal reikn­ing sam­tak­ana.

Eftir klofn­ing nýnas­ista­sam­tak­anna Vanguard árið 2017, urðu til nýnas­ista­sam­tökin Patriot Front og hafa sam­tökin staðið fyrir ýmsum óreiðum.

Á heima­síðu þeirra voru mikið af fólki sem sögðu vör­una til­valna fyrir trans­fólk, kom þó í ljós síðar að athuga­semd­irnar voru fals­aðar en ein þeirra inni­hélt ljós­mynd sem stolið var af not­anda Reddit. Greinir Vice frá.

Töfl­urnar inni­halda fjórum sinnum meira Ahwagandha-magn heldur ráð­lagður skammtur segir. Ráð­lagður dags skammtur er 250-600 mg, en mælir EstroLabs með 2.400 mg á dag. Of mik­ill skammtur Aswaghandha getur valdið upp­köstum og í ein­hverjum til­vikum getur það leitt til lifra­bil­unar.

Óljóst er hvort ein­hverjir hafii keypt vör­una en „QueerQuirk“ segir á Twitter að alls hafi 284 manns keypt lyfið.

Segja margir að í besta falli sé þetta alvar­legur net­hrekkur en í versta falli sé þetta vís­vit­andi eitrun, þar sem lyfið getur reynst mjög skað­legt.

Lokað hefur verið fyrir heima­síðu þeirra og hefur varan verið tekin úr sölu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins