„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jón Gunnars kveður ráðuneytið: „Erfiður tími fyrir þá sem eru ekki fylgjandi Sjálfstæðisflokknum“

Jón Gunnars kveður ráðuneytið: „Erfiður tími fyrir þá sem eru ekki fylgjandi Sjálfstæðisflokknum“

Jón Gunn­ars­son kveður dóms­mála­ráðu­neytið í færslu á Facebook síðu sinni í gær þar sem hann þakkar les­endum fyrir traustið, stuðn­ing­inn og aðhaldið und­an­farin miss­eri en leggur áherslu á þakkir sínar til starfs­fólks ráðu­neyt­is­ins. Að lokum óskar hann eft­ir­mönnum sínum far­sæls starfs.

,,Við höfum orðið varir við að þetta hefur verið erf­iður tími fyrir þá sem eru ekki fylgj­andi Sjálf­stæð­is­flokknum í skoð­unum.“

Hann segir að það hafi ekki farið fram­hjá neinum að ýmis­legt hafi gengið á í ráðu­neyt­inu und­an­farið þar sem margir mála­flokkar, sér­stak­lega útlend­inga­mál og lög­gæsla, hafi staðið þar á tíma­mótum auk þess að ýmsum fram­fara­málum hafi ýmist verið lokið eða ýtt úr vör og lýkur þeim orðum sínum orð­rétt á því að „við höfum orðið varir við að þetta hefur verið erf­iður tími fyrir þá sem eru ekki fylgj­andi Sjálf­stæð­is­flokknum í skoð­unum.“

Að lokum segir hann að hann hefði kosið að geta fylgt eftir mik­il­vægum málum en það kall­ast á við það sem hann sagði þegar hann var gestur Reynis Trausta­sonar í þætt­inum Mann­lífið í apríl síð­ast­liðnum. Þar sem hann sagð­ist við­ur­kenna að þau í ráðu­neyt­inu þyrftu meiri tíma en fram á vorið til að ljúka stórum málum.

Í sama við­tali var hann spurður hvort hann teldi að hann yrði áfram dóms­mála­ráð­herra þar sem hann svar­aði því þannig að frá honum séð ríkti um það full­komin óvissa og varð­andi fram­hald sitt í stjórn­málum orð­aði hann það þannig að á meðan maður hefur gaman af hlut­unum þá er gaman að halda áfram.

Færsla Jóns á Facebook í heild sinni:

„TAKK FYRIR OKKUR!Við þökkum ykkur fyrir traustið, stuðn­ing­inn og aðhaldið sl. miss­eri.Sér­stakar þakkir fær starfs­fólkið í dóms­mála­ráðu­neyt­inu—hreint út sagt frá­bært sam­starf.Það hefur ekki farið fram­hjá neinum að ýmis­legt hefur gengið á hjá okkur í dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Margir mála­flokkar ráðu­neyt­is­ins hafa staðið á tíma­mótum, þá sér­stak­lega útlend­inga­mál og lög­gæsla, og hefur ýmsum fram­fara­málum verið ýmist lokið eða ýtt úr vör. Við höfum orðið varir við að þetta hefur verið erf­iður tími fyrir þá sem eru ekki fylgj­andi Sjálf­stæð­is­flokknum í skoð­unum.Auðvitað hefðum við kosið að geta fylgt eftir mik­il­vægum málum sem lagður hefur verið góður grunnur að, en svona er póli­tíkin.Eft­ir­mönnum okkar í ráðu­neyt­inu færum við bestu óskir um far­sælt starf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins