„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir Sjálfstæðisflokkinn ætli að ala á úlendingaandúð fyrir kosningar: „Þið lásuð það fyrst hér“

Segir Sjálfstæðisflokkinn ætli að ala á úlendingaandúð fyrir kosningar: „Þið lásuð það fyrst hér“
Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokk­ins Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Illugi Jök­uls­son er með kenn­ingu um kom­andi kosn­inga­bar­áttu Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Í nýrri færslu á Facebook segir Illugi Jök­uls­son fjöl­miðla­maður að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætli að „magna upp og keyra á útlend­inga­andúð“ í kosn­ing­unum sem haldnar verða í haust. Færslan hefur vakið gríð­ar­lega athygli en hátt í fjögur hund­ruð manns hefur líkað við hana og um hund­rað skrifað athuga­semd við hana.

„Það verða kosn­ingar í haust. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn ætlar að magna upp og keyra á útlen­inga­andúð. Hann hefur ekk­ert annað og það hefur oft gef­ist hægri­flokkum vel að búa til „útlenskan óvin“ sem hægt er að kenna um allt illt. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er nógu ómerki­legur til að fara þá leið. Þið lásuð það fyrst hér,“ skrif­aði Illugi á Facebook.

Fjöldi manns skrif­aði athuga­semd við færslu Illuga en óhætt er að segja að fólk skipt­ist í tvær fylk­ingar. Orri Björns­son, for­stjóri líf­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Algalífs og Sjálf­stæð­is­maður var einn þeirra ósáttu: „Þetta er veru­lega ómerki­legt hjá þér. Svei!!!“

Þessu svar­aði Einar Stein­gríms­son stærð­fræð­ingur en hann spar­aði ekki stóru orðin: „Það er veru­lega ómerki­legt, svo ekki sé dýpra tekið í árinni, hjá ráð­herrum Sjálf­stæð­is­flokks­ins að tala um hæl­is­leit­endur sem vanda­mál. Ekki bara af því þeir eru ekki vanda­málið, frekar mót­tök­urnar sem þeir fá, heldur líka af því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur ráðið dóms­mála­ráðu­neyt­inu í tíu ár.

En þetta er dæmi­gert fyrir eig­endur flokks­ins þíns. Að tala með þjósti um meint vanda­mál sem þeir hafa sjálfir skapað (sama gildir um fjölgun rík­is­starfs­manna), og láta eins og allt sé öðrum að kenna. Aum­ingjar (og reyndar margt verra en það, en ég ætla að halda mig á kurt­eisu nót­unum í kvöld).“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins