„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Íslandsbanki viðurkennir alvarleg brot með rúmum milljarði í sáttargreiðslu

Íslandsbanki viðurkennir alvarleg brot með rúmum milljarði í sáttargreiðslu
Myndin er sam­sett

Íslands­banki hefur falist á að innri reglum bank­ans hafi ekki verið fylgt og þær verið brotnar á alvar­legan hátt, auk þessa hafi eðli­legum við­skipta­háttum ekki verið fylgt við fram­kvæmd útboðs Banka­sýslu á 22,5% hlut ríkis í bank­anum. Útboðið var í mars 2022.

Fram kemur á sam­kvæmt frétta­stofu rúv.is að bank­inn greiðir Fjár­mála­eft­ir­lit­inu 1,16 millj­arða í sátt­ar­greiðslu.

Í til­kynn­ingu frá Íslands­banka segir:

„Í sátt­inni fellst bank­inn á það mat fjár­mála­eft­ir­lits­ins að við­eig­andi laga­kröfum og innri reglum bank­ans um veit­ingu fjár­fest­ing­ar­þjón­ustu hafi ekki verið fylgt í öllum til­vikum við und­ir­bún­ing og fram­kvæmd útboðs­ins, einkum hvað varðar hljóð­rit­anir sím­tala, upp­lýs­inga­gjöf til við­skipta­vina, flokkun fjár­festa og ráð­staf­anir gegn hags­muna­á­rekstrum s.s. aðskilnað starfs­sviða og við­skipti starfs­manna“.

„Þá hafi inn­leið­ing stjórn­ar­hátta og innra eft­ir­lits ekki verið full­nægj­andi og skort hafi áhættu­miðað eft­ir­lit með hljóð­rit­unum. Jafn­framt telur fjár­mála­eft­ir­litið að bank­inn hefði átt að gera sér­stakt áhættu­mat í tengslum við útboðið. Loks hafi bank­inn við fram­kvæmd útboðs­ins ekki starfað að öllu leyti í sam­ræmi við eðli­lega og heil­brigða við­skipta­hætti og venjur í verð­bréfa­við­skiptum. Er það nið­ur­staða fjár­mála­eft­ir­lits­ins að brot bank­ans sam­kvæmt fram­an­greindu hafi verið alvar­leg.“

Fjármálaráðherra fannst salan velheppnuð

Sala hluts rík­is­ins í Íslands­banka sætti harðri gagn­rýni. Í nóv­em­ber í fyrra mátti Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra svara fyrir eftir að út kom æði svört skýrsla frá Rík­is­end­ur­skoðun og að fréttir bár­ust um að faðir hans hafi verið einn af kaup­endnum.

Í Kast­ljós­við­tali í nóv­em­ber sagði Bjarni meta það sem svo að salan hafi verið vel­heppnuð og sagði: „Mín ábyrgð, hún er kannski mest í þessu hér: Að láta bank­ann í sölu­ferli. Þetta er risa­stór póli­tísk ákvörðun,“

Þá hamr­aði Bjarni á vel­gengni söl­unnar og sagði að hann taki ekki mark á því fólki sem telur að illa hafi verið farið með fjár­hags­lega hags­muni rík­is­ins með söl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins