„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Draga á úr dvöl flóttafólks í Reykjanesbæ – Aðgerðaráætlun Vinnumálastofnunar og bæjaryfirvalda

Draga á úr dvöl flóttafólks í Reykjanesbæ – Aðgerðaráætlun Vinnumálastofnunar og bæjaryfirvalda

Aðgerða­á­ætlun vegna dvalar umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í Reykja­nesbæ á vegum Vinnu­mála­stofn­unar

Vinnu­mála­stofnun og Reykja­nes­bær hafa unnið aðgerða­á­ætlun vegna dvalar umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í sveit­ar­fé­lag­inu á vegum Vinnu­mála­stofn­unar. Áætlunin sam­anstendur af 16 aðgerðum sem fela meðal ann­ars í sér margs konar tóm­stunda­úr­ræði fyrir fólk á öllum aldri og opnun virkni­m­ið­stöðvar undir heit­inu Klúbb­ur­inn. Mið­stöðin verður í hús­næði sem áður hýsti Officera-klúbb­inn á Ásbrú og þar verður boðið upp á nám­skeið, smiðjur og fjöl­breytta dag­skrá. Samhliða mun Vinnu­mála­stofnun leit­ast við að draga eins og kostur er úr dvöl umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í Reykja­nesbæ.

Þann 9. jan­úar sl. und­ir­rit­uðu félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið, Vinnu­mála­stofnun og Reykja­nes­bær vilja­yf­ir­lýs­ingu um að greindar yrðu þær áskor­anir sem Reykja­nes­bær stæði frammi fyrir vegna fjölg­unar umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem dvelj­ast í sveit­ar­fé­lag­inu á vegum rík­is­ins. Ákveðið var að aðilar að yfir­lýs­ing­unni myndu vinna saman að lausnum og er aðgerða­á­ætl­unin afrakstur þeirrar vinnu.

Áætlunin er gerð vegna þeirra sér­stöku aðstæðna sem uppi eru í Reykja­nesbæ vegna mik­ils fjölda umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem þar dvelja í sam­an­burði við önnur sveit­ar­fé­lög. Meg­in­mark­miðið er ann­ars vegar að draga til lengri tíma litið úr fjölda umsækj­enda sem dvelja í bænum og hins vegar að auka virkni og vellíðan fólks á meðan það bíður eftir afgreiðslu umsóknar sinnar hjá Útlend­inga­stofnun. Áætlunin var unnin sam­eig­in­lega af Reykja­nesbæ og Vinnu­mála­stofnun.

Vel sótt tómstundanámskeið

Aðgerðir eru þegar hafnar sam­kvæmt áætl­un­inni og hafa börn umsækj­enda um alþjóð­lega vernd meðal ann­ars sótt tóm­stunda­nám­skeið nú í sumar sem Vinnu­mála­stofnun kom á fót á Ásbrú. Nám­skeiðin hafa mælst vel fyrir og þátt­taka verið afar góð en dag­lega hafa á bil­inu 60-70 börn tekið þátt.

Barna og ung­linga­ráð Körfuknatt­leiks­deildar Kefla­víkur hefur séð um yngri hóp­inn, börn 6-10 ára, og meðal ann­ars haft körfu­bolta á dag­skrá, föndur og margs konar leiki. Knatt­spyrnu­deild Kefla­víkur hefur séð um eldri krakk­ana, 11-16 ára, og meðal ann­ars farið með þeim í fót­bolta, blak og margs konar hreyf­ingu utandyra.

Önnur aðgerð í áætl­un­inni sem er þegar hafin snýr að sam­göngu­málum og er ætlað að mæta auknu álagi á almenn­ingsam­göngur frá Ásbrú og niður í miðbæ Reykja­nes­bæjar.

Friðheimar, sjálfboðaliðar og hugmyndasöfnun

Meðal aðgerða sem hefj­ast á næst­unni er að koma á fót þró­un­ar­skóla í Klúbbnum undir heit­inu Frið­heimar, auka þjón­ustu við flótta­fólk og umsækj­endur um alþjóð­lega vernd með aðkomu sjálf­boða­liða úr nær­sam­fé­lag­inu og ráð­ast í hug­mynda­söfnun meðal umsækj­enda um það hvað fólk vilji helst gera og hvernig virkni það mæli með.

Þá mun þjón­ustu- og mót­tökuteymi alþjóðateymis Reykja­nes­bæjar verða tvo morgna í viku á Ásbrú með upp­lýs­inga­gjöf um þá þjón­ustu sem bær­inn veitir og leið­beina fólki varð­andi nyt­sam­lega hluti.

Fækkun umsækjenda í Reykjanesbæ

Vinnu­mála­stofnun tók síð­ast­liðið sumar við því hlut­verki sem Útlend­inga­stofnun hafði áður varð­andi þjón­ustu við umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. Útlend­inga­stofnun ber eftir sem áður ábyrgð á afgreiðslu umsókna og máls­með­ferð þeirra.

Líkt og áður segir mun Vinnu­mála­stofnun draga úr fjölda þeirra  umsækj­enda um alþjóð­lega vernd sem dvelur í Reykja­nesbæ líkt og kostur er. Myndist svig­rúm í búsetu­úr­ræðum stofn­un­ar­innar eða hjá sveit­ar­fé­lögum sem stofn­unin er með samn­inga við verður leit­ast við að fækka þeim umsækj­endum sem dvelja í Reykja­nesbæ.

Stofn­unin vinnur nú með Reykja­vík­ur­borg að því að finna hent­uga stað­setn­ingu fyrir ein­inga­hús fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd. Um leið er unnið mark­visst að því að fjölga sveit­ar­fé­lögum sem hýsa umsækj­end­urna. Nýleg sveit­ar­fé­lög sem bæst hafa í hóp­inn sem slík mót­töku­sveit­ar­fé­lög eru Blá­skóga­byggð, Grinda­vík, Kópa­vogur og Vest­manna­eyjar. Samhliða leitar Fram­kvæmda­sýslan/Rík­is­eignir að hús­næði vítt og breitt um landið.

Áfram verður áhersla lögð á að Vinnu­mála­stofnun tengi flótta­fólk við önnur sveit­ar­fé­lög sem samið hefur verið við um sam­ræmda mót­töku flótta­fólks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fréttatilkynning

Áskorun Blaðamannafélags Íslands til stjórnmálaflokka fyrir Alþingiskosningar 2024 – MYNDBAND
Innlentfréttatilkynning

Áskorun Blaða­manna­fé­lags Íslands til stjórn­mála­flokka fyrir Alþing­is­kosn­ingar 2024 – MYNDBAND

Blaða­manna­fé­lag Íslands (BÍ) skorar á stjórn­mála­flokka í aðdrag­anda alþing­is­kosn­inga 2024 að þeir beiti sér fyrir því að skapa umhverfi og aðstæður hér á landi þannig að öfl­ugir, sjálf­stæðir og frjálsir fjöl­miðlar fái hér þrif­ist í þágu almenn­ings og lýð­ræðis. Í áskor­unni segir m.a: „Fjöl­breytt, frjálst og öfl­ugt fjöl­miðlaum­hverfi er grund­völlur lýð­ræð­is­legrar umræðu og sam­fé­lags. Aukin skautun í opin­berri umræðu og...
Tilkynning frá Hinseginfélagi FG: „Fordómar mega ekki eiga sér vísan stað í íslensku samfélagi“
Innlent

Til­kynn­ing frá Hinseg­in­fé­lagi FG: „Fordómar mega ekki eiga sér vísan stað í íslensku sam­fé­lagi“

Hinseg­in­fé­lag Fjöbrauta­skól­ans í Garðabæ var rétt í þessu að gefa frá sér frétta­til­kynn­ingu um bloggskrif Páls Vil­hjálms­sonar. Áréttar félagið í til­kynn­ing­unni að það að vera „hinsegin, trans eða eitt­hvað annað fellur undir sjálf­sögð og eðli­leg mann­rétt­indi.“ Þá falli rétt­ur­inn til tján­ingar á kyn­vit­und, kyn­hlut­verkum og kyn­hneigð, einnig undir sömu rétt­indi. Þau sem varið hafa skrif Páls um hinsegin mál­efni hafa...
Gulur september hefst í dag – Auka á meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna
Innlent

Gulur sept­em­ber hefst í dag – Auka á með­vit­und fólks um mik­il­vægi geð­ræktar og sjálfs­vígs­for­varna

Opn­un­ar­við­burður um sam­vinnu­verk­efni um geð­rækt og sjálfs­vígs­for­varnir verður hald­inn í Kringl­unni í dag klukkan 14:00. Gulur sept­em­ber er sam­vinnu­verk­efni stofn­ana og félaga­sam­taka sem vinna saman að geð­rækt og sjálfs­vígs­for­vörnum. Sjá líka á gul­ursept­em­ber.is Það er von und­ir­bún­ings­hóps­ins að gulur sept­em­ber, auki með­vit­und fólks um mik­il­vægi geð­ræktar og sjálfs­vígs­for­varna, sé til merkis um kær­leika, aðgát og umhyggju. Slag­orðin; „Er allt í...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins